Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Blaðsíða 60
p ""f"
T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
Gönguga^urmn:
Bæði gott og
slæmt að
göngunni lýkur
- gangan 623 kílómetra löng
„Ég hírðist í hripleku kofaræksni
undir jökulröndinni í nótt. Það hefur
blásiö hressilega hér og rignt en þó
fer ekki hjá því að ég hafi fundið
kraftinn frá Jökli/‘ sagöi Leifur Le-
opoldsson göngugarpur við DV í
gærdag.
Leifur hafði þá dvahð við jökul-
röndina síðan í fyrradag. Ætlaði
hann að ganga niður aö Sandhelli í
gærkvöldi en hann hggur miðja vegu
milli Jökuls og Arnarstapa. Á Leifur
að vera við Arnarstapa um hádegis-
bil í dag þar sem hann kemur beint
á Snæfellsásshátíð Þrídrangs.
- Hvernig er að vera kominn á leið-
arenda?
„Þaö er bæði gott og slæmt. Það er
ágætt aö þessu er lokið en mér þykir
verra að þuirfa að fara að takast á
við streitu borgarinnar á ný. Annars
er ég hinn hressasti og hef gengið
nákvæmlega 613 kílómetra. Gangan
er því í allt 623 kílómetrar miöað við
þá 560 sem áætlaðir voru í upphafí."
Leifur sagði að þó göngunni lyki
héldi söfnunin fyrir Krýsuvíkurskól-
ann áfram. Hann yrði ekki opnaður
• fyrr en allt væri tilbúið.
-hlh
íslendingar stein-
lágu fyrir Rússum
Sovétmenn sigruðu íslendinga í
gær í handknattleik með 32 mörkum
gegn 24. Staðan í hálfleik var 16 mörk
gegn 12, Sovétmönnum í vil. Jafn-
ræði var með liðunum í fyrri hálf-
leik. Sovétmenn náðu góðum kafla í
lok fyrri hálfleiks og höfðu fjögur
mörk yfir.
íslendingar tóku góðan kipp í upp-
hafi síðari hálfleiks og jöfnuöu, 16-16.
‘Jafnt var síðan, 18-18, en eftir það
var um algera einstefnu af hálfu
Rússa að ræða. Alfreð Gíslason var
markahæstur íslensku leikmann-
anna.
RR
SÍMAPJÓNUSTA
62 42 42
Sjúkrabíli 11100 Lögreglan 11166
Slökkviliðið 11100 Læknavakt 21230
LOKI
Töpuðu okkar menn
ekki viljandi?
Kom skaðbrenndur á höndum og andliti á slysadeild Borgarspítalans:
Bundið um hendur, sagt að
koma aftur eftir 10 daga
- lagði sig sjálfur inn á lýtalækningadeild Landspítalans
„Ég kom á slysadeild Borgarspít-
alans á laugardagskvöld með djúp-
an annars stigs bruna á höndum
og fyrsta stigs bruna í andhti. Leit
ég vægast sagt iha út. Á slysadeild
var bundið um hendurnar á mér,
Sveinn Lárus Gunnarsson. Hann brann illa á handleggjum og i andliti
en var sendur heim með annars stigs bruna og óhreinsað andlit.
DV-mynd KAE
andlitinu í engu sinnt og mér sagt
að koma aftur eftir 10 daga,“ sagði
Sveinn Lárus Gunnarsson, rúm-
lega þrítugur Reykvíkingur sem
brann iUa í tjaldi um verslunar-
mannahelgina, í samtali við DV.
Var hann þá staddur á lýtalækn-
ingadeUd Landspítalans þar sem
hann lagði sig sjálfur inn á mið-
vikudag.
„Ég var að skipta um gaskút á
primus inni í tjaldi þegar kviknaði
í gaskútnum. Það vhl leka eihtið
gas þegar maður skiptir um kút og
þar sem kveikt var á öðrum prímus
í tjaldinu varð aUt í einu mikil eld-
sprenging. Náðist að sparka hinum
brennandi gaskút út úr tjaldinu og
sprakk hann rétt á eftir.“
„Ég kom á slysavarðstofuna um
miðnætti á laugardag. Þar var
bundið um sárin á höndunum á
mér en ekki gert neitt að andlitinu
sem leit iUa út. Að því loknu var
mér sagt að ég gæti farið og komið
í skoðun 10 dögum seinna. Átti þá
að skipta á umbúðunum á höndun-
um en ekki sinna andlitinu á nokk-
urn hátt. Á mánudaginn var ég
orðinn ansi slæmur í höndunum
og andlitinu. Sárin héldu áfram að
bólgna og andlitið að flagna.“
Á mánudag segist Sveinn hafa
farið aftur á slysadeild Borgarspít-
alans og viljað tala við lækni. Þar
voru engir læknar sem vildu tala
við hann. Var honum bent á kandí-
dat sem skrifaði upp á eitthvert
smyrsl.
„Ég vUdi ná í einhvern lækni sem
gæti lagt mig inn. Daginn eftir
reyndi ég árangurslaust aö ná í
heimilislækninn minn. Fór ég loks
niður á Landspítala með bróður
mínum. Þegar þangað kom fór ég
upp á lýtalækningadeildina sem ég
er á núna. Hér var ég tekinn og
lagður inn eins og skot. Fólkiö
hérna sá strax að ekki var aUt með
feUdu. Það virtist hafa beðið eftir
mér á laugardagskvöldið en slysa-
deild sendi mig einfaldlega heim.
Þetta voru furðuleg mistök sem
skrifast verða á slysadeildina."
Segir Sveinn að starfsfólk á lýta-
lækningadeild Landspítalans hafi
gert allt til að græöa sár hans. Fór
hann í aðgerð á fimmtudag þar sem
andlit og hendur voru hreinsuö.
„Andhtið virðist ætla að sleppa
sæmilega en það þarf að græða
skinn á hendurnar. Verð ég þá lík-
lega settur í einangrun í dag. Ætli
ég verði ekki hérna í 10 daga í við-
bót.“
-hlh
Læknir á slysadeild:
Vanir að leggja fólk inn með mikil brunasár
„Yfirleitt verða sár eftir fyrsta stigs
bruna ljót að sjá en það grær vel
undir þessu. Það er yfirleitt ekki
búið um bruna í andliti. Ef þetta
er einhver meiriháttar bruni erum
við vanir að leggja fólk inn. En þó
þetta séu djúpir, annars stigs brun-
ar eru skiptar skoðanir um með-
ferð þeirra. Víða erlendis er farið
að meðhöndla slík brunasár
hálfopin. Ef bruni hefur orðið á
höndum er fólk sett í sérstaka
hanska sem það skiptir um sjálft.
Þetta er lenska í Danmörku þar
sem brunameðferð hefur náð einna
lengst á Norðurlöndum," sagði
Stefán Carlsson, læknir á slysa-
deild Borgarspítalans, við DV.
Hann gat ekki tjáð sig um tilfelli
Sveins Lárusar þar sem hann hafði
ekki kynnt sér það sérstaklega.
-hlh
Veðriö á sunnudag og mánudag:
Skúrir sunnanlands
Á sunnudaginn veröur austan- og suöaustanátt með rigningu um mestallt landið, minnst þó í innsveitum fyrir noröan. Hiti verður 9 til 12 stig syðra
en allt að 17 stig á norðanverðu landinu.
Á mánudaginn má búast við sunnan- og suðaustanátt með skúrum um sunnanvert landið en bjartviðri fyrir norðan. Hiti verður þar allt að 20 stig en 9
til 13 stig um landið sunnanvert.