Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. Gilbert er sterkari en konumar Safnaðarfundur Frikirkjunnar í Gamla bíói var mál málanna í vikunni. Ár og dagar eru síðan önnur eins röð hefur sést þar. Orðrómur er um að margir hafi böðlast áfram í röðinni. Fellibylurinn Gilbert Fellibylurinn Gilbert, sem sagður er kraft- mesti fellibylur frá upphafi, hefur gert mik- inn usla. Það er annars þetta með nöfnin á fellibyljum. Til þessa hafa þeir yfirleitt ver- ið skírðir í höfuðið á konum en nú bregður svo við að karlmannsnafn skýtur upp koll- inum og vindhraðinn eykst um allan helm- ing. Mestu karlremburnar tala nú um að Gil- bert sýni betur en annað að það sé engin spurning lengur um hvort kynið sé sterk- ara. Fíkniefni á litla Hrauni Það hefur mörgum brugðiö við fréttirnar um að allt sé fljótandi í fikniefnum á Litla Hrauni. Hvort neyslan hefur aukist eftir að sam- göngur austur bötnuðu með tilkomu Ós- eyrarbrúarinnar er ekki vitað. Hitt er ljóst að ekki þýðir að setja fangana í lyfjapróf og dæma þá í bann. Þeir sitja nefnilega þegar inni. Pétur sjómaður í klakinu „Pétur sjómaður veiddi tuttugu punda lax - laxinn byijaður að hrygna,“ var fyrirsögn í DV af veiðimennsku Péturs Sigurðssonar, sjómanns og formanns bankaráðs Lands- bankans, í Hrútafjarðará á dögunum. Eftir þessa frétt efast margir um að Pétur hafi verið við veiðar í Hrútafjarðará. Hall- ast menn fremur aö því að Pétur hafi veitt í fiskeldisstöð og þá einna helst klakstöð- og hann hafl kreist þann tuttugu punda of fast. Rauðhærðir skattlagðir „Ég velti því fyrir mér hvort það myndi standast ef sett yrðu lög um sérstakan skatt á alla íslendinga, hvern einasta mann sem heitir Steingrímur Hermannsson, er rauð- hærður og fer fjörutíu daga á ári í laxveiði á kostnaö annarra. Teldist það almenn skattahækkun?" er haft eftir Davíö Odds- syni í DV um þá tillögu framsóknarmanna að skattleggja sveitarfélög sem hafa yfir 10 þúsimd krónur á íbúa í aðstöðugjöld. Borgarstjórinn tekur Steingrím þarna heldur betur fyrir. En skattasérfræðingar sjá þó smugu fyrir Denna til að komast undan þessum skatti Davíðs. Hann getur nefnilega litað á sér hárið. Organisti og kór út ef Gunnar kemur inn Fríkirkjan og Gunnar Björnsson hafa auð- vitað verið mál málanna í þessari viku. Pavel Smid organisti og kórstjóri Fríkirkj- unnar hugsar ekki hlýtt til Gunnars og kveður hann hafa komið dónalega fram við sig. Segir herra Smid að hann og kórinn fari út ef Gunnar komi inn í kirkjuna aftur. Sagan segir að ýmsir séu nú farnir að - Léttmeti á laugardegi Jón G. Hauksson fylgjast með látunum í Fríkirkjunni eins og um spennandi kosninganótt sé að ræða þar sem menn eru annað hvort úti eða inni fram eftir nóttinni. Sömu menn segja að Gunnar sé flakkarinn frægi. Geislavirkar kindur „Geislavirkar kindur,“ var fyrirsögn á frétt frá Noregi í vikunni. Geislavirknin kvað stafa af Tsjemobyl-slysinu. Það þarf greinilega ekki örbylgjuofn þegar þessar kindur verða matreiddar. Jakinn í grillinu Guðmundur J. Guðmundsson sagði við fféttamenn, þegar hann yfirgaf formanna- fund ASÍ síðastliðinn mánudag, að hann ætlaöi heim að grilla í stað þess að taka þátt í þeim halelújakór sem fundurinn væri, eins og Guðmundur orðaði það. Héldu menn að Guðmundur væri að fara heim í kvöldmat. Daginn eftir sáu menn hins vegar í blööum að Jakinn hafði staðið í ströngu í Gamla bíói á safnaðarfundi Fríkirkjunnar síðar um kvöldið. Fréttamenn héldu fyrst að Jakinn hefði platað þá varðandi grillveisluna. En upp- götvuðu síðan að svo var ekki. Það er nefni- lega komið á daginn að þegar Guðmundur tekur menn í gegn, tekur þá í karphúsið, notar hann einfaldlega orðatiltækið að grilla menn. Herluf Clausen er lánsamur Þeir á Tímanum skrifuðu um auðmenn íslands og tóku þá þrjá ríkustu fyrir. Fyrst var rætt um Þorvald og Pálma og þá Herluf Clausen. Tíminn upplýsir að Herluf sé af vinum sínum kallaöur „Lucky“. Það hlýtur að útleggjast Lukku Láki á móðurmálinu. Útsala á sviðahausum Stööugar fréttir berast um sviðakjamma á Selfossi. Þeir kosta minna fyrir austan en annars staðar. Fyrir nokkrum vikum lásu menn um að sviðaveisla væri í hveiju húsi á Selfossi. Og á dögunum voru sviðahausar seldir á útsölu. Ja, nú er það svart á Selfossi. Andspyma ASÍ Bæði BSRB og ASÍ mótmæla núna kröft- uglega allri kjaraskerðingu vegna efnahags- aðgerða og segja húsbændur þar að það sé sama hvað aðgerðin heiti, svo fremi sem hún gangi út á kjaraskerðingu þá verði henni mótmælt. Þaö er sennilega kominn tími til að ASÍ og BSRB hætti að spila svæðisvöm heldur taki upp leikaðferðina maður á mann. Nýja kjötið í frystinn Nú er orðið ljóst að nýja kindakjötið sem kemur út úr sláturhúsunum á næstunni fer beint í frysti til geymslu, að sögn manna í landbúnaðinum. Nú spyija allir sig hvort eitthvað pláss sé í frystigeymslunum. Er ekki það gamla þar fyrir? ER ÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2 20 A Þjóðhöfðingi Dalai Lama varð að yfirgefa land sitt árið 1959. Landiðvar: 1: Pakistan X: Thailand 2: Tíbet B Dingo er nafn á villtu hundakyni, sem er upprunnið í: 1: Asíu X: Ástralíu 2: Ameríku c Talið er að um 6 milljónir manna hafí farist í spönsku veikinni svonefndu. Hún geysaði árið: 1: 1904 X: 1918 2: 1929 D Hvaða forseti Bandaríkjanna fór illa út úr svonefndu Wat- ergate máh: 1: RichardNixon X: LyndonB. Johnson 2: GlennFord F NýjabrúinyfirÖlfusáhlautnafnið: 1: Suðurlandsbrú X: Óseyrarbrú 2: Árósabrú Það er menntastofnun sem notar þetta merki, nánar tiltekið: 1: FjölbrautaskóliSuðurnesja X: Menntaskólinn á ísafirði 2: FjölbrautaskólinníBreiðholti H Hin hljóðfráa þota Concorde var smíðuð í sameiningu af Bretum og: 1: V-Þjóðverjum X: Frökkum 2: Hollendirigum 20 Sendandi____________________________ Hér eru átta spurningar og hverri þeirra fylgja þrír mögu- íeikar á réttu svari. Þó er aðeins eitt svar rétt við hverri spurn- ingu. Skráið réttar lausnir og sendið okkur þær á svárseðlin- um. SkUafrestur er 10 dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veit- um þrenn verðlaun, öll frá póst- versluninni Primu í Hafnar- firði. Vinningshafar fyrir 1 eða X eða 2 í átjándu getraun reyndust vera: Stefanía Árnadóttir, Há- túni 7,735 Eskifirði (hitateppi); Svanhildur Pálmadóttir, Brekkustíg 31E, 260 Njarðvík (trimmtæki); María Lea Guð- jónsdóttir, Marbakkabraut 32, 200 Kópavogur (skærasett). Vinningarnir verða sendir heim. Rétt lausnvar: 2-1-2-2-X-2-1-X E BorginNikósíaerhöfuðborgáeyjunni: 1: Kýpur X: Sikiley 2: Krít Heimili Rétt svar: A □ E □ B □ C □ D □ F □ G □ H □

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.