Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
Blessaó álið
Reykjavík 1. ágúst.
Kæri vin
Þá er verslunarmannahelgin að
enda og gestir útihátíða að láta
renna af sér í eigin kojum eftir átök
helgarinnar. Forseti íslands var
settur inn í embætti á nýjan leik í
dag við hátíðlega athöfn. Viðstadd-
ir skörtuðu sínu fínasta ..ussi með
undantekningum þó. Samkvæmt
frásögn Stjörnunnar skáru við-
staddir blaða- og fréttamenn sig
mjög úr hvað klæðaburð snerti og
var ekki annaö að skilja á Stjörn-
unni en fjölmiölafólk hafi nánast
veriö tötrum klætt þarna í Aiþing-
ishúsinu. Það er þá ekki í fyrsta
sinn sem fjölmiðlafólk mætir í fjó-
sagallanum við opinberar athafnir,
hvaða tilgangi sem þaö á nú að
þjóna. En sem betur fer eru ekki
allir úr stéttinni undir sömu sök
seldir hvað þetta varðar. Eins og
ég sagði þér í síðasta bréfi ákvaö
Ebba frænka að skella sér til Osló-
ar á kvennafundinn mikla. Hún
flaug utan á fostudagsmorgun og
hringdi svo tii min í gær. Bað mig
að fara heim til sín og athuga hvort
hún hefði nokkuð skilið efir opna
glugga. Ég notaði tækifærið og
spurði hvernig gengi en hún sagði
að það væri ekkert að marka enn-
þá. Gat þess samt að hún hefði ekki
enn komist í búðir og svo fussaði
hún eitthvað yfir því að konumar
frá íslandi hefðu keypt bjór í kassa-
vís í fríhöfninni á Keflavíkurvelli
og haft með sér út. Sjálf heföi hún
nú bara keypt sér eina sérríflösku,
enda væri bjór ekki drykkur fyrir
dannaðar konur, eins og hún komst
að orði. Þá var hún eitthvað að
kvarta yfir því aö stjómmálaflokk-
amir væm þama með kynningar-
bása og spgðist ekki skilja í konum
að nenna að standa i pólitísku trú-
boði á svona samkomu þar sem
allar konur ættu að standa saman.
Þaö væri svo kallalegt að vera að
þrefa um stjómmál. Ég sagðist ekki
trúa því að margar nenntu að
sperra sig í pólitík þessa Oslóar-
daga enda hefði mér skilist aö póli-
tík og kvennapólitík ættu ekkert
sameiginlegt. Ebba var á sama
máli og eftir aö hafa kvartað
nokkra stund yfir því áð hafa
gleymt rauða hárburstanum sínum
heima kvaddi hún með þeim orðum
að þetta hangs dygði ekki lengur
því nú ætluðu grænlenskar konur
að sýna atriði úr ballettinum Rost-
ungstönninni. Já, það gengur á
ýmsu þama úti í Osló þessa dag-
ana. Nú, sitthvað er að ske hér
heima líka. Til dæmis hefur verið
fluttur inn sirkus frá Spáni til að
skemmta börnum. Þaö er ekki
nema sjálfsagt að blessuð bömin
fái smjörþef af sirkuslífi áður en
þau komast á legg og fara að taka
þátt í sirkuslífi þjóðfélagsins á
Sæmundur Guðvinsson
fiUlu. Raunar gef ég lítið fyrir
svona farandsirkusa eftir að hafa
séð alvörusirkusa í útlöndum þótt
enginn þeirra hafi slegið íslenska
þjóðarsirkusinn út. Á sama tíma
og við grenjum okkur hás út af
drápsklyfjum hávaxta og matar-
skatta kaupum við áfengi fyrir
hundrað milljónir fyrir verslunar-
mannahelgina og borgum aörar
hundrað milljónir í aðgangseyri að
svokölluðum útihátíðum þá sömu
helgi. Við keyrum nokkurra ára
gamla böa á öskuhaugana og skilj-
um þá þar eftir til að rýma fyrir
nýja bílnum á hlaðinu. Búist er við
að hundraö og fimmtíu þúsund
manns bregði sér í skemmtiferð til
útlanda í ár og við kaupum skrap-
miða fyrir tugi milljóna á mánuði
í þeirri von að vinna eina gosfl-
ösku. Okkur kemur það ekki við
hvort frystihúsin eru á hausnum
eða ekki, enda sóðavinna að atast
í fiski alla daga og því sjálfsagt að
ráða útlendinga í svoleiðis skít-
verk. Og ef eitthvað harðnar á
dalnum þá sláum við bara meiri lán
í útlöndum og höldum dansinum
áfram. svona tökum við nú lífinu
létt hér á Fróni, skal ég segja þér,
þótt landlæknir haldi því raunar
fram að undir niðri séum við öll
að drepast úr stressi. En maðurinn
verður þó að skilja þaö að ham-
ingjuleitin getur verið stressandi á
köflum. Það kostar klof að ríða röft-
um eins og þar stendur. Þess vegna
er nú ráð að halla sér enn frekar
að álinu sem bjargvætti þjóðarinn-
ar ef fiskurinn skyldi bregðast einn
góðan veðurdag. Þegar álveriö í
Straumsvík var byggt á sínum tíma
var mikið rætt um hvílík lyftistöng
álið yrði fyrir innlendan iðnaö.
Sérstaklega smáiðnað af ýmsu tagi.
Manni skildist að annar hver mað-
ur færi að búa til koppa og kimur
úr álinu góða frá Straumsvík og
pródúktið átti svo að selja dýrum
dómum út um veröld alla. Af ein-
hverjum ástæðum hefur orðið
óskiljanlegur dráttur á aö þessi
heimilisiðnaður kæmist á laggim-
ar þótt þetta liti svo vel út á papp-
ímum. En nú er rætt um að drita
niður nokkrum álvemm til við-
bótar og því mjög haldið á lofti að
þama gefist einstakt tækifæri fyrir
hagleiksmenn að hefja framleiðslu
á litlum, faUegum álgripum úr nýju
fabrikkunum. Ég er alvarlega að
hugsa um að láta gera mót af dokt-
or Norðdal í smækkaðri mynd og
hefja svo stórframleiðslu á litlum
álstyttum af ftianninum þegar álið
byrjar að renna úr nýju verksmiðj-
unum. Ekki er vafi á að þetta renn-
ur út jafnt innanlands sem utan.
Vélsmiðjur gætu svo féngið leyfi
hjá mér, gegn nokkm gjaldi, að
steypa Norðdal í stærri einingum
og mætti koma þeim styttum fyrir
við helstu ár og fallvötn landsins
með áletruninni: Þetta er maður-
inn sem gaf okkur álið. Kannski
að það verði þá aftur farið að búa
til álkrónur, þú manst þessar sem
flutu á vatni. En það var af skiljan-
legum ástæðum hætt að nota þess-
ar flotkrónur þegar ákveðið var að
hætta að láta gengi fljóta og það
sett fast í staðinn, milli þess sem
það er fellt. Annars skilst mér að
fræðingar íhugi nú hvort við eigum
ekki að binda gjaldmiðil okkar við
eitthvað sem kallast Evrópugjald-
miðill. Sumir telja að þama sé
komin lausn á öllum okkar efna-
hagsvanda fyrr og síðar og auðvit-
að trúi ég þessu eins og nýju neti
sem alltaf fyrr þegar komiö er með
patentlausnir á þessum margróm-
aða efnahagsvanda. En nú ertu
eflaust búinn að fá nóg af svona
vangaveltum og ég biö þig vel að
lifa í bili.
Sæmundur
ERÞAÐ 1EÐAXEÐA2
14
Skáldsagan Vögguvísa kom út áriö 1950 ógfjallaði um lífið
A í Reykjayík á þeim tíma. Höfundurinn heitir:
1: JónÓskar
X: ElíasMar
2: Kristmann Guðmundsson
B Fyrsta íslenska talmyndin hét milli Fjalls og fjöru. Sá sem
tók myndina og skrifaði handritið heitir:
1: Loftur Guðmundsson
X: Ósvald Knudsen
2: ÓskarGíslason
Þetta merki ætti mörgum að vera kunnugt enda tengist það:
F 1: Bátavélum
X: Handverkfærum
2: Dráttarvélum
Árið 1948 vann Baldur Möller það ágæta afrek að verða
Norðurlandameistari í:
1: Tennis
X: Skák
2: Maraþonhlaupi
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið niður réttar lausn-
ir og sendið okkur þær á svar-
seðlinum. Skilafrestur er 10
dagar. Að þeim tíma liðnum
drögum við úr réttum lausnum
og veitum þrenn verðlaun, öll
frá Póstversluninni Primu í
Hafnarfirði. Þau eru:
1. Töskusett, kr. 6.250,-
2. Vasadiskó og reiknitölva, kr.
2.100,-
3. Skærasett, kr. 1.560,-
c
Þetta fínlega merki gæti tengst postulíni
eða einhveiju þess háttar, en er reyndar
merki:
1: HótelEsju
X: HótelBorgar
2: HótelArkar
D Hann heitir Alan Garcia og er forseti í einu ríkja S-
Ameríku, nánar tiltekið:
1: Perú
X: Chile
2: Argentínu
H Fyrsta millilandaflugvél okkar, fjögurra hreyfla Skymast-
er,hlautnafnið:
1: Saga
X: Hekla
2: Gullfaxi
Sendandi
P Hann heitir Ásgeir Elíasson, kunnur íþróttamaður og þjálf-
ari. Hann þjálfar nú 1. deildar hð í knattspyrnu, nánar til-
tekið:
1: Val
X: ÍA
2: Fram
Heimili
Rétt svar: A 1 1 B □ C □ D □
E □ F □ G □ H □
í Öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýjar spumingar koma í næsta
helgarblaði.
Merkiö umslagið: 1 eða x eða
2, c/o DV, pósthólf5380,125
Reykjavík.
Vinningshafar fyrir 1 eða X eða
2 í tólftu getraun reyndust vera:
Regína Vigfúsdóttir, Skálagerði
6,600 Akureyri (töskusett);
Brynhildur Skeggjadóttir, Safa-
mýri 48,108 Reykjavík (vasa-
diskó og reiknitölva); Hinrik
Ingi Árnason, Njörvasundi 9,104
Reykjavík (skærasett).
Vinningarnir verða sendir
heim.
Rétt lasusn var: X-X-l-2-X-l-
2-X