Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Side 16
16 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. AfLraunir íslenska aflraunalandsliðið í víkingaferð: Skotar steinlágu þótt Jón Páll sæti á bekknum íslenska landsliðiö í aflraunum fór til Skotlands 18. ágúst til keppni við breska aflraunalandsliðið. Breska liðið hafði undirbúið sig af kostgæfni fyrir þessa keppni en íslensku vík- ingarnir komu óundirbúnir í þessa keppni. Jón Páll valdi íslenska lands- liðið og valdi eftirtalda aöila til að verja titilinn frá því í fyrra: Lárus Rúnar Grétarsson, Guðmund Ómar Þráinsson, Magnús Þórisson, Guð- brand Sigurðsson, Magnús Ver Magnússon og Björgvin Filipusson. Ástæðan fyrir því að í íslenska afl- raunaliðið vantaði tvo af sterkari mönnum heims, þá Hjalta „Úrsus" Árnason og tröllið sjálft, Jón Pál Sigmarsson, var að þeir tóku þátt í einstakhngskeppni sem fór fram á 21. september á sama stað og lands- Uöskeppnin. Nokkur þúsund manns voru komin saman í skoska ferða- mannabænum Avimore í Norður- Skotlandi til að fylgjast með íslensku keppinautunum. EinstakUngskeppnin byggðist aðal- lega upp á kastgreinum og einnig var þar að finna hina erfiðu þraut að lyfta fimm kringlóttum kúlum upp á tunnur. Léttasti steinninn var 90 kg sá næsti 110 kg, þá 120 kg, 130 kg og sá þyngsti var 150 kg. I keppninni sigraði Ástralinn Joe Quilly, einfald- lega vegna þess að sterkustu menn- irnir þeir BÚl Kazmaier, Ab Wolders og Jón Páll tóku mótið sem létta æf- ingu fyrir keppnina „Sterkasti mað- ur heims!" sem fór fram 28. ágúst í Islenska aflraunalandsliðið tilbúið í slaginn. Fremstur er breski fararstjórinn, þá Björgvin Filipusson, Hjalti „Ursus“ Árnason, Lárus Grétarsson, Magnús Ver Magnússon, Magnús Þórisson, Guðmundur Þórisson og Guðbrandur Sigurðsson. Fyrir meira en 1100 árum hófu víkingar að nema á brott kvenfólk úr skosk- um byggðum. Þeir Hjalti Ursus og Magnús Ver gerðu sitt til að viðhalda siðnum. Búdapest. Enginn þeirra vildi taka þá áhættu að meiðast rétt fyrir aðal- keppni ársins. Jón PáU stóðst þó ekki freistinguna þegar komið var að því aö lyfta kúlunum upp á tunnurnar og hann var eini keppandinn sem gat framkvæmt þá þraut. Landsliðið ógurlega fór hamförum. Landsliðið í aílraunum hélt .uppi heiðri landans með því að sigra í Umm greinum af sex. Ótrúlegt afrek sem erfitt verður að leika eftir. Álmrfendurnir voru aUan tímann vel með á nótunum og sérstaka athygU vöktu tveir rauðhærðir keppendur í íslensku sveitinni. Það voru þeir Lár- us og Magnús en þeir gætu náð langt í greininni að sögn skoskra áhorf- enda sem dáðust mjög að hinu kraftmikla landsliði íslendinga. ísland vann efirtaldar fimm keppn- isgreinar; axltöku - glímuna - bijóta niður vegg með trédrumbi - sprett- hlaup með 50 kUóa sekki - draga stórt tré með kaðU. Bretarnir unnu aðeins reiptogið og eflaust mættu þeir þalcka blautu grasinu (drullunni) en þar voru íslensku keppinautamir Guðmundiír Þórissún er ekki nettasti píanóleikarinn sem Skofar hafa heyrt í. Hér slær hann á iéfta sfrengi með aóstoö Lárusar Gréíarssonsr. eins og naut á hálum ís, en þeir bresku náðu góðri fótfestu vegna þess að þeir mættu í þessum voldugu gaddaskóm og náðu þannig góðri spyrnu og fótfestu sem nauðsynleg er í svona grein. Seinni aflraunakeppnin fór fram viku seinna eða 28. ágúst í bænum Large og þá var keppt í sömu grein- um að viöbættri „nýrri grein“ sem fólst í því að hvort liðið fyrir sig átti aö draga risastórt víkingaskip 100 metra leið. Strákarnir brugðust ekki og sigruðu auðveldlega í fimm grein- um af sjö. Þar sem Skotarnir eru góðir heim að sækja þá kunnu ís- lensku vöðvaijöllin ekki við að vinna allar greinarnar og Skotunum gafst þannig færi á að bjarga andlitinu. Það verður gaman í framtíðinni að fylgjast með þessum sterku piltum sem skipa landslið íslands í aflraun- um. Sterkasti maður íslands. Allir þeir sem stunda kraftlyftingar og vaxtarrækt á íslandi bíða nú spenntir eftir því að sunnudagurinn 18. september renni upp. Þá verða saman komnir sex sterkustu menn landsins í Reiðhöllinni og þeir munu leiða saman hesta sína í keppninni „sterkasti maður íslands“ og fá úr því skorið hver sé sterkastur hér- lendis og þá í leiðinni í heiminum! Bill Kazmaier er væntanlegur til landsins 15. september til að keppa á þessu móti. Hingað til hefur hann verið álitinn sá sterkasti sem fyndist á jörðinni en Jón Páll náði nú samt að vinna hann í Búdapest 28. ágúst, með fimm stiga mun, og hreppa þar með titilinn sterkasti maður „al- heimsins". Allir þeir sem hafa gaman af líkamsrækt og kraftlyftingum ættu því að fjölmenna í Reiðhöllina á morgun og þar fæst úr því skorið hvort Jón Páll sé sterkasti maður sólkerfisins eður ei! Jakob Þór Haraldsson. Tíðindamaður DV lagðist í rann- sóknarblaðamennsku á leikunum. Hann hafði með sér heim sannanir fyrir því að Skotar eru ekki berir undir pilsunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.