Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Qupperneq 42
42
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988.
Jarðarfarir
Höskuldur Stefánsson lést 18. júlí sl.
Hann var fæddur 5. apríl 1941 á
Kirkjubóli í Korpudal í Önundar-
flrði. Hann var sonur hjónanna Guð-
rúnar Össurardóttur og Stefáns R.
Pálssonar. Höskuldur lærði rafvirkj-
un og rak um skeið fyrirtækið Rafiðj-
una með bræðrum sínum og fleirum.
Árið 1981 setti hann á stofn fyrirtæk-
ið Hrísnes í Kópavogi ásamt eigin-
konu sinni, Sigurbjörgu Bjömsdótt-
ur, og hafa þau rekið það síðan. Þau
hjónin eignuðust þrjá syni. Útfór
Höskuldar verður gerö frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Hilmar Th. Theodórsson lést 23. júli
sl. Hann var fæddur á ísafiröi 22.
mars 1912. Hann fluttist til Keflavík-
ur og giftíst Hrefnu Gunnlaugsdóttur
en hún lést 1984. Þau eignuðust tvö
böm. Útfór Hilmars verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag kl. 14.
Skarphéðinn Árnason lést 18. júlí sl.
Hann var fæddur 22. september 1919.
Skarphéðinn hóf störf hjá Flugfélagi
íslands árið 1954 við bókhald,
skömmu síðar fluttist hann til Kaup-
mannahafnar, til að hafa yfirumsjón
með bókhaldinu á skrifstofu Flugfé-
lags íslands. Árið 1960 hélt hann til
Hamborgar til að stjóma starfsemi
Flugfélags íslands þar. Árið 1964
sneri hann síðan tíl Osló og vann þar
þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir árið 1986. Skarphéðinn var
tvígiftur. Fyrri kona hans var Brynja
Þ. Guðmundsdóttir, en hún lést af
bamsforum. Þau eignuðust tvær
dætur. Eftirlifandi eiginkona hans
er Elínborg Reynisdóttir. Útfór
Skarphéðins verður gerö frá Lang-
holtskirkju í dag kl. 15.
Sigurður Ellertsson, Miðbraut 1,
Seltjamamesi, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni fóstudaginn 29.
júlí kl. 13.30.
Sigurbjörg Vigdis Guðbrandsdóttir, UvAf+iv __ __
Hringbraut 42, Hafnarfirði, verður * 1“ILIX UV
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Halla Kr. Sveinbjömsdóttir, Smára-
flöt 12, Garðabæ, er lést 22. júlí, verð-
ur jarðsungin frá Garðakirkju fóstu-
daginn 29. júlí kl. 13.30.
Björn Baldursson, Háaleitisbraut 28,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fóstudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Útfór Ingibjartar Þorsteinssonar
pípulagningameistara, Espilundi 1,
Garðabæ, fer fram frá Fossvogs-
kirkju fóstudaginn 29. júlí kl. 15.
Siguijón Guðjónsson, Efri-Holtum,
Vestur-Eyjafjöllum, verður jarð-
sunginn frá Ásólfsskálakirkju laug-
ardaginn 30. júlí kl. 14.
Tilkyniiíngar
„Til tjaldbúa"
Ut er komiö dreifiritið „TO tjaldbúa og
ferðalanga". Þar er verið að kynna tjald-
svæðið í Galtalækjarskógi, uppbyggingu
og rekstur á þeirri starfsemi sem fram
fer í skóginum á sumrum og um áfengis-
lausu útihátiðimar sem haldnar eru um
verslunarmannahelgina ár hvert. Ritiö
er Utprentað í kortaformi þar sem kort
af svæðinu fylgir með. Til tjaldbúa er
dreift inn á heimih á suðvesturhorninu
og Uggur frammi í verslunum endur-
gjaldslaust. Útgefandi er SumarheimiU
templara sem að standa Umdæmisstúka
nr. 1 á Suðurlandi og íslenskir ungtempl-
arar.
Hellur víkja fýrir malbiki:
Loka þarf Laugavegi
vegna framkvæmdanna
- hellulögnin kostaði 22 milljónir á síðasta ári
„Það þarf að loka Laugaveginum
á meðan á framkvæmdum stendur
og ég mun um helgina reyna aö
setja niður fyrir mér á hvaða tíma
það verður. Við munum reyna að
vinna sem mest um helgar og utan
vinnutíma. Ég veit ekki nákvæm-
lega hvað þetta tekur langan tíma
en við munum reyna að flýta okkur
eins og kostur er,“ sagði Sigurður
Skarphéðinsson, aðstoðargatna-
málastjóri.
Fyrir einu ári var Laugavegurinn
á milli Frakkastígs og Klapparstígs
lokaöur í 5-6 mánuði á meðan hann
var hellulagður. Sú framkvæmd
kostaði 22 milljónir hjá gatnamála-
deild í fyrra sem er, að sögn Sigurð-
ar, megnið af kostnaðinum en þó
er eftir að bæta við kostnaði vegna
endumýjunar á hitaveitu-, raf-
magns-, vatns- og símalögnum.
Hellurnar ná yfir 1440 fermetra
og eru 150 fermetrar úr portúg-
ölsku graníti en afgangurinn úr
íslenskum steini. Grjótið verður
tekið upp og fjarlægt ásamt steypu-
lagi sem þar er undir en síðan verð-
ur malbikað yfir. Aðspuröur sagði
Sigurður að framkvæmdirnar nú
myndu kosta 2,2 milljónir og hefi-
ast í næsta mánuði, sennilega um
aðra helgi ef hægt yrði.
- En hvað verður gert við grjótið?
„Við höfum selt afganga af þessu
portúgalska grjóti og þá var nóg
af kaupendum. Við getum einnig
notað bæði það og íslenska gijótið
1 aðrar framkvæmdir,“ sagöi Sig-
urður.
- Hvers vegna er endingin ekki
betri en raun ber vitni?
„Það var röð af mistökum sem
leiddi til þessa. Vatn komst í
steypulag undir steinunum og auk
þess var steypan illa þjöppuð. Þetta
var meginorsök þess að steypan
þoldi illa álagið og holur mynduð-
ust í veginn. Allir sem nálægt þessu
komu bera ábyrgð á þessu, eftirlits-
menn, verktaki, verkkaupi og
hönnuðir. Það er ekki hægt að
benda á neinn ákveðinn aðila,“
sagði Sigurður. JFJ
A Forum ’88 í Osló
Um 700 íslenskar konur munu sækja þing
norræna kvenna „Nordisk Forum" í Osló
dagana 31. júlí til 7. ágúst nk. Þar af eru
á annað hundruö konur frá Alþýðusam-
bandi íslands. Á myndinni veitir skrif-
stofustjóri ASÍ, Kristín Mántylá, viðtöku
Minnisbók Bókrúnar 1988 frá Björgu Ein-
arsdóttur, formanni Bókrúhar hf„ en það
forlag gefur öllum konum sem fara héðan
á Forum ’88 minnisbók meðan birgðir
endast, Vitja má bóka til forlagsins að
Einarsnesi 4, Reykjavík.
Ný verslun á Akranesi
Föstudaginn 22. júli var verslunin Val-
höll opnuð aö Kirkjubraut 11, Akranesi.
Eigandi hennar er Ingimar Garðarsson
en hann rak áður verslunina Dýralíf og
blómabúðina Louise. Verslunin skiptist
í þtjár deildir, þ.e. búsáhöld og raftæki,
blóm og gjafavörur og leikfóng og gælu-
dýrafóður, og er hún um 500 m2 að stærð.
Þetta er eina sérverslunin á Akranesi
með búsáhöld og verður reynt að bjóða
upp á sem flölbreytilegast úrval í eld-
húsið. Á myndinni eru Ingimar Garðars-
son og Anna Ámadóttir.
DV-mynd Sigurgeir Sveinsson
Indverska barnahjálpin
Að gefnu tilefni vil Indverska bama-
hjálpin taka fram að sparisjóðsreikning-
ur hennar er í Austurbæjarútibúi Búnað-
arbankans nr. 72700.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Ferðir um Verslunarmannahelgi 29.
júlí -1. ágúst
1. Þórsmörk 1 Fimmvörðuháls.
2. Landmannalaugar - Sveinstindur
3. Strandir - Ingólfsflörður
4. Skaftafell - Kjós
5. Nýidalur- Vonarskarð
6. Núpsstaðarskógur
7. Þórsmörk
Dagsferðir um verslunarmannahelgina
sunnudag 31. júlí. kl. 13 Gönguferð í
Innstadal. Elúð að Kolviðarhóli og gengið
þaðan. Verð kr. 600.
Mánudagur 1. ágúst
kl. 8 Þórsmörk - dagsferð.
kl. 13 Ármannsfell - Þingvellir. Þægileg
gönguleið á Ármannsfell. Verð kr. 1.000.
Brottfór í dagsferðimar er frá Umferða-
miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. í lengri ferðimar er farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Andlát
Björg Jónasdóttir tannsmiöur,
Hverfisgötu 3, Hafnarfirði, er látin.
Guðmundur Þorláksson prentari,
Njálsgötu %, lést 25. júlí.
Magnús Ásgeirsson, Vesturgötu 26b,
Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi
mánudaginn 25. júlí.
Sigurður Sigurgeirsson, vélvirkja- og
pípulagningameistari, Aðalgötu 14,
Stykkishólmi, lést í St. Fransiskus-
spítalanum í Stykkishólmi þriðju-
daginn 26. júlí.
Utivistarferðir
Ferðir um verslunarmannahelgina 29.
júlí til 1. ágúst
1. Eldgjá - Langisjór - Sveinstindur -
Lakagigar. Brottfór kl. 20. Frábær gisti-
aöstaða.
2. Núpsstaðarskógar. Brottför kl. 20.
Tjaldað viö skógana.
3. Þórsmörk. Brottför kl. 20.
2 daga ferð í Þórsmörk 31. júlí. Ennfrem-
ur dagsferðir, sunnudag og verslunar-
mannafrídaginn, í Þórsmörk kl. 8.
4. Hornstrandir - Hornvik. 28. júli - 2.
ágúst. Brottfór frá ísafirði 29. júÚ kl. 14.
5. Laxárgljúfur - Gljúfurleit - Þjórsár-
fossar. Ný spennandi ferð. Tjöld. Upplýs-
ingar og farm. á skrifstofunni, Grófmni
1, símar 14606 og 23732. Sjáumst.
Ferskfisksala umfram kvóta eriendis:
Kemur til
ffádráttar síðar
segir sjávarútvegsráðherra
Þeir útgerðamenn, sem flutt hafa
ferskan þorsk og ýsu á Bretlands-
markað án þess að hafa til þess leyfi
yfirvalda, fá frádrátt á útflutnings-
heimildum á næstu vikum.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagðist ekki hafa fengið
staðfestingu á þvi að íslenskir út-
flytjendur hefðu flutt út mun meira
af þorski og ýsu en leyfi voru gefin
fyrir. DV sagði frá því 1 gær að sam-
kvæmt upplýsingum íslenskra um-
boðsfyrirtækja í Bretlandi væru um
350 tonn af þorski og ýsu á markaðn-
um umfram það sem leyfi var gefið
fyrir.
„Ef þessar tölur eru réttar og út-
flyfiendur hafa flutt út meira í þess-
ari viku en þeir hafa leyfi til mun
það koma til frádráttar síðar," segir
Halldór.
Sfiórnvöld ákváðu í júlí að grípa til
takmarkana á útflutningi á fersk-
fiski. Takmarkanimar munu gilda
út september og verða útflytjendur á
ferskum fiski að sækja vikulega um
leyfi til að flytja út þorsk og ýsu.
Halldór segir að takmarkanir hafi
verið settar á til forðast yfirvofandi
verðfall og það markmið hafi náðst.
Þá sagöi Halldór að útflutningstak-
markanir væru bráðabirgðaráðstöf-
un. „Ef menn koma sér saman um
aðra skipan mála er ekkert því til
fyrirstöðu að breyta fyrirkomulag-
inu,“ sagði Halldór. pv
Siglufjörður:
Mannanna tveggja
leitað án
Um 30 manns leituðu í nótt að
mönnunum tveimur sem fóru á
gúmmíbát frá Siglufirði í fyrradag
og ekki hefur spurst til síðan. Bátur-
inn fannst undir Strákafialli í gær-
morgun. Hjá björgunarstöð hjálpar-
sveitanna á Siglufirði fékk DV þær
upplýsingar að leitað væri frá munni
árangurs
Strákaganga, Siglufiarðarmegin, og
vestur, fyrir Sauðanes.
Um hádegi verður leitin sett í fullan
gang á þessu svæði. í gær gerði veðr-
ið og haugabrim leitarmönnum erfitt
fyrir viö leitina en veðrið er nú að
skána fyrir norðan.
-hlh
Opna vegi á ný
eftir flóðin
Vegagerðin vinnur nú að hreinsun
á vegunum sem lokuðust í vatns-
veðrinu j fyrrinótt. Hjá vegaeftirlit-
inu fengust þær upplýsingar að veg-
urinn norður Strandir hefði opnast
í gær og verið væri að ganga frá
hreinsun hans. í Vopnafirði er unnið
að viðgerð við brýmar yfir Selá og
Þverá en þar fór vegurinn sundur.
Komast bílar yfir brýmar en eftir er
að Ijúka frágangi.
Siglufiarðarvegur er opinn og er
unnið að hreinsun hans sem er mik-
ið verk. Vegagerðin ruddi Ólafsfiarð-
armúla í gær en þar sem óhemju
mikil hreinsun stendur fyrir dymm
og enn hrynur á veginn getur vegur-
inn þar varla talist fær.
Að sögn vegaeftirlitsins er sæmi-
lega góð færð á vegum um allt land.
-hlh