Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
Sérstæð sakamál_________dv
Síðasti kapítulinn
var óskrifaður ...
„Þú ert stórkostleg!" hvíslaöi ríki,
miöaldra kaupsýslumaöurinn í eyra
ungu, ljóshærðu stúlkunnar þegar
hann setti demantshringirm á fingur
hennar. Hún þakkaði honum fyrir
hann og hvatti hann til þess aö gefa
sér fleiri demantsskartgripi, því
„demantar eru bestu bestu vinir
hverrar stúlku,“ eins og hún komst
aö orði.
Fyrstu kynni
af ljóshæröu stúlkunni Clare Jones
hafði kaupsýslumaðurinn Leonard
Moon á ráðstefnu í Royal Lancast-
ergistihúsinu í London. Fjórum
árum síöar höfðu þau ákveðið að
gifta sig. Við kynnin var Moon fimm-
tíu og níu ára en Clare Jones tvítug.
Hann hefði því vel getað verið faðir
hennar og jafnvel afi. En það kom
þó ekki í veg fyrir náin kynni.
Gisele
kona Moons var með honum á ráð-
stefnunni í London en varði þar
miklu af tíma sínum í aö ræða við
aðra gesti enda mun hún ekki hafa
haft sérstakar áhyggjur af því að
maður hennar færi að gera hosur
sínar grænar fyrir öðrum konum.
Það hefði henni að minnsta kosti
þótt ólíkt honum.
Þó var það svo að Leonard Moon
gat vart haft augun af ungu stúlk-
unni sem hann hafði verið kynntur
fyrir og hét Clare Jones. Hún virtist
líka kunna vel við sig í félagsskap
hans.
Þetta kvöld
er Moonshjónin voru gengin til
náða, reis Leonard Moon úr rekkju,
sveipaði um sig sloppi og fór til her-
bergis Clare Jones. Hún opnaði strax
fyrir honum enda hafði það orðið aö
samkomulagi með þeim að hann
kæmi til hennar. Var þetta sú fyrsta
af mörgum leynilegum heimsóknum
hans á herbergi hennar í Royal Lan-
castergistihúsinu á meðan ráðstefn-
an stóð þar.
örlátur
Moon reyndist mjög ónískur á fé
þegar Clare var annars vegar og
eyddi verulegum fjárhæðum í gjafir
til hennar. Það fór þó ekki hjá því
að eiginkonan, Gisele, fengi af því
fregnir að maður hennar var farinn
að halda fram hjá henni. Hún ákvað
að sýna skynsemi í þeirri von að það
gerðu aörir sem málið snerti. Um
jólin þetta ár bauð hún Clare heim
því hún vonaðist til þess að það yrði
að minnsta kosti manni sínum
hvatning til að binda enda á sam-
bandið við ungu stúlkuna. Svo fór
þó ekki.
Fór að skrifa bók
í staö þess aö snúa baki við Clare
og reyna að bjarga hjónabandinu gaf
Moon sig æ meira á vald ástarvím-
unni. Reyndar var Clare nú orðin
honum meira virði en flest annað og
því settist hann við skriftir. Var það
ætlun hans að láta frá sér fara skáld-
sögu um ástarsamband þeirra Clare
og svo viss var hann um að bókin
yrði góð ástarsaga að hann sneri sér
til bókaútgefanda sem hann þekkti,
ungrar konu að nafni Gaynor Evans.
Mun taka fram bókum
Cartland
„Þessi bók,“ sagði Leonard Moon
við Gaynor Evans, „mun taka fram
öllu því sem Barbara Cartland hefur
skrifað. Hún segir söguna af ástum
miðaldra manns og ungrar stúlku.
En ég er ekki enn búinn að skrifa
síðasta kapítulann. Og endirinn á
auðvitað helst að verða góður.“
Gaynor Evans brosti er hún heyrði
þetta og bað Moon að koma aftur til
sín þegar hann hefði lokið við aö
skrifa kapítulann sem enn vantaði.
Hjónabandshugleiðingar
Bókin var Leonard Moon þó ekki
efst í huga. Hann var búinn aö
ákveða að kvænast Clare Jones en
ætlaði þó ekki að segja konu sinni frá
þvi fyrr en á síðustu stundu.
Sumarið 1983 fékk Moon þó að
kynnast því hvernig fariö getur með
samband ungrar konu og manns sem
er næstum fjörutíu árum eldri en
hún. Það gerðist dag einn þegar hann
hafði keypt gríðarmikinn blómvönd
og látið senda hann heim til Clare
en síðar um daginn ætlaði hann aö
draga trúlofunarhring á fingur henn-
Gisele Moon.
ar yfir kvöldverði í góðu veitinga-
húsi.
Einn við borð í tvo tíma
Er Leonard Moon var sestur við
borðið sem hann haföi pantað í veit-
ingahúsinu fékk hann sér martini-
hanastél á meðan hann beið eftir
Clare. En hún kom ekki. Er hann
hafði beðið í tvær stundir var hann
orðinn bálreiður og ákvað að yfirgefa
veitingahúsið. Hann hélt beint heim
til Clare en komst þá að því aö hún
var ekki heima. í öskutunnunni sá
hann aftur á móti blómvöndinn sem
hann hafði sent henni fyrr um dag-
inn.
Nýr unnusti
Einn af nágrönnum Clare Jones,
sem bar kennsl á Leonard Moon, gaf
honum svo þá skýringu aö fyrr um
kvöldið hefði Clare farið út með ung-
um manni sem hún hefði oft verið
með í seinni tíð.
Moon fór á vinnustað Clare daginn
eftir og bað hana þess lengstra orða
að láta nýja kærastann lönd og leið
svo að þau gætu gert alvöru úr þvi
að gifta sig. Til þess að sýna henni
hve mikil alvara honum var tók
hann fram trúlofunarhringinn sem
hann hafði ætlað að draga á fingur
Clare kvöldið áður.
„Þú ert of gamall fyrir mig,“
sagði Clare þá við Moon. Hann vildi
samt ekki gefa sig og fór að segja
henni frá ástarsögunni sem hann var
að skrifa og kapítulanum sem hann
hafði enn ekki lokið við.
Þá sneri Clare sér beint að honum
og sagöi hvasslega: „Nefndu mig ekki
á nafn. Finndu þér aðra stúlku svo
þú getir lokið við hann! Og reyndu
ekki aö hafa oftar samband við mig
því ég vil ekki hafa neitt meira með
þig að gera.“ Svo opnaði Clare Jones
dyrnar og vísaði honum út.
Lögreglan ræðir við
Leonard Moon
Nokkrum dögum síðar, er Moon
hafði gert ítrekaöar tilraunir til þess
að hafa samband við Clare, fékk
hann upphringingu frá lögreglunni.
Hafði Clare þá haft samband við
hana til þess aö biðja hana um að
reyna að fá Moon til að láta sig í friði.
„Þú gerðir best í því að gera eins
og stúlkan biður um,“ sagði lögreglu-
þjónninn.
En Leonard Moon var ekki sú
manngerð sem er gefin fyrir að þiggja
góð ráð, ekki heldur þótt þau komi
frá lögreglunni.
Skotæfingar
urðu næsta áhugamál Moons.
Hann keypti sér haglabyssu og fór
að stunda skotæfingar á fáfórnu
svæöi. Brátt hafði hann náö mikilli
leikni með vopnið. Þar kom svo að
hann þóttist hafa náð svo góðum tök-
um á því að hann taldi að tími væri
til kominn að hrinda í framkvæmd
þeirri áætlun sem hann hafði gert
en tilgangurinn með henni var að
láta Clare Jones gjalda fyrir fram-
komu sína við hann.
29. nóvember
þetta ár hlóð hann rifíilinn og ók
til norðurhluta London en þar bjó
Clare. Hann beið þar fram í myrkur
en þá kom hún heim. Moon gekk þá
til hennar en hún hratt honum þegar
frá sér og kvaöst ekki vilja sjá hann
aftur. „Þú ert of gamall fyrir mig,“
sagði hún. Svo sneri hún við honum
bakinu og gekk frá honum. Hljóp þá
Moon aftur að bílnum sínum.
Árásin
Augnabliki síðar sá Clare Moon
með haglabyssuna í höndunum. Hún
lamaðist af hræðslu og gat sig ekki
hreyft. Svo tók hann í gikkinn og á
nokkrum augnablikum skaut hann
öllum fimm skotunum. Það fyrsta
lenti í bakinu á Clare en hin fjögur
í brjóstinu.
í nokkrar sekúndur stóð Moon
grafkyrr en gekk síðan rólega burt
er fólk dreif að.
Moon gekk að næsta símaklefa. Þar
hringdi hann í konu sína og bað hana
um að hafa samband viö lögregluna
og sjá til þess að hann yrði sóttur.
Lögreglan nálgaðist hann af varúð
því hann hélt enn á rifílinum.
Fyrir Old Bailey-réttinn
Er Moon hafði verið handtekinn
hófst rannsókn málsins þegar í stað.
Meðal þeirra gagna sem í ljós komu
var vasabók Clare og í henni stóð
meðal annars: „Menn eins og Moon
koma sér vel fyrir ungar og metnað-
argjarnar konur.“ Lýsir setningin ef
Haglabyssan.
til vill betur en flest annað hégóma-
girni miðaldra manns sem heldur að
hann sé genginn í hlutverk sér miklu
yngri manns og hættulegri afstöðu
stúlku sem telur sér óhætt að leika
sér. með tilfinningar mun eldri
manns sem þolir illa áfóll af þessu
tagi.
Málið kom fyrir Old Bailey-saka-
málaréttinn í London. Þar lýsti Moon
því yfir að hann hefði ekki ætlað sér
að drepa Clare Jones, aðeins hræða
hana. Kviðdómendurnir gátu ekki
fallist á skýringu hans. Þóttu þær
koma illa heim og saman við marg-
endurteknar skotæfingar hans.
Fékk ævilangan dóm
Kona hans, Gisele, var viðstödd er
dómurinn var kveðinn upp. Var það
lífstíðardómur sem þýðir að maður
á hans aldri getur vart gert sér von
um aö verða náðaður áður en ævin
er úti.
Síðar var haft eftir einum fanga-
varðanna í fangelsinu þar sem Moon
er núna: „Hann fær þó að minnsta
kosti tækifæri til aö skrifa síðasta
kapítulann."
Kaldhæðnisleg orð en vafalaust
sönn.
Æfingasvæðið.
Clare Jones og Leonard Moon.