Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMRER 1988. Lífsstfll Símsvari með hreim Anna Bjamason, DV, Denver: „Þú ættir að fá þér maskínu," sagði kunningi minn við mig á dögunum. „Ég er mar'gbúinn að hringja í þig og þú ert aldrei heima.“ Hann átti við símsvara, sem eru ákaflega vinsæhr hér í landi. „Það eru svo fáir sem hringja í mig,“ svaraði ég. „Þaö þarf ekki nema að einn aðili hringi og nái ekki í þig til að réttlæta símsvarakaup. Það gæti veriö blaðið á íslandi að biðja þig um aö athuga stjómarbyltingu í Nicaragua eða ein- hver sem ætlaði að segja þér stór- frétt sem þú þyrftir aö koma áleiðis til íslands í grænum hvelli,“ sagði kunningi minn. Þetta gerði útslagið. Ég er ákveðin í að fá mér „maskínu" eins og þeir kalla þaö hérna megin við Atlants- hafið. Það em ótrúlega margir sem eiga símsvara hér, líklega annar hver maður. Þá er alls ekki um að ræða menn í áberandi eða áríðandi stöð- um. Fólk i öllum þjóðfélagsstigum og stöðum notar svona tæki. Þau eru heldur ekki ýkja dýr. Ég hef séð mjög fullkomna símsvara sem kosta í kringum 100 dollara eða rétt um 5 þúsund íslenskar krónur. Það þætti víst ekki mikið á íslandi fyrir slíkan gæðagrip. Maskínur tala saman Stundum hefur mér veriö þaö huhn ráögáta, hvernig fólk fer almennt að því að ná til hvers annars hér. Sím- • svararnir taka á móti öllum hring- ingum, jafnvel þótt einhver sé heima. Fólk vill bara ekki tala við hvern sem er, nema þegar því sjálfu hentar. En þá er alveg eins víst að sá sem hringdi upphaflega sé ekki tilbúinn að taka símann þegar þeim sem hringt var í þóknast að láta í sér heyra. Það eru því aðeins maskínurnar sem ná sam- an í mörgum tilvikum. Þessi tæki eru auðvitað mjög hent- ug. Það er hægt að hafa þau tengd þannig að maður heyri hver er í sím- anum og þá er hægt að grípa tólið áður en viðkomandi leggur á. Ef það er einhver sem við viljum ekki tala við er sá hinn sami látinn spjalla við tækið. Svo efnum við loforðið sem tækið gaf um að hringja eins fljótt og auðið er, þegar okkur hentar - kannski aldrei! En eins og kunningi minn benti á kemur símsvarinn í veg fyrir að Svo þarf ekki að svara i símann fyrr en við hentugleika. ...2 Skop.......•••••;.. Ertu tilbúin að eignast ^ barn?.................. Aðferðir til betri sam- g skipta........... Lokum morðingjana inm.. Vildirðu að besti vinur þinnværieinsogþu?......." ÓlYmP,u'el^arn,r; oo Þrautaleið á tindinn.. Hugsuníorðum...... Ég læknaði sjálfan mig af stami.....••••;..... Verða menn háðir ^ megrun?.....•■••....... Hermannaveiki.........* Eru börn svelt vegna fávísi foreldra? ...... Morð í 37 þúsund feta ^ ....................... Vísindi fyr,r almennmg- Er maðurinn kommn at ^ vatnaöpum? ••■—•—...... MataHariog dóttir ^ hennar................. „Fariðaðeymastá hnjánum og oln- 7? bogunum"............... Kveðjustund á hausti... Flóð í Guadalupánni—... Þjálfun stúlkna í vúsju. Ertu tilbúin að eignastbam? -bls.3 Ólympíuleikarnir: Þrautaleið átindinn -bls. 28 Yerðamennháðir megrun? -bls.4l Mata Hari og dóttirhennar - bls. 63 Kjörinn félagi NÝTT HEFTI MT A BLAÐ- SÖLU- STÖÐUM UM LAND ALLT ÁSKRIFT: o 27022 maður missi af stóra tækifærinu, ef það skyldi koma í gegnum símann. Fleiri skilja ensku en íslensku En þá kemur upp eitt stórt vanda- mál. Hvaða skilaboð á ég að biðja símsvarann fyrir? Á ég að tala ís- lensku, sem fáir skilja hérlendis, eða á ég aö tala á ensku? Ef ég tala ensku og einhver íslend- ingur hringir heldur hann kannski að ég sé búin að tapa niður íslensk- unni eða telji mig „of fina“ til að tala það ástkæra ylhýra. En sennilega skilja fleiri íslending: ar ensku en Ameríkanar ísíensku svo enskan verður ofan á. En hvernig á að orða símsvara- kveðjuna svo hún fæli ekki frá? Á að koma beint að efninu, eða á að reyna að vera léttur og sniðugur? Einu sinni las ég grein um einhvern Heimilið sem hafði ætið svo skemmtilega orð- uö skilaboð á símsvaranum að fólk kepptist við að hringja í hann og heyra hvaða skemmtilegheit hann bauð upp á þann daginn. Ég held ekki að ég nenni að reyna að glíma viö slíka hluti. Það krefst allt of mikillar orku á hverjum degi. Ég hef vist nóg með að upphugsa eitt- hvaö sniðugt til að senda heim til birtingar í DV þótt þetta bætist ekki ofan á. Best er að gera eins og flestir. Skila- boðin hljóða eitthvað á þessa leið: Góðann daginn. Þetta er hjá Önnu og Atla. Við erum því miður ekki viðlátin þessa stundina. Ef þú gefur upp nafn og símanúmer eftir að tónn- inn heyrist, skulum við hringja í þig svo fljótt sem auðið er. En þessu verður að snara á ensku og bera fram með tilheyrandi hreim. Þið skuluð því ekki láta ykkur bregöa ef þið hringið í mig og ein- hver svarar með enskum hreim. Ég hef ekki týnt niður því ástkæra yl- hýra og mun hringja svo fljótt sem auðið er en auðvitað á kostnað þess sem hringdi í mig! Ég hef aðeins gert eins og allir hinir og tekið í þjónustu mína þarfan hlut, sem ég mæh með að sem flestir eignist, hvort sem þeir eru vestan eða austan megin við Atl- antshafið. Canon Ljósritunarvélar FC-3, 43.600 stgr. FC-5, 46.300 stgr. Skrifvélin, sími 685277

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.