Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Fíkniefnaneysla á Litla-Hrauni:
Ekki færri en helmingur
fanga stöðugir neytendur
„Það er algjört lágmark að segja
að helmingur fanganna sé stöðugir
fíkniefnaneytendur. Þetta er hrika-
legt ástand. Þess eru dæmi að
óhappafangar, oft ungir menn, komi
á Litla-Hraun án þess aö hafa neytt
fíknilyfia en fari þaðan síðar sem
hundraö prósent neytendur. Þetta er
sorglegt en því miður satt. Ég þekki
mjög vel til þarna og þykir tími til
kominn að rætt verði um þessi mál
og ekki síður að á þeim verði tekið,"
sagði heimildarmaður DV sem þekk-
ir mjög vel til á Litla-Hrauni.
Þessi sami maður sagði að sér
blöskraði að sjá að menn, sem starfað
hafa meðal fanga í mörg ár, neita
þessum staðreyndum.
„Þeir sem segja nei við þessu í blöð-
um hafa rætt þessi mál opinskátt á
öðrum vettvangi. Það er vitaö mál
að á Litla-Hrauni er sú hugsun ríkj-
andi aö á meðan nóg er til af fíknilyfj-
um og töflum er þar rólegra og minna
að gera. Ég trúi ekki að þeir í ráðu-
neytinu geri sér grein fyrir hversu
alvarlegt vandamál þetta er. í DV var
sagt aö þeir sem vildu ekki vera inn-
an um þetta óskuðu eftir að vera í
einangrun. Ég veit líka dæmi hins
gagnstæöa. Fangi, sem var að reyna
að hætta að sprauta sig, treysti sér
ekki til þess nema vera fluttur í ein-
angrun," sagði sami maður.
Hann sagði að hótanir við þá starfs-
menn, sem vildu beijast gegn þessu,
væru algengar.
„Fangamir hóta þeim mönnum oft.
Það er rétt sem sagði í DV að fyrstu
daga eftir heimsóknir er nóg til af
fíkniefnum. Þegar líður á vikuna fara
viðskiptin í gang og pirringur eykst.
Á laugardögum er ástandið oft hrika-
legt,“ sagði heimildarmaður DV.
Hann sagðist ekki vilja trúa því að
ekkert yrði aðhafst í þessum málum
þar sem þessi mikla neysla hefði leik-
ið margan manninn grátt.
-sme
Hveragerði:
Rafmagn og hiti
hækkaði eftir verð-
stöðvunina
- almenn óánægja meðal hreppsbúa
„Fólk hér í Hveragerði er nyög
óhresst með þessa hækkun á raf-
magni og hita í miðri verðstöðvun,"
sagði óánægður Hverageröisbúi sem
haföi samband við DV.
Mikil óánægja ríkir í þorpinu eftir
að reikningar fyrir rafmagn og hita
voru sendir út um síðustu mánaða-
mót. Þá kom í ljós að hækkun hafði
orðið á gjaldskrá þessara fyrirtækja
þrátt fyrir að verðstöðvun ríkti.
Hjá Rafmagnsveitunni fengum við
þær upplýsingar aö símahringingum
hefði ekki linnt fyrst eftir aö reikn-
ingamir hefðu verið sendir út. Þeirra
skýring á hækkununum var hins
vegar sú að 25. júlí hefði ný verðskrá
veriö samþykkt og hún öðlast gildi
1. ágúst. Fólk hefði hins vegar ekki
séð reikningana fyrr en 1. septem-
ber. Þá er hluti af innheimtunni fyr-
ir tímabil fyrir verðstöðvun.
Þessu vilja ekki allir Hvergerðing-
ar una og segja að hækkanimar hafi
í raun verið tvær. Ein í ágústbyijun
og önnur í september. „Þegar ég tal-
aði við Verðlagsstofnun þá sögðu
þeir mér að þetta væri ekki í þeirra
valdi og bentu mér á iðnaðarráðu-
neytið. Þar fékk ég þau ein svör að
þetta væru allt löglegar hækkanir.
Mér finnst hins vegar að þeir geti
ekki staðið á þessu,“ sagði einn Hver-
gerðinga sem haft var samband viö.
Það er vissulega spuming hvort
stætt er á þessum hækkunum því
ýmis önnur fyrirtæki hafa orðið að
bakka meö hækkanir þó að þær hafi
verið samþykktar fyrir eöa um svip-
að leyti og verðstöðvun hófst.
-SMJ
Forstjóri UA ráð-
Stjóm Útgeröarfélags Akureyringa
mun ráða nýjan forstjóra að fyrir-
tækinu strax eftir helgi, ef ekki á
mánudag þá á þriðjudag, að sögn
Sverris Leóssonar, formanns stjórn-
ar ÚA.
Gunnar Ragnars, forseti bæjar-
stjómar Akureyrar og forstjóri
SÚppstöðvarinnar, er enn talinn lík-
legastur til að hreppa hnossið. Fram-
ir helgi
sóknarmenn eru á móti honum en
sjálfstæðismenn styðja hann.
í stjóminni sitja tveir fulltrúar
framsóknarmanna, tveir fulltrúar
sjálfstæðismanna og einn fulltrúi al-
þýðuflokksmanna. Akureyrarbær á
70 prósent hlutafjár í fyrirtækinu.
Pétur Bjamason, fuÚtrúi alþýðu-
flokksmanna, er því í oddaaðstöðu
um ráðningu í stöðuna. -JGH
IVeir ráðherrar á ÓL?
Samgönguráðherra
erlendis í fimm vikur
Eins og kunnugt er þá er Matthí- varlegt geröist.
as Á. Mathiesen samgönguráð- Birgir ísleifur Gunnarsson
herra staddur á ólympíuleikunum. menntamálaráðherra frestaði fór
DV lék forvitni á að vita hvort ráð- sinni á ólympíuleikana en sam-
herra væri væntanlegur til lands- kvæmt heimildum DV áætlar hann
ins á næstnnni 0g fékk þær upplýs- aö fara til Seoul á sunnudag - nema
ingar hjá ritara hans að hann yrði eitthvað gerist sem hindri fór hans.
erlendis í 5 vikur. Kæmi ráðherra -hlh
ekki heim nema eitthvaö mjög al-
Hundaeigendur fjölmenntu til fógeta i fyrradag þegar munnlegur málflutningur var í máli þvi sem kennt hefur
veriö viö fógeta-hundana og snýst um hvolp af springer spaniel tegund. DV-mynd KAE
Leó Ingólfssyni, deildarstjóri Pósts og síma-
Hótað uppsógn vegna
skrifa sinna í DV
Leó Ingólfsson, yflrdeildarstjóri haldi alls kyns rangfærslur og símamálastofnuninni."
hjá Pósti og síma, hefur fengið óhróður um stofhunina og yfir- „Þetta kemur mér mjög spánskt
áminningu frá yfirmönnum sínum menn hennar. Séu greinamar fyrir sjónir og ég er alveg gáttaöur
og hótun um uppsögn sem má rekja skrifaðar í rnjög neikvæðum anda á að mönnunum skuli detta í hug
til skrifa hans um stofnunina á sem skaði áht stofnunarinnar bæði að senda manni svona bréf. Ég veit
opinberum vettvangi. Hefur Leó inn á við og út á við. Þetta gildi ekki betur en þaö sé skoðana- og
verið iðinn við að skrifa um mál- einnig um blað sem Leó hafi dreift ritfrelsi í þessu landi,“ sagði Leó
efni Pósts og síma í kjallaragrein- innan Pósts og síma. Ingólfsson við DV
um DV og veriö óvæginn í gagn- Síðan segir orörétt: Ekki náöist í sérfræðinga til að
rýni sinni ^ „Eruð þér hér með alvarlega segja til um réttindi og skyldur
1 bréfi frá Póst og símamálastofn- áminntur vegna ofangreindra opinberra starfsmanna og því ekki
un, undirrituðu af Olafi Tómassyni skrifa sem varða viö lög um rétt- vitað hvort lög þar um eigi við í
forstjóra og Þorgeiri K. Þorgeirs- indi og skyldur opinberra starfs- þessu tilfelli og geti notast til að
syni starfsmannasfjóra, dagsettu mannaogjafnframttilkynnistyður segja mönnum upp störfum vegna
7. september, segir að greinar Leós að ef um endurtekin brot verður skoðana sem þeir setja fram á opin-
umstofnunina,sembirsthafaíDV að ræða er óhjákvæmilegt að segja berum vettvangi
í maí og júní síðastliönum, inni- yður upp starfi yðar hjá Póst- og _hih
Fogetahundamir:
Kröfu eiganda tíkurinnar var hafnað
í fógetarétti Reykjavíkur var í gær
kveðinn upp úrskurður í hundamál-
inu svonefnda. Féll hann á þann veg
að innsetningarbeiðni Jóns Guð-
mundssonar, og þar með kröfu um
afnot af hvolpinum Flóka, var hafn-
að. Málskostnaður var látinn niður
falla.
Forsaga málsins er sú að Jón á
Springer Spaniel-tík. Er hún sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Hann seldi Áma Guðbjömssyni
hvolpinn Flóka undan tíkinni meö
því skilyrði að hvolpurinn skyldi lán-
aður til hennar þegar hún ætti að
verða hvolpafull. Þegar svo til átti
að taka neitaði Ámi að lána hvolpinn
til þessarar greiðasemi. Taldi hann
Flóka of ungan. Einnig taldi Árni að
um of mikla skyldleikaræktun gæti
orðið að ræða. Þá lagði Jón fram inn-
setningarbeiðni fyrir fógetarétt í
Reykjavík. Sótti hann mál sitt sjálfur
fyrir réttinum.
í gær féll svo úrskurður þess efnis
aö kröfu Jóns, um að hann verði með
beinni fógetaaðgerð settur inn í um-
ráð hundsins Flóka, var hafnað. Þótti
leika verulegur vafi á hversu víð-
tækan rétt Jón hefði til umráða yfir
Flóka og út á hvað hann gengi í ein-
stökum atriðum sbr. söluskilmála.
Valtýr Sigurösson kvað upp dóminn.
-> -JSS