Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
Norræna kvennaráðstefnan í Osló:
í slenskar konur áberandi
Því eru nær engin takmörk sett
hvaö hægt er aö sjá og heyra á nor-
rænu kvennaráðstefnunni. Á annað
þúsund fyrirlestrar og mörg hundr-
uö atriði á menningar- og skemmti-
dagskrá er meira en nokkur kona
getur meðtekið á einni viku, jafnvel
þótt konur séu vanar að sinna mörg-
um störfum í einu. Auðvitað er ætl-
ast til að konurnar velji og hafni en
áhuginn fyrir mörgum fundunum og
fyrirlestrunum er svo mikill að færri
komast að en vilja.
DV spurði nokkrar konur og
reyndar einn karlmann hka hvað
þau hefðu að segja um ráðstefnuna.
„Mér finnst eftirtektarvert hvað það
ber mikið á íslensku konunum. ís-
lenskan heyrist alls staöar og kon-
umar frá hinum þjóðunum eru
langtum minna áberandi. Heima var
áhuginn svo mikill en héma virðast
margar konur ekki hafa heyrt um
ráðstefnuna," segir Birna Stefáns-
dóttir úr Kópavogi.
Og Helga Jóna Þorkelsdóttir frá
Egilsstöðum getur staöfest þetta því
norskar vinkonur hennar vissu ekki
aö ráðstefnan væri fyrr en þær fréttu
það frá íslandi.
„Þetta hlýtur að hafa verið eitthvað
illa auglýst hérna því áhuginn er
mikill þegar konurnar fá aö vita hvaö
um er að vera,“ segja Helga Jóna og
Birna. „En það virðist hafa vantað
þessa vakningu í stærri löndunum
sem átti sér stað heima. Miðað við
höfðatölu eru færeysku konurnar
flestar en ísland er í öðm sæti.“
„Ráðstefnan hefur verið mjög
áhugaverð og ég hef komist á færri
fyrirlestra en ég hefði viljað. Einn
helsti galhnn er að margir sahrnir
eru alltof htlir. Maður verður aö
tryggja sér sæti snemma og oft er
orðið svo troðið að fólk kemst ekki
inn,“ segir Birna. Meðal áhuga-
verðra fyrirlestra á ráöstefnunni
nefna Helga Jóna og Birna dagskrá
frá hagstofu Norðurlanda þar sem
borinn er saman hagur kvenna á
ýmsum sviðum.
„Mest sláandi var að sjá hvernig
jaðarþjóðirnar, sérstaklega Færeyjar
og Grænland hafa orðið útundan.
Þaðan vantaði oftast allan saman-
burð vegna þess að rannsóknir höfðu
aldrei verið gerðar. En það var gam-
an að sjá hve handavinnan frá þess-
um þjóðum var falleg og vakti mikla
athygli,“ segja Helga Jóna og Birna.
/ •Sf k*M 1' ^ J
, f ; fw ■ rt
Leikhópurinn Perlan er skipaður hressu fólki frá Bjarkarási. Þau sýndu tvö leikrit á ráóstefnunni í Osló við góðar undirtektir. Og þau eru sjálf yfir sig hrifin
af Oslóborg.
Ekki bara einkamál kvenna
sem eru rædd á ráðstefnunni
Norska fjölskyldan, Halldis Va-
lestran, Bard Jörgensen og sonur
þeirra Anders, kom frá Tromsö í
Norður-Noregi. Bard hefur sótt ýmsa
fyrirlestra þegar hann hefur ekki
verið að passa Anders og honum
finnst að fleiri karlar hefðu mátt láta
sjá sig á ráðstefnunni.
„Hér er svo margt sem karlmenn
gætu lært af. Málefnin á ráðstefn-
unni eru ekki einkamál kvenna. Sem
dæmi má nefna uppeldismái, friðar-
mál og umhverfisvernd. Konurnar
eru að reyna að flnna nýjar lausnir
á gömlum vandamálum, því verða
karlmennirnir að sýna meiri áhuga
og skilning," segir Borg Jörgensen.
„í Tromsö hefur undirbúnings-
nefnd fyrir ráðstefnuna unnið í
marga mánuði en ég held að.almenn-
ingur í Tromsö hafi ekkert vitað hvað
stóð til,“ segir Halldis.
Og svo þarf líka að njóta góða veð-
ursins þegar það er og kannski nota
tækifærið og skoða sig aðeins um í
nýju landi og skoða lífið utan ráð-
stefnunnar.
íslensku konurnar hafa fariö í ein-
hver ferðalög, gjarnan rútuferðir út
úr bænum eða litið á götulífið á Karl
Johan í Osló. Um þessar mundir er
líka jasshátíð í Osló.
„Það er alveg 'yndislegt að vera
hérna. Ferðafélagarnir eru góðir og
hótelið er líka gott. í gær fórum við
í ferðalag til Fridriksstad sem er fall-
egur bær og minnti mig á æskustööv-
ar mínar,“ segir Hulda Stefánsdóttir
sem ættuð er frá Seyðisfirði en býr
í Reykjavík.
Það var troðfullt hús og mikil
stemmning þegar leikhópurinn Perl-
an lék leikritin Síöasta blómið eftir
James Phurber og Sóhna og vindinn
sem er frumsamið, en hópurinn lék
fyrir troðfullu húsi á kvennaráð-
stefnunni
Perlan er leikhópur þroskaheftra
barna frá Bjarkarási og það var Sig-
ríður Eyþórsdóttir sem stjómaði
leiknum. Leikgleðin skein af börnun-
um og hreif með sér áhorfendur.
Hildur Óskarsdóttir, sem lék sóhna
í frumsamda leikritinu, var mjög
ánægð með móttökurnar og fannst
mjög gaman aö vera í Osló með öllum
krökkunum.
En við fengum varla tíma til að
talast viö því það komu svo margar
útlendar konur og vildu þakka Hildi
fyrir skemmtunina. En hún náði
samt aö biðja fyrir kveðju til allra
heima.
Pétur Johnsen er blaðafulltrúi
Perlunnar og segir að blöðin megi
hringja í sig í sambýlið að Auðar-
stræti 15 þegar hann er kominn aftur
heim til Reykjavíkur og þá geti hann
sagt þeim alla söguna.
Líflegar
uppákomur
hjá konunum
Eins og sjá má á þessum myndum
nota konurnar 7000, sem sækja nor-
rænu kvennaráðstefnuna í Osló, hin-
ar ýmsu og ólíklegustu aðferðir við
að vekja athygli á sér og sínum mál-
stað. Og enginn þarf að verða svang-
ur. Konurnar sjá auðvitað líka fyrir
því eins og þeirra er gjarnan háttur.
Sumum virðist hafa tekist erfiðlega
að rífa sig úr'eldhúsverkunum og
hafa tekið til við eldamennskuna
þótt á kvennaráðstefnu séu komnar.
Grilluðu pylsurnar gerðu líka þessa
ljómandi lukku.
-RóG./DV-myndir Herbert Szoschke
/NOIVC4P
120 lítra kælir með
frystihólfi. Hæð 85,
breidd 47, dýpt 60.
Verð 15.591,- stgr.
Skipholti 7, sími 26800.
IffiUR
Legur í miklu úrvali.
Einnig ryöfríar legur.
Góö þjónusta.
BÍLLINN
Skeifunni 5 S 688510
/NOIVC4P
-
280 lítra kælir
frystihólfi. Hæð 143,
breidd 57, dýpt 60.
Verð 23.468,- stgr.
Skipholti 7, sími 26800.
fiDjRT
Boddívarahlutir
Driföxlar - Drifliðir
Vatnskassar-Bílrúöur
BÍLLINN
Skeifunni 5 “S* 688510