Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Veiturnar í Eyjum sameinaðar
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Veitustjóm hefur samþykkt sam-
einingu Fjarhitunar, Rafveitu og
Vatnsveitu Vestmannaeyja. Þetta
var samþykkt á fundi veitustjómar
fyrir skömmu og á sameiningin að
taka gildi frá og með næstu áramót-
um.
Guðmundur Ragnarsson bæjar-
tæknifræðingur og Eiríkur Bogason
veitustjóri hafa unnið að málinu og
skiluðu þeir greinargerð um það á
fundinum. Þó telja þeir heppilegt að
verklegar framkvæmdir vatns-
veitunnar verði fyrst um sinn undir
stjóm núverandi verkstjóra sökum
sérþekkingar hans á vatnsveitukerfi
bæjarins.
BUaþrcnna
Axel Gíslason.
Geng gjarnan
til rjúpna
Nafn: Axel Gíslason
Aldur: 43 ára
Staða: aðstoðarforstjóri Sam-
bandsins
„Mér líður best í frítíma mínum
þegar fiölskyldan og hvers konar
útivist fara saman. Við fómm
saman í veiðiferðir, á skíði og
útilegur og höfum haft mikla
ánægju af því,“ segir Axel Gísla-
son, aðstoðarforstjóri Sambands-
ins, en hann hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga frá áramótum.
„Þegar ég var framkvæmda-
stjóri Skipadeildar Sambandsins
átti ég eiginlega aldrei frí en eftir
það fékk ég meiri frítíma. Menn
verða að taka sér frí. Þegar ekki
viðrar til útivistar er fiölskyldan
númer eitt. Áhugi minn beinist
mjög að silungs- og laxveiði og á
vetuma geng ég gjarnan til
rjúpna. Þá er ég líka tíður gestur
í Bláfiöllum.
Mikill áhugi á ferðamálum
Axel ólst upp á Akureyri þar til
hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum þar, árið 1965. Faðir
hans er Gísli Konráðsson, annar
tveggja framkvæmdastjóra Út-
gerðarfélags Akureyringa, og
móðir hans er Sólveig Axelsdótt-
ir. Axel er elstur og eini karlmað-
urinn í 7 systkina hópi. Kona
Axels er Hallfríður Konráðsdóttir
og eiga þau tvær dætur, Dóru
Björgu og Sólveigu.
„Ég vann 5 sumur við af-
greiðslustörf hjá Fugfélagi ís-
lands, mest á Ákureyri. Þá fékk
ég áhuga á ferðamálum sem ég
hef haft alla tíð síðan. Hef ég átt
sæti í stjóm Arnarflugs og Sam-
vinnuferða frá stofnun þeirra.
Ég reikna ekki með að frítími
veröi mikill þegar ég tek við nýja
starfinu. Ég geri ráð fyrir að verja
miklum tíma í að setja mig inn í
þá hluti sem fyrirtækið vinnur
með og tryggingafagið í heild
sinni. Annars lít ég svo á að hlut-
verk stjómanda í svona fyrirtæki
sé að samhæfa störf starfsfólks-
ins. Starfsfólk Samvinnutrygg-
inga er hæfileikaríkt og hefur
þekkingu sem ég get síðan byggt
á.“
Verkfræðingur að mennt
Axel lauk fyrri hluta verkfræði-
prófs frá Háskóla íslands 1968 og
prófi sem verkfræðingur frá Dan-
marks Tekniske Höjskole 1971.
Hann starfaði hann sem ráðgjafa-
verkfræðingur hjá fyrirtæki í
Kaupmannahöfn í eitt ár og var
síöan framkvæmdastjóri Iðnað-
ardeildar Sambandsins frá 1972-
1974. Hann var aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iceland Products
Inc. í eitt ár og framkvæmdastjóri
Skipulags- og fræðsludeildar
Sambandsins frá 1975-1976 og síð-
an framkvæmdastjóri Skipa-
deildar Sambandsins frá 1977-
1985. Frá 1985 hefur Axel verið
aðstoðarforstjóri Sambandsins.
-hlh
VÉLASÝNÍNG
Trésmíðavélar - loftpressur — rakatæki fyrir iðnfyrirtæki
Opiða laugardag frá kl. 10-16, TÆKJABÚÐIN HF.,
sunnudag frá kl. 10-15 Smiðjuvegi 28, sími 75015 og 76100