Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Qupperneq 25
LAUGAKDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
25
Breiðsíðan
DV-myndbrot
vikiinnar
' Jú, jú, þetta er fótboltastjarna
- og reyndar í miðjum fót-
boltaleik. Þótt hátt grasið nái
honum næstum upp í mitti er
spennan samt í hámarki. En
í hita leiksins getur margt
gerst sem ekki var gert ráð
fyrir og oft þarf að bregða út
af því hefðbundna. Þessi er
nú bara að redda sínum
mönnum og boltanum til að
leikur geti haldið áfram - og
þurfti víst að sýiia talsverð til-
þrif til að ná knettinum sem
hafði verið sparkað svo ræki-
lega út af annars snöggslegn-
um fótboltavellinum. Augna-
blik og Árvakur slógust um
að skora mörkin í þessum
leik.
-RóG./DV-mynd EJ
Nýkomin úr „syngjandi" heimsreisu
„Þetta var mikil upplifun, allt svo
ólíkt því sem maður á að venjast
hérna heima,“ sagði Bára Þorgeirs-
dóttir, 16 ára gamall heimshorna-
flakkari, í spjalli við DV. Bára er í
Öldutúnsskólakórnum og var að
koma úr heljarmikilli reisu með hon-
um. Kórinn fór alla leið til Hong
Kong, Thailands og Ástralíu til að
taka þátt í kóramótum.
Það er ekki á hverjum degi sem
unglingum gefst færi á að skoða sig
um á stöðum sem þessum enda sagði
Bára að ferðin hefði alveg veriö
Bóra Þorgeirsdóttir, nýkomin úr heimsreisu meó öldutúnsskólakórnum.
Meðal viðkomustaða var Hong Kong þar sem hún varð sér úti um ekta
kínverskan hatt og blævæng. DV-mynd JAK
„meiri háttar". Tuttugu ungar stúlk-
ur úr Hafnarfirði fóru í ferðina í fylgd
kórstjórans, Egiis Friðleifssonar.
„Ég fékk mest út úr því að koma
til Hong Kong. Fólksfjöldinn er ótrú-
lega mikill, götumar eru alveg troðn-
ar af fólki og allt er svo ólíkt því sem
maður hefur séð. Þaö er skrýtiö að
sjá húsakynni fólks. Öðrum megin
götunnar eru kannski glæsileg, stór
hús sem fólk býr í en hinum megin
er búið í hreysum. En maturinn
fannst mér vondur, hrísgrjón og aft-
ur hrísgTjón. Okkur stelpunum lík-
aði ekki kínamaturinn en Agh þótti
hann góður,“ sagði Bára.
Það tók langan tíma að komast til
fyrsta viðkomustaðarins, Hong
Kong. Frá Keflavík var flogið til Lon-
don og þaðan í 18 tíma til Hong Kong.
Svipaðan tíma tók ferðin þaðan tii
Ástralíu og sagði Bára að flugið hefði
verið mjög þreytandi.
„Fyrir utan Færeyjaferð, sem ég
fór meö kórnum í fyrra, þá hafði ég
aldrei fariö til útlanda, þannig að
viöbrigðin voru mikil. En í augna-
blikinu hef ég fengið mig fullsadda
af flugvélum. Ferðin heim tók 36
tima. Þá flugurn við frá Thailandi til
Amsterdam, biðum þar í nokkra
tíma á flugvellinum og tókum vél til
London. Á Heathrow þurftum við svo
að bíða í 6 klukkutíma."
Bára segir að kórnum hafi verið
vel tekiö á þeim stöðum þar sem
hann söng. Þeim hafi verið sýndir
margir skemmtilegir staðir og hefði
tíminn verið notaður óspart til að
skoða athyglisveröa hluti og staði.
Veðrið.var mjög gott. í Kína og
Thailandi var steikjandi hiti en í
Ástralíu er vetur um þetta leyti. Þýð-
ir það að hitinn var svipaður og hér
á landi nú, eða svona 10-15 gráður.
En eftir ævintýralega ferð á fram-
andi slóðir tekur hversdagleikinn við
og hefur Bára hafið störf á nýjan leik
í frystihúsinu Hvaleyri í Hafnarfirði,
þar sem hún vinnur í sumar. Hún
kláraði níunda bekk síðastliðið vor
og hyggst fara í iðnskólann í haust
og nema hárgreiðslu - með góðar
minningar eftir óvenjulegt sumar.
-RóG.
Margir söknuðu Ólínu þegar hún hvarf af skjánum i nokkurra mánaða fri
um siðustu áramót. En nú er hún komin aftur og segist alsæl með að vera
komin aftur á gamla vinnustaöinn. DV-mynd GVA
Ólína Þorvaröardóttir, fréttamaður Sjónvarpsins
„Ég varekki í fæðingarorlofi"
„Það er afskaplega gott að vera
komin aftur á minn gamla vinnu-
stað,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir,
fréttamaður Sjónvarpsins, í samtali
viðDV.
Eins og þjóðinni er kunnugt hvarf
Ólína af skjánum fyrir nokkrum
mánuðum en hefur nú birst okkur á
nýjan leik, hressileg að vanda.
„Ég var orðin dálítið þreytt á að
vera alltaf frammi fyrir alþjóð og
mig langaði til að breyta aðeins til.
Því fékk ég nokkurra mánaða frí frá
störfum. Frænka mín, hún Herdís
Þorgeirsdóttir, ritstjóri Heimsmynd-
ar, var um þettá leyti að fara að eiga
barn og vantaði manneskju til að rit-
stýra blaðinu með sér. Og úr varð
að ég tók þátt í því í nokkra mánuði."
„Ég hef nú unnið á blaði áður en
tímaritavinnan var mjög skapandi
og skemmtileg. En eins og ég segi þá
er ég alsæl að vera komin aftur á
Sjónvarpið. Andrúmsloftið er orðið
gott aftur eftir dálítið erfiða tíma og
er mikill áhugi í mönnum. Mér finnst
ákveðinn ferskur blær setja svip sinn
á fréttstofuna núna. Enda fylgja nýir
straumar nýjum mönnum."
Ólína á fjögur böm og aðspurð seg-
ir hún því vissulega fylgja ákveðná
togstreitu að vinna langan vinnudag
vitandi af öllum börnunum heima.
„Þetta gengur ágætlega enda tekur
maðurinn minn fullan þátt í bama-
uppeldinu. Svo er þetta líka spurning
um skipulagningu og vilja. En hér
með vísa ég á bug sögum um að ég
hafi verið í fæðingarorlofi og eignast
tvibura" segir Ólína.
-RóG.