Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Side 5
LAUGARDÁGUR 17. SEPTEMBER 1988.
5
Fréttir
Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið:
Fagna lokun þríggja
sólarhríngsstofnana
A sameiginlegum fundi fulltrúar-
áða Öryrkjabandalags íslands og
Landssamtakanna Þroskahjálpar,
sem haldinn var á dögunum, var lýst
ánægju með niðurstöður starfshóps
félagsmálaráðherra þess efnis að
leggja bæri niður þrjár sólarhrings-
stofnanir fyrir þroskahefta í núver-
andi mynd. Þessar stofnanir eru
Skálatún í Mosfellsbæ, Sólborg á
Akureyri og Sólheimar í Grímsnesi.
Var starfshópur félagsmálaráð-
herra skipaður til að skilgreina hlut-
verk sólarhringsstofnana og gera til-
lögur um framtíðarskipan þeirra.
Var samdóma álit starfshópsins að
stofnanir þessar í núverandi mynd
samrýmdust ekki markmiðum laga
um málefni fatlaðra.
Lagði hópurinn til að á næstu 15
árum yrðu stofnanirnar lagðar niður
sem sólarhringsstofnanir fyrir fatl-
aða. Yrði í því skyni unnið markvisst
að uppbyggingu annarra og'frjálsari
búsetuforma og stoðþjónustu fyrir
íbúa þeirra. Yrði haft samráð við
íbúa, starfsfólk og aðstandendur og
þess gætt að röskun yrði sem minnst.
Loks taldi hópurinn aö í samræmi
við þessi markmið yrði frekari upp-
bygging stofnananna stöðvuð á þann
hátt að ekki yrði veitt fé til nýfram-
kvæmda.
Á fundi fulltrúaráðanna kom fram
að þessi niðurstaða samræmdist op-
inberri stefnu í málefnum fatlaðra
þar sem gert er ráð fyrir því að sam-
félaginu beri að veita fötluðum sömu
möguleika til eðlilegs og mannsæm-
andi lífs. Væru sólarhringsstofnan-
irnar úrelt tæki til að tryggja það
markmið. Var bent á að þróunin í
öðrum löndum væri öll í þá átt að
blöndun væri lykilorðið, stærri
stofnánir vikju fyrir minni. Væru
heimili reist fyrir fólk en ekki fatlan-
ir þess.
Til þess að tillaga hóps félagsmála-
ráðherra mætti ná fram að ganga
þyrfti að tryggja fjármagn. Hafa ófáir
í þessum geira félagsmálakerfisins
lýst yflr áhyggjum vegna þess í ljósi
þess hvernig gengið hefur að standa
við lög Framkvæmdasjóðs um fram-
lög til fatlaðra á undanförnum árum.
„Þeir vita hvað þeir hafa en ekki
hvað kemur í staðinn," segir í frétta-
bréfi frá Þroskahjálp um viðbrögð
fatlaðra við hugmyndum um lokun.
-hlh
Forstöðumaður Skalatúns:
Þessar stofnanir
verða fjársveltar
„Ég sé ekki fyrir mér í fljótu
bragði að lokun Skálatúns sé
möguleiki. Ég tel þessar samþykkt-
ir allt aö því skaðlegar. Þessar
stofnanir verða sveltar meira og
meira fjárhagslega. Það mun
þrengja æ meira að fjárveitingum
en rekstur Skálatúns rétt skríður
saman í dag, sagði Björgvin Jó-
hannssson, forstöðumaður vist-
heimilisins Skálatúns, við DV.
Björgvin sagði aö áætlun um að
ioka stofnun eins og Skálatúni
kynni að vera góð en þá þyrfti að
eitthvað að koma í staöinn. Þyrftu
tilboðin að vera á borðinu. Meðan
ekki bólaöi á tilboðum væri aðeins
verið að koma róti á vistmenn.
„Þaö voru sumir hér sem voru
tilbúnir að pakka niður og spurðu
hvenær rútan kæmi aö flytja þá
þegar þeir heyrðu af þessum
áformum.
Hér búa 54 vistmenn. Gagnrýni
er ágæt en hún hefur gengið það
langt að þessi stofhun hefur verið
kölluð ómanneskjuleg. Margir sem
um þessi mál fjdla hafa alls ekki
séð stofnunina. Ég hef verið hér í
7 ár og á þeim tíma hef ég ekki séð
mikið af þessu fólki. Hér er unnið
kröftugt faglegt starf og ég veit ekki
betur en allir séu nokkuð ánægðir.
Af 54 foreldrum er aðeins eitt for-
eldri sem hefur farið fram á ósk
um flutning á sambýli. Það segir
sitt.“
Loks sagöi Björgvin að margt
fólk, sem væri að berjast í þessu,
ætti kannski tveggja eöa þriggja
ára fótluð börn og fyndist útlitið
slæmt Einnig mætti það ekki bitna
á fólki sem búið heföi saman 25 ár
eöa lengur.
-hlh
Talsverð fjölgun í ár
Svipaður fjöldi og síðasta vetur
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Nú þegar Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum er hafmn er ljóst
að um talsverða aukningu nemenda
frá fyrra ári er að ræða. Lætur nærri
að aukningin nemi 30 hundraðshlut-
um. Ólafur Hreinn Sigurjónsson,
skólameistari Framhaldsskólans,
sagði að samtals yrðu nemendur 210
á haustönn sem er næst mesti fjöldi
frá því skólinn hóf starfsemi.
„I fyrra voru nemendur 170, kenn-
arar eru 20, þar af 13 fastráðnir. Við
erum nokkuð vel settir með kennara
en hefðum þó viljað hafa einn fast-
ráðinn til viðbótar en það var leyst
með stundakennslu," sagði Ólafur
Hreinn.
Nemendur i Öldungadeild verða 35
sem er heldur fleira en í fyrra. Á
viðskipta- og hagfræðibraut verða 55
nemendur, 46 á náttúrufræði- og
heilsugæslubraut, 47 á félagsfræði-
og uppeldisbraut, 34 á iðnbraut, 9 í
grunndeild rafiðna, 9 á vélstjórnar-
braut og 10 nemendur í fornámi.
Ólafur sagði að unnið hefði verið
að lagfæringum á skólanum, m.a.
samkomusal, en ljóst er að húsnæði
hans er orðið of lítið. Að lokum sagði
hann að nú væri kómið upp nýtt
tölvukerfi til skráningar nemenda
sem ætti eftir að verða til mikilla
bóta.
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Stýrimannaskólinn í Vest-
mannaeyjum var settur fyrir
skömmu og er skólastarf hafið af
fullum krafti. Nemendur í vetur
eru 27, sem er sami fjöldi og á síð-
asta vetri.
Sigurgeir Jónsson kennari sagði
að 16 nemendur væru á öðru stigi
og 11 á fyrsta. Friðrik Ásmundsson
skólastjóri og Sigurgeir eru fast-
ráönir viö skólann og stundakenn-
arar eru 10 núna en fleiri bætast
við eftir áramótin. Heimavistin.
sem tekin var í notkun á síðasta
ári, hefur nú sannað gildi sitt því
þar er hvert rúm skipað, enda stór
hluti nemenda aðkominn.
Sigurgeir sagði að skólahald yrði
með svipuðum hætti og undan-
farna vetur og fátt um nýjungar.
Tölvukennslu, sem tekin var upp á
síðasta vetri, verður haldið áfram.
Að lokum sagöi Sigurgeir að í ráði
væri að halda 30 tonna námskeið
við skólann ef næg þátttaka yrði.
Ótrúleg greiðslu-
kjör sem henta
fyrirtækjum jafnt
sem einstaklingum.
DÆMI:
DAIHATSU CUURE
5 dyra, 5 gíra. Verð á götu
kr 347.900,-
Helmingur lánaður
til 1 2 mánaða
Skuldabréfakostnaður
Greiðsla á mánuði
kr. 173.950,-
kr. 4.211,-
kr. 14.847,^
Að viðbættum vöxtum.
- Aiiir þurfa að spara -
NIÐimFÆRSUm mLDURÁFÍ
BILLINN SEM
HENTAR
FYRIRTÆKJUM
OG EINSTAKL-
INGUM
BRIMBORG
DAIHATSU • VOLVO Skeifunni 15, sími 685870