Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Síða 19
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
19
meðal annars gerikomplex, fríska-
mín og C-vítamín. Hún sagði að sér
veitti ekki af þessu enda væri þetta
mjög gott fyrir heilsuna.
Böm náttúrunnar
Jón Daníelsson úr Hafnarfirði settist að á Hesteyri fyrir morgum árum eftir að hafa dreymt að álfkona hefði hjálp-
að móður Önnu úr brennandi húsi.
„Kríurnar rífast stundum örlítið og skita svo á mann af hræðslu," sagði
Anna og hélt inn í mitt fuglafarganið.
í raun var þaö ótrúlegt upplifelsi
að heilsa upp á þau Önnu og Jón.
Þau eru meöal fárra núlifandi íslend-
inga sem má meö sanni kalla börn
náttúrunnar og lifa svo til sam-
kvæmt því, þótt inni á milli megi sjá
hluti sem nútímafólk, sem ann lífs-
gæðum, hefur tileinkað sér. Þau hins
vegar misnota sér ekki nútímann
heldur nýta sér hann til góös.
Og áður en blaðamaður og ljós-
myndari kvöddu Hesteyrarfólk bauð
Anna okkur upp á C-vítamín og sagði
okkur ekki veita af. Ennfremur bað
hún um borgun fyrir innhtið og
spjallið. En krafan var sú að við
sendum henni Dagblaðið - Vísi ef
eitthvað birtist um hana því hún
sagðist aldrei sjá dagblöð.
I gömlum sögusögnum hermir að
Hesteyri hafi fengið nafn sitt er hest-
ur synti yfir Mjóaíjörðinn sem er um
tveggja kílómetra breiður þar sem
hann er, breiðastur og talið er aö
hesturinn hafi synt. Það eru greini-
lega ekki bara kýr sem fá sér ærlegan
sundsprett!
Og ekki hefur hann getað keyrt
Skódann sinn síðan hann meiddist á
fætinum þannig að ég ákvað þá að
taka bílpróf, komin langt á sextugs-
aldurinn. Það varð einhver að hafa
bílpróf á heimilinu. Það gekk nú
samt heldur hægt og rólega að læra
á bílinn því ég hafði áður keyrt trakt-
or þar sem maður stoppar alltaf á
mihi til að skipta um gír. Ég átti það
lengi til að stoppa bíhnn og skipta
um gír. Maður er svo vanafastur.
Aðspurð hvort hún hefði keyrt bíl-
inn til Reykjavíkur sagðist hún
lengst fara til Reyðarijarðar.
„Eg hef einu sinni þurft að sinna
erindum á Egilsstöðum,“ sagði hún
„en ég nota bílinn helst í stuttar ferð-
ir.“
Eftir örlitla skoðunarferð um jörð-
ina bauð Anna okkur inn í hús og
sagði um leið afar sterka setningu
sem lýsir hvað best virðingu hennar
fyrir náttúrunni:
„Má ekki bjóða ykkur inn fyrir en
það er ekki eins fahegt inni hjá mér
og úti í náttúrinni.“
Skeljar, steinar og glerbrot
Heimih hennar hefur að geyma
ýmsa hluti sem ekki sjást inni í stofu
hjá hverjum sem er. Til að mynda
var þarna gömul vél á miðju stofu-
gólfinu. Og uppi um alla veggi mátti
sjá hstaverk Ónnu - álíka skelja-
ramma og hún hafði gefið forsetan-
um á sínum tíma.
„Ég nota skeljar og steina til þess
að búa til rammana og glerbrot ef
mér sýnist svo,“ sagði hún og benti
okkur á einn sem var alsettur skelj-
um'. „Eins og þú sérð verða að vera
eins litaðar skeljar í römmunum og
samstæðar. Það getur tekið nokkurn
tíma aö finna fallegar skeljar í íjör-
unni.“
Það var fleira merkilegt að sjá inni
hjá Önnu. Þarna var til dæmis alls
kyns vítamín að finna á borðum,
Dreymdi að álfkona
hefði hjálpað
Einnig má geta þess að flutningur
Jóns Daníelssonar, meöbúanda
Önnu, kom til af því, að sögur herma,
þegar gamla Hesteyrarhúsið, hús
foreldra Önnu, brann. Þá hafði Önnu
með undraverðum hætti tekist að
bjarga móður sinni í gegnum glugga
á efri hæðinni og niöur stiga sem þar
var til. Sagan segir að stiginn hafi
verið það fúinn að hann hafi varla
getað haldið mús, hvaö þá manni.
Nokkru eftir brunann hafði Jón, sem
þá bjó í Hafnarfirði, samband við
Önnu og sagði að hann hefði dreymt
sömu nótt að álfkona hefði bjargað
móður hennar.
Anna og móðir hennar tóku söguna
trúanlega og buðu Jóni að koma til
sín. Frá þeim tíma hefur Jón haft
búsetu á Hesteyri.
-GKr
ÍÞRÓTTAKENNARAR
Grenivíkurskóla vantar íþróttakennara sem einnig
getur tekið að sér kennslu í öðrum greinum.
Frítt húsnæði í boði.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri
í síma 96-33131 eða 96-33118.
HINAR VINSÆLU VOGIR FRÁ
PRO 7500
ERU KOMNAR AFTUR
Fyrir ávaxtaborð,
kjötborð og fyrir
sjálfsafgreiðslu.
LÆKKAÐ VERÐ
RDKRÁS
RAFEINDATÆKNIÞJÓNUSTA
BlLDSHÖFDA 18 - SlMI 671020
SUMARHUS
LEIÐ TIL AÐ LÁTA
SUMARFRÍIÐ ENDAST
ALLT ÁRIÐ!
Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar hefur um árabil
framleitt glæsileg sumarhús, sett saman úr einingum.
Húsin eru heilsárs hús sem þýðir að mjög er vandað til
einangrunar, samsetningar og alls frágangs.
Sumarhúsin frá Trésmiðju Guðmundar Friðrikssonar
eru á hagstæðara verði en þig grunar.
Hafðu samband við okkur hjá TGF og við sendum
þér bækling með nánari upplýsingum um verð og
kjör.
Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar,
Sólvöllum 8, 350 Grundarfjörður.
Sími: 93-86995.