Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
Lífsstm
TÖitwÚf 'H 'Zt/, *«{ >*y 'A •■<>»«>• »\/ XC, W t.
LABACÍ”’
WnJýratesknir Lsráitæknir
Hundaæði er landlægur smitsjúk-
dómur. Sem betur fer hefur hann
ekki enn borist hingað til lands en
ferðamenn eiga á hættu að komast
í snertingu við hann í fjölmörgum
löndum heimsins
Banvænn sjúkdómur:
Hundaæði
Hundaæði er hættulegur sjúk-
dómur sem finnst víðs vegar um
heim. Hann finnst meðal annars í
mörgum löndum Evrópu. Smit berst
í fólk ef það er bitið, klórað eða jafn-
vel sleikt af sýktum dýrum, t.d.
hundum, köttum, refum o.s.frv. Það
borgar sig því að hugsa sig tvisvar
um áður en dýrum er klappað.
Ef feröamenn eru bitnir eða klórað-
ir af einhverri skepnu er vissara að
bregöast rétt við.
★ Þvoið sárið sem fyrst. Notið sápu
og/eða skolið með hreinu vatni. Ef
það er ekki til staðar má nota alkó-
hól eða aðra hreina vökva.
★ Leitið til læknis sem fyrst. Það
getur verið að nauösynlegt að fá
sprautu.
★ Fáið nafn, heimilisfang og síma-
númer eiganda ef gæludýr hefur
valdið sárinu. Fáið honum sömu
upplýsingar um ykkur. Biðjið hann
um að hafa samband ef í ljós kemur
á næstu tveim vikum að dýrið sé
veikt. Komist að því hvort skepnan
hefur fengið sprautur gegn hunda-
æði og fáið að sjá bólusetningarskír-
teinið. Þótt dýrið hafi verið sprautað
er ekki víst að maður sé hólpinn.
★ Skrifið hjá ykkur stað og stund
þegar þið lentuð í þessu, hvaða teg-
und skepnan var og hvort hún var
villt eða ekki.
★ Hafiö samband viö lögreglu ef æst
eða óróleg skepna hefur ráðist á ykk-
ur.
★ Ráðfærið ykkur strax við lækni
þegar heim er komið.
Að vísu er hægt að fá sprautur sem
auka viðnám gegn hundaæði. Slíkt
er þó ekki talið nauðsynlegt hjá al-
mennum ferðamönnum. Þó er athug-
andi að fá þessa sprautu sé fyrir-
hugað að ferðast í langan tíma eða
til staða þar sem læknisþjónusta er
bágborin. Rétt er að taka fram að
þrátt fyrir að sprautað sé gegn
hundaæöi eru allar varúðarráðstaf-
anir nauðsynlegar.
Aðalreglan er auðvitað að forðast
náin samskipti við dýr. Látið til
dæmis ekki bömin klappa hundum
eða köttum sem þau sjá á götunni.
Hundaæði getur verið banvænn
sjúkdómur og allar varúðarráðstaf-
anir eru því af hinu góða.
-EG
Þú vttt ekki míssa L^.
þann stóra -/4
ekki ökuskírteinið heldur! i
Hvert sumar er
margt fólk í sumarleyfi
tekið ölvað við stýrið.
&
Enn geisar aldagamall sjúkdómur:
Mýrarkalda eða malaría
Vissara er að hafa allan vara á ef
ferðast er til landa þar sem malaría
er landlæg.
★ Aflið upplýsingar hjá lækni um
malaríutöflur. í sumum löndum eru
sérstaklega þrálát afbrigði af malariu
og þarf aö athuga hvaða lyf hentar
best.
★ Takið töflumar fyrir, á meðan
og eftir ferðalagið. Haldið áfram að
taka þær í mánuð eftir að heim er
komið. Meðgöngutími sjúkdómsins
getur verið langur. Ferðalangar, sem
ferðast til malaríusvæða, ættu því
að hafa andvara á sér nokkurn tíma
eftir að ferð lýkur.
★ Forðist moskítóbit. Hyljið hand-
leggi og fætur ef farið er út úr húsi
eftir sól'arlag. Sofið í herbergum eða
húsum þar sem flugur komast ekki
inn. Hengið moskítónet yfir rúmið
ef slíkar varnir eru ekki fyrir hendi.
Notið skordýrafælur eða eitur.
. Þessar fyrirbyggjandi aðferðir
ættu að minnka líkurnar á áö fá
malaríu.
-EG.
A mörgum stöðum i Afríku, Asiu, Mið- og Suður-Ameríku er hætta á að fá malaríu af moskítóbiti. Dökku svæðin
á kortinu eru helstu smitsvæði malaríu.
Nokkrir sjúkdómar
Hér verður minnst á nokkra al-
genga sjúkdóma og bólusetningar
gegn þeim.
Gula
í allmörgum löndum heims er kraf-
ist vottorðs sem sýnir að viðkomandi
hafi farið í ónæmissprautun viö gulu.
Sprautun ætti að eiga sér staö minnst
tíu dögum fyrir brottför. Sé rétt geng-
ið frá vottorðinu gildir það í tíu ár.
Smitandi lifrarbólga og taugaveiki
Þeir ferðamenn, sem ferðast til
staða þar sem hreinlæti er af skorn-
um skammti, ættu að íhuga varnir
gegn lifrarbólgu og taugaveiki.
Stífkrampi
Smitleið þessa sjúkdóms er opin
sár. Sé ferðast til staða þar sem að-
gangur að læknaþjónustu er ekki
greiður ætti að athuga möguleikann
á sprautun gegn stífkrampa. Stór
hluti þjóðarinnar hefur verið spraut-
aður við stífkrampa en þó er ástæða
til að athuga hvort ekki sé þörf á
Þöguli böðullinn:
Eyðni
Eyðni er trúlega sá sjúkdómur sem
hefur á síðustu árum fengið mesta
umfjöllun manna á meðal. Samt er
ærin ástæða að minnast enn einu
sinni á eyðni, ekki síst þar sem ís-
lendingar virðast duglegir að sýkjast
erlendis.
Ekki skal hér fjölyrt um sjúk-
dóminn eða þær smitleiðir sem
þekktar eru. Þess í stað verður
minnst á nokkra góða siði í kynferð-
ismálum þegar ferðast er.
★ Eftir þvi sem þú hefur kynmök við
færri aðila þvi minni hætta er á smit-
un.
★ Gleðikonur eru mjög ofarlega á
listanum yfir áhættuhópa. Þeir sem
hafa samfarir við gleðikonur tefla
lífi sínu í tvísýnu þar sem vinnings-
hkur eru sorglega litlar.
★ Ef þú færð rekkjunaut, sem þú
þekkir lítið, er sjálfsögð skynsemi að
nota verjur. Þær draga stórlega úr
hættu á smiti.
Mundu að smitist þú af sjúkdómin-
um eru miklar líkur á að þú smiÆ^
þinn vanalega rekkjunaut þegar
heim er komið.
Eins og flestir þekkja er hægt að
smitast af eyðni með sýktu blóði. í
sumum löndum er blóð, sem notað
er til blóðgjafar, ekki rannsakað meö
tilliti til hugsanlegrar eyðnisýkingar.
Ef nauðsynlegt er að fá blóð á stað
þar sem sjúkdómurinn er tíður reyn-
ið þá að foröast óskoðað blóð úr
manni frá svæðinu. Reynið eftir
mætti að komast h)á því að nota ykk-
ur heilsugæslu og læknisþjónustu -
þar sem hún er bágborin. Reynið að
komast til viðurkenndra lækna eða
stofnana þar sem fullkomins hrein-
lætis er gætt.
-EG
sprautu. Þeir sem komnir eru yfir
fertugt ættu sérstaklega að athuga
hvort þeir hafa verið bólusettir gegn
þessum sjúkdómi.
Mænusótt
Síðan 1960 hefur verið bólusett
gegn mænusótt. Öruggara er þó aö
athuga hvort ónæmi er fyrir hendi
ef ferðast er til landa þar sem mænu-
sóttin er landlæg.
Berklar
Þeir sem fara til langdvalar til
landa þar sem berklar eru algengir
ættu að hafa samband við berkla-
varnir heilbrigðiskerfisins. Venju-
lega eru ferðamenn, sem feröast í
stuttan tíma til þessara svæða, ekki
bólusettir en rétt er að fara í ónæm-
isprufur þegar heim er komið. Best
er að hafa samband viö lækna um
upplýsingar þar að lútandi.
-EG
SMÁAUGLÝSINGAR
Mánudaga - föstudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
Þverholti 11
s: 27022