Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
25
lisa Bonet - engin fyrirmyndarstelpa:
Á von á tvíburum í þessum mánuði
Lisa Bonet, sem þótti bera af öðrum
börnum Bill Cosbys í Fyrirmyndar-
föðurnum, þykir ekki lengur litla
sæta stelpan. Hún klæðir sig ó-
smekklega, telja margir.og er bara
bölvaður villingur. Hér er hún með
eiginmanninum.
Whitney
Houston
á að leika
TinuTumer
Tina Turner hefur lifað allt sem
einn poppari getur látið sig dreyma
um. Hún var í eldlínunni á sjöunda
áratugnum þegar dægurtónlistin
stjómaði heiminum. Þá naut hún
frægðarinnar með manni sínum, Ike.
Á síðasta áratug náði hún frægð á
ný og nú var hún ein síns liðs. En
þrátt fyrir alla velgengnina hefur líf
hennar ekki verið dans á rósum. Um
það má lesa í sjálfsævisögunni Ég,
Tina sem kom út fyrir skömmu.
Það á ekki fyrir ævisögunni að
hggja að rykfalla á bókahihum því
aö nú stendur til að kvikmynd hana.
Fyrst datt mönnum í hug að Tina
gæti leikið sig sjálfa í myndinni en
hún aftók það. Þá flaug mönnum í
hug að Whitney Houston væri kjörin
í hlutverk Tinu.
Whitney hefur verið boöið hlut-
verkið og hún er nú að hugsa sig um.
Tina er sögð ánægð meö að fá hana
í hlutverkið og framleiðendur mynd-
arinnar hugsa sér gott til glóðarinnar
því að Whitney er nú ein skærasta
stjarna poppsins.
Tina Turner lætur nú kvikmynda
sjálfsævisögu sína.
Lisa Bonet, sem flestir þekkja úr
Fyrirmyndarföðurnum og síðan eig-
in þáttum, sem sýndir hafa verið hér
í sjónvarpinu, á von á tvíburum í
þessum mánuði. Vegna þess að hún
átti von á barni (bömum) var tökum
hætt á þáttum hennar. Ástæðan er
sögð sú að fyrirmyndarfaðirinn, Bih
Cosby, skipaði svo fyrir.
Hann var ævareiður er hann vissi
að Bonet hafði gift sig í laumi og
ekki batnaði skapið er hann frétti af
því að hún væri ekki kona einsömul.
Cosby rak Bonet á sínum tíma úr
þáttum sínum en hjálpaöi henni að
fá eigin þætti, sem voru reyndar ná-
skyldir Fyrirmyndarföðumum. í
staðinn gaf Bonet „föðumum" loforð
um að hún myndi ekki eignast barn
næstu þrjú árin. Við þetta stóð hún
ekki og missti því þáttinn.
Það hafði í för með sér gífurlegt
fjárhagslegt tjón fyrir Lisu Bonet því
að hver þáttur gaf henni nokkrar
milljónir í aðra hönd. Hún segist þó
ekki vera á vonarvöl þvi að ekki hef-
ur henni tekist að eyða öllu því sem
hún hefur aflað. „Ég fer aftur að
vinna eftir hálft ár,“ segir hún og
bætir við: „Ef ég fæ ekki að halda
áfram meö þessa þætti þá á ég mörg
tilboö sem ég get valið úr. Kvik-
myndaframleiöendur standa í röðum
og bjóða mér hlutverk.“
„Lisa Bonet hefur hagað sér þannig
að hún getur ekki lengur verið dóttir
mín í þáttunum,“ segir Bill Cosby.
Hver getur ímyndað sér þátt sem
gerist í heimavistarskóla þar sem
aðalpersónan er ófrísk smástelpa. Ég
get ekki séð þáttinn þannig fyrir
mér,'1 segir fyrirmyndarfaöirinn.
Nú er Lisa Bonet heimavinnandi
og bíður þess að verða léttari. Eigin-
maðurinn, rokkstjarnan Lenny Kra-
vitz, spilar í næturklúbbum í Los
Angeles. Eitt hefur Lisa Bonet þó
lært af fyrirmyndarfööurnum Bill
Cosby; að fela sitt einkalíf. Þess
vegna hefur hún ekki sýnt sig opin-
berlega síðan hún fór að fitna að ráði.
Og hún ætlar víst ekki að hlaupa
með tvíburana sína fram fyrir
myndavélar blaðaljósmyndara þegar
þeir koma í heiminn.
\úxtasneið
Mmæll sreikningsins
er heil kaka
út af fyrir sig
Afmælisreikningur er sterkur reikningur sem upphaflega var stofnaður
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans 1986 og var aðeins opinn út afmælisárið.
Reikningurinn öðlaðist skjótt miklar vinsældir og hefur
nú verið opnaður á ný. Afmælisreikningur er að fullu verðtryggður og gefur
að auki fasta 7,25% ársvexti allan binditímann sem er aðeins 15 mánuðir.
Hann hentar því mjög vel til almennra
tímabundinna nota og er M Landsbanki
auk bess kiörin afmæliseiöf. Km k clanrlc