Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Page 19
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
19
Spumingaleikur
Veistu fyrr en í
fimmtu tilraun?
Hér býður DV lesendum að reyna sig við sjö spumingar úr ýmsum áttum. Skráið hjá ykkur stigin og sjáið hve glögg þið eruð.
5 stig 4 stig 3 stig 2 stig lstig
Fleyg orö „Furan er hugrökk er hún breytir ekki lit undir þyngd mjallarinnar. Manneskj- umar ættu aö vera þann- ig,“ sagöi hann þegar þjóö hans mátti þola hemám. Orðin féllu síðsumars árið 1945. Hershöfðingi hemámsliðs- ins hét Douglas MacArthur. Höfundur hinna fleygu orða var keisari. Hann er enn keisari í landi sínu.
Staöur í veröldinni Nafii staðarins er dregið af heiti á kvöm sem segir frá í norrænni goðafræði og notuð var til að mala gull. Staðurinn er lítil eyja sem þó er gengt út í á fjöru. Eyjan er við Faxaflóa sunn- anverðan. Á eyjunni er viti sem nýtist sjófarendum á leið til .Reykjavikur. Seltimingar kenna íþrótta- félag sitt við eyjuna.
Frægt 1 sögunni Spurt er um fall þjóðarleið- toga af valdastóli haustið 1964. Hann hafði þá gegnt æðstu stöðum í ríki sínu frá árinu 1958. Hann er frægastur í sögunni fyrir ræðu sem hann hélt árið 1956. Ræðan fjallaði um misgjörð- ir fyrirrennara hans á valdastóli. Maðurinn var leiðtogi Sov- éfi-íkjanna.
Fólk í fréttum Hann var í fréttunum vegna messugerðar um síðustu helgi. Við messuna skýrði hann tvo drengi. Þegar þetta gerðist vom lið- in 50 ár frá prestvígslu hans. Messan fór fram í Hall- grímskirkju þar sem hann þjónaði lengi. Hann var biskup íslands á árunum 1959 til 1981.
Sjaldgæft orö Orðið er stundum notað um það að gefa eitthvað illt í skyn um einhvem. Þá hefur það sömu merk- ingu og þegar talað er um að vera með glósur um ein- hvem. í annarri merkingu er orðið notaö um að ganga á sniö eða fara á ská. í hliðstæðri merkingu er orðið notað um að komast hjá eða forðast að gera eitt- hvað. Algengast er að orðið sé notað um að skera þunnar flögur af einhveiju.
éf ^ & B Hann er kunnastur fyrir áætlun sem við hann er kennd. Hann var áhrifamikill í heimspólitíkinni fyrst eftir síðari heimsstyijöldina. Hann var Bandaríkjamað- ur, fæddur áriö 1880 og an- daðist árið 1959. © Áætlunin, sem við hann er kennd, fólst í viðreisn Evr- ópu eftir styrjöldina. Hann var utanríkisráðherra Bandaríkjanna á árunum 1947 til 1949.
Rithöfundur Noregskonungar hafa allt til þessa dags haft mikið dálæti á þessum höfundi. Ólafur V. Noregskonungur vottaði honum viröingu sína á dögunum. Þessi rithöfundur skrifaði langa sögu af Noregskon- ungum. Söguna kallaði hann Heims- kringlu. Hann var veginn í Reyk- holti í Borgarfirði árið 1241.
Svör á bls. 50
lA'
Strikamerkingar á vörum er
fyrirbæri sem aðallega þekkist
frá útlöndum en er þó vænt-
anlegttil landsins. ÁTVR hef-
urtekið upp þennan sjálf-
sagða búnað og geta við-
skiptavinir verslunarinnar séð
nákvæmlega hvað hvervöru-
tegund kostaði þegar kassa-
kvittunin er skoðuð eftir á. En
víða er pottur brotinn og flest-
ar ef ekki allarstærstu verslan-
irnar eiga enn eftir að koma
sér upp tilskildum búnaði. DV
hefurfylgst vel með þessu
máli og mun gera það áfram,
enda ekki vanþörf á.
Á haustin hefst, ef svo má segja,
vertíð hjá líkamsræktarstöðvun-
um. Flestir ætla að taka sig taki
og hefja nýtt líf. En aðrir liggja
áfram í greninu og þora ekki að
sækja á brattann. Hvernig á
maður að koma sér af stað og
hvernig á fólk að byrja að æfa?
Get ég, manneskja komin á
miðjan aldur, ruðst á morgun
inn á næstu líkamsræktarstöð
og byrjað að æfa? Spurningin
er ekki hvort fólk á að byrja á
morgun heldur núna.
Guðni Gunnarsson líkams-
ræktarþjálfari gefurfólki góð
ráð og segir hvaða leiðir eru
bestar til að ná taki á sjálfum
sér í Lífstíl DV á morgun.