Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 6. ÁGIJST 1988.
Titíllinn er hápunktur golfarans
- segir nýkrýndur Islandsmeistari í golfi, Sigurður Sigurðsson
„Sigurinn kom mér
skemmtilega á óvart en ég
hef aldrei leikiö betur en síð-
ustu vikur,“ sagði nýbakaður
íslandsmeistari í golfl, Sigurð-
ur Sigurösson, í samtali við D V. \
Um síöustu helgi var keppt um
íslandsmeistaratitilinn í golfi í \
Grafarholtinu og má með sanni
segja að Sigurður hafi komið, séð '\
ogsigrað.
Hannnáðiforystunniáöðrumdegi \
keppninnareðaeftir36holur. Foryst- \ v
unni hélt hann svo og sigraði reyndar
með yfirburðum, átti sex högg á næsta
mann og varð sjö höggum á undan Úlfari
Jónssyni íslandsmeistaranum tvö síöustu
ár. 1
Aðspurður segist Sigurður hafa veriö far-
inn að dreyma um þennan titil síðustu fjögur- \
fimm árin og að hann sé vissulega hápunktur
hvers golfara.
Sigurður fékk þessa alræmdu golfbakteríu í
gegnum föður sinn, Sigurð Albertsson, og hefur
ieikið golf frá níu ára aldri.
Hann er 25 ára gamall Keflvíkingur og hefur Leir-
an, golfvöllurinn í Keflavík, verið hans annað heim-
ili á sumrin, líkt og margra golfara.
„Ég fór snemma með pabba út á völl og svo byrjaði
maður bara að vera með og hefur ekki hætt síðan. Sigur-
inn er mér mikil hvatning og nú er stefnt enn hærra. \
Að vísu hefur migjiú htiö dreymt um að gerast atvinnu- •
maður erlendis eða þvílíkt. En mér hefur tekist að ná leik-
forgjöfinni 1 og stefni á að gera betur og komast niður í
núll. Það er næsta takmarkið. Maður má ekki ofmetnast
heldur halda áfram að æfa stíft og meira en ég hef gert hing-
að til. Svo bara vonast ég til að ég verði enn stérkari og takist .
að halda titlinum þegar að því kernur." \
Sigurður starfar í íþróttahúsi Keflavíkur og segist hafa mikinn V
áhuga á íþróttum. Hann stundar þó sjálfur lítið annað en golfið
en segist bregða sér annaö slagið í fótbolta og badminton. I vetur
hyggst hann æfa meira golf innanhúss enda segir hann það vera
mikið atriði að halda sér í formi árið um kring. Golftímabilið er of
stutt til að byrja það á því aö koma sér í form. •
Eftir langa og stranga keppni um verslunarmannahelgina og sætan
sigur hvíldi Sigurður sig aðeins í tvo daga frá golfinu. Á þriðja degi var
hann svo mættur í Leiruna til aö taka þátt í innanfélagsmóti.
„Nei, það þýðir ekkert aö slaka á í þessu,“ segir hann en framundan
er meira goíf og Norðurlandamót sem halda á heimavelh hans, Leirunni,
síðar í mánuðinum.
Sigurður er ókvæntur en hann á unnustu sem heitir Melkorka Sigurðar-
Sigurður Sigurðsson Islands-
meistari i golfi 1988. Hann er
25 ára gamall Keflvíkingur og
starfar í íþróttahúsinu þar i bæ.
Golfbakteriuna fékk hann á
unga aldri í arf frá fööur sínum,
Sigurði Albertssyni, sem hefur
verið í hópi fremstu golfara
hérlendis. íslandsmeistarinn
nýkrýndi stefnir enn hærra á
golfvellinum og segir sigurinn
mikla hvatningu fyrir sig. Hér
veifar hann verðlaunagripun-
um rétt eftir afhendingu þeirra. .
DV-mynd GVA
dóttir. Segir hann aö hún sé nú ekki farin aö leika golf en fylgist grannt
með. Svo er aldrei að vita hvenær bakterían nær tökum á henni.
En fyrir utan að vinna í íþróttahúsinu og æfa golf fyrir næsta sumar
hyggst Sigurður setjast á skólabekk í öldungadeild Fjölbrautaskóla Suður-
nesja í haust. •
Ungur maður á uppleið, Sigurður... -RóG.
Þú ert 2000 krónum ríkari
I hringnum að þessu sinni er ung stúlka sem var að skemmta sér í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgina. Ekki var nóg með að
hún skemmti sjálfri sér heldur hefur hún hér ofan fyrir hópi ungra þarna sem virðast skemmta sér hið besta. Fyrir sönginn og barnapöss-
unina fær hún hér með óvænta gjöf frá DV. Hún er orðin 2000 krónum ríkari og getur vitjað peninganna hér á ritstjórn DV, Þverholti 11.
RóG./DV-mynd KAE
Nýjustu fregnir herma að
Lisa Bonet, sem leikur
Denise í Fyrirmyndarfoð-
ur og Vistaskiptum, eigi
von á bami í nóvember.
Hún mun því fá hvíld frá
sjónvarpsmyndaleik um
nokkurn tíma. Aðdáendur
hennar verða að sætta sig
við að vera án hennar
næstu mánuði en framleið-
endum Fyrirmyndaríoður
og Vistaskipta þótti ekki
við hæfi að ung, ógift
menntaskólastúlka yrði
með bumbuna út í loftið.
En því miður fylgir ekki
sögunnihverséfaðirinn...
Allt gera menn nú til að
græða. Og allt gera menn
tii að notfæra sér nýfengið
nafn eða frægð. Patrick
Swayze, sem sló eftir-
minnilega í gegn í mynd-
inni Dirty Dancing, hyggst
nú galvaskur nota sér orð-
sporið sem fer af honum á
dansgólfmu. En hann þótti
sýna geysigóða danstakta í
myndinni og ekki sakar að
hann þótti kynþokkafullur
með afbrigðum. Þessa dag-
ana stendur Patrick í
ströngu við að koma á
stofn eigin dansskólum í
fimm stórborgum Banda-
ríkjanna. Allt bendir til að
dansglaðar stúlkur muni
streyma í skólana en
kannski gleyma þær að
goðið getur aldrei verið á
fimm stöðum í einu...
Kvikmyndaframleiðand-
inn Steven Spielberg getur
nú státað af að eiga sund-
laug á toppi 20 hæða bygg-
ingar. Kappinn á lúxus-
íbúð í Trump Tower í New
York, líkt og fleiri góðar
stjörnur, þar sem hann
dvelst þegar hann kemur
til stórborgarinnar. Og nú
hefur hann látið byggja og
koma fyrir stærðarsund-
laug á toppnum. Fram-
kvæmdirnar kostuðu víst
eitthvað um 250 milljónir
en hvað má ekki borga fyr-
ir að geta fengið sér sund-
sprettmeðútsýni?..