Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Blaðsíða 31
.8861 TÖÚöÁ .6 ÆLIOAQflAÖUAJ
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
43
Asgeir
Gunnarsson
— Fjölskylda
hans hefur selt
íslendingum
Volvo í 59 ár.
DV-mynd JAK
Mörgum finnst þaö furðulegt að
forstjóri skuli vera að fást yið yrking-
ar en mér finnst það ekki. Ég lít kveð-
skapinn svipuöum augum og skák.
Þetta eru mjög skyld viðfangsefni og
tónlistin og málaralistin líka.
Kannski krefst það einnig sömu
hæfileika að umgangast fólk og
stjóma fyrirtæki?
Ég geri mjög lítið að því að yrkja
óbyndin ljóð en hef gaman af að lesa
góð óbundin ljóð og heyra þau vel
lesin. Ég hef gaman af að tala við
fólk um lífið og tilveruna og spinna
úr lífsins reynslu. Uppáhaldsljóð-
skáldið mitt er Tómas Guðmundsson
en Steinn Steinarr hefur sótt meira
á hin síðari ár.“
Ráðamaður
í eldhúsinu
Ásgeir lætur ekki við það sitja að
yrkja ljóð í tómstundum. Hann segist
líka hafa mikla skemmtum af mat-
seld. „Ég elda oft þegar ég kem heim
úr vinnunni og rek þá konuna úr
eldhúsinu, ekki vegna þess að hún
sé ekki listakokkur, heldur vegna
þess að mér finnst bara svo gaman
að elda,“ segir Ásgeir. „Hún fær aftur
á móti að hugsa meira um útiverkin
í garðinum og þess háttar."
Kona Ásgeirs er Guðlaug Konráðs-
dóttir, meinatæknir, sem hvarf frá
því starfi eftir 20 ár og hóf nám í ís-
lensku við Háskólann. Hún lýkur
BA- prófi um næstu áramót. „Það var
mikil vitamísprauta fyrir mig þegar
hún fór í íslenskuna," segir Ásgeir.
„Ég hef mjög gaman af að fást við
íslenskt mál.
Ég kynntist því líka þegar erfiðleik-
arnir stóðu yfir hjá Velti að ég er vel
kvæntur. Ég vissi það reyndar áður
en ekki að ég væri svo vel kvænhir.
Hún studdi mig vel.“
Dóttir þeirra hjóna er Guðrún Val-
gerður og er „algert íþróttafrík og á
við 10 krakka" að því er faðir hennar
segir. Hún er 16 ára landsliðsmann-
eskja í fótbolta og var með í sigurför
liös síns til Færeyja á dögunum.
„Við foreldrarnir reynum ekki á
nokkurn hátt að draga úr íþróttaá-
huganunum hjá henni. Staðreyndin
er sú að boltamenn eru betri starfs-
kraftar en aðrir,“ segir Ásgeir. „Þeir
verða að taka'ákvarðanir á auga-
bragði og taka afleiðingunum. Ég hef
tekið eftir þessu með þá boltamenn
sem ég hef haft í vinnu. Þeir eru frí-
skari en aörir.
Unglingar í iþróttum hafa líka allt-
af nóg að gera og þá glepur annað
síður. Ég hef svo sem ekkert á móti
því að lagðar séu 300 milljónir í
íþróttahöll þótt þetta geti ekki talist
heppilegir tímar til fjárfestinga."
Fjölskyldan býr í Garðabænum og
Ásgeir kannast ekki við aö vera á
flæðiskeri staddur þrátt fyrir at-
vinnuleysið. „Ég þarf ekkert að ör-
vænta og sé marga möguleika hér.
Ég trúi bara á framtíðina og lífið. Ef
tímarnir eru erfiðir núna þá hlýtur
að vera bjart framundan. Hið góða
hefur alltaf undirtökin og hið illa
tapar alltaf. Það gerist alltaf,“ sagöi
Ásgeir Gunnarsson. -GK