Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 38
54 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. St Adua Pavarotti um eiginmanninn: ,,Hann er líka meistari í að búa til maf „Það er ekki auövelt að vera gift frægasta tenór heims en það er spennandi." Svo segir Adua Pava- rotti, eiginkona Luciano Pavarotti, söngvarans heimsþekkta. „Ef Pa- varotti hefði valið sér kennslu sem ævistarf heföi lífið orðið auðveld- ara en leiðinlegra." Adua og Luc- iano Pavarotti hafa verið gift síöan 1961. „Hjónabandið hefur reyndar ekki alitaf veriö auðvelt," viður- kennir hún. „Það segir sig sjálft að það er ekki mjög auðvelt að búa með heimsþekktum tenór. Ég hef lært að láta hann í friði þegar mik- ilvægir tónleikar eru framundan eða frumsýning á óperu. Honum finnst þá betra að vera einn.“ Fyrir stuttu síðan hélt Pavarotti tónleika í Stokkhólmi og gaf blaða- mönnum færi á að hitta sig í ítalska sendiráðinu. Meðan sá fundur stóð yfir hélt Adua sig bakatil og lét lít- ið fyrir sér fara. Þannig er hún, heldur sig nálægt eiginmanninum en ekki í sjálfu sviðsljósinu. Hægri hönd mannsins „J£g fer oft meö manni mínum í ferðalög en auðvitað get ég það ekki alltaf,“ segir hún. Ég starfa sem kennari og er oft bundinn yfir því. Einnig starfa ég við að hjálpa og styðja unga óperusöngvara.'1 Adua Pavarotti er þar fyrir utan hægri hönd eiginmannsins í hinum ýmsu málum og hefur til dæmis afskipti af samningum hans. Sjálf- ur segir söngvarinn að Adua sé aðalmanneskjan í lífi hans. „Þaö má ekki gleyma því aö maður á líka líf fyrir utan sviðið og þá er gott að hafa góðan stuðning frá fjöl- skyldunni." Það kemur vel í ljós þegar Pava- rotti er einn á ferð að hann vantar mikiö því símreikningar hans heim til konunnar eru dýrari en hótel- reikningarnir. Þau hjónin búa í stóru húsi í Modena ásamt þremur dætrum, Lorenza, 24 ára, Christ- ina, 22 ára, og Giuliana, 21 árs. Auk þeirra búa í húsinu systir söngvar- ans, mágkona, móðir hans Adela, ritari hans og þjónustufólk. Kannski margt fólk en það er að- eins Luciano Pavarotti sem syngur í þeirri fjölskyldu. Þrífur aldrei húsið Húsið þeirra í Modena er með þrjátíu herbergjum en það er bara vetrarbústaður. Á sumrin býr fjöl- skyldan í Pesaro við Adríahafið. Pavarotti á einnig hús í Monte Carlo. Venjulega er hann félags- lyndur og vill hafa margt fólk í kringum sig. „Því miður hefur engin af dætr- um mínum haft áhuga fyrir söngn- um,“ segir hann. Þegar kona hans er spurð hvort Pavarotti sé hjálp- samur eiginmaður svarar hún glottandi: „Ja, hann hefur aldrei þrifið. Ég hef heldur aldrei séð hann vaska upp. En hann er meist- ari í að búa til góðan mat. Og af því hreykir hann sér.“ Það sést reyndar vel á húsbónd- anum og söngvaranum að hann er sælkeri. Þó hefur hann misst 40 kíló og er um 150 kíló á þyngd um þessar mundir. Hann varð að létta sig vegna raddarinnar. Eftir að söngvarinn varð fimmtugur hefur hann fengið meiri áhuga á að huga að heilsunni en áður var. Nú sneið- ir hann hjá feitmeti. Sagt er að Pavarotti eldi sjálfur matinn sinn á hótelherbergjum á ferðalögum. ítalskur matur er í uppáhaldi hjá honum og klæðnaður finnst hon- um eigi að vera litríkur. Höfuö- búnaður fmnst honum einnig nauðsynlegur og Pavarotti kaupir venjulega einhvern klæðnað í þeim löndum sem hann heimsækir. Þá verslar hann alltaf gjafir handa allri fjölskyldunni. Ekki skortir hann peninga né heldur aðdáendur því söngvarinn er bókaður næstu árin. Luciano og Adua Pavarotti hafa verið á ferðalagi um Skandinavíu. Fyrrverandi keisaraynja frans: Eg hef lært að lifa nýju lííi - Farah Diba býr ásamt fjórum bömum sínum í Bandaríkjunum Farah Diba, fyrrverandi keisara- ynja, sem orðin er fimmtug, má aldeilis muna tímana tvenna. Ekki er langt síöan hún lifði í allsnægt- um og lúxus. Nú býr frúin í Banda- ríkjunum með fjórum börnum sín- um. í rólegri götu á Nýja Englandi býr Farah Diba, drottning Persíu áriö 1959 og keisaraynja írans frá 1967- 1980. Á þeim árum vakti hún heimsathygli við hhð eiginmanns- ins fyrir tígulega framkomu. Nú tíu árum síðar hefur hún ekkert breyst þrátt fyrir flutninga og erííð ár. Það var árið 1978 sem fjölskyldan þurfti að flýja frá íran vegna Khomeinis og hans fylgdarliðs. Þau flýðu úr einu landinu í annað, hvergi var friður fyrir írönskum hermönnum. Tveimur árum síðar lést keisarinn í Egyptalandi og Farah Diba stóð ein eftir með fjór- um börnum þeirra, Farahnaz, Reza Pahlavi, Ah Reza og Leila. Heimilið er í íran „Daginn sem maðurinn minn lést er sá versti sem ég man eftir. Þó ég hafi saknað hans mikið er ég fegin að hann hefur ekki þurft að horfa upp á hvemig land hans hef- ur farið. Land stríðs og blóösúthell- inga.“ Undanfarin ár hefur Farah Diba búið í Bandaríkjunum en tel- ur samt ennþá að heimili hennar sé í íran. „Ég hef vanist því að búa hér og börnin kunna vel viö sig. Yngsta dóttir mín, Leila, var aðeins tíu ára ----! er við komum hingað og hún er núna eins og hver annar Ameríku- maður. Ég er alls ekki óhamingju- söm. Mig langar samt alltaf heim,“ segir hún og lítur í kringum sig á heimili sínu sem er skreytt pers- neskum mottum og öðrum mun- um. „Þessir hlutir skipta mig miklu máli. Þeir sýna mér hvaðan ég kem. Stundum finnst mér ég vera tré sem hefur verið rifið upp með rót- um og plantað niður í óhkum heimi. En ég er ekki sú manngerð sem sökkvir sér niður í fortíðina. Ég hugsa fremur í nútíð og fram- tíð.“ Þjónar á hverjum fingri Fyrir tíu árum hafði hún þjóna á Hjónin Farah Diba og Muhammed Reza Pahlavi voru hamingjusöm og Farah Diba heldur í minningarnar með myndum og hlutum frá heima- landinu. Farah Diba lifir einangruðu lifi. Hún á ekki marga vini enda segir hún að þá séu vandamálin færri. hverjum fingri en nú þarf hún að gera öll heimilisstörf sjálf. „í stað- inn hef ég verið miklu meira með börnum mínum en annars hefði orðið," segir hún. „Ég er í fyrsta lagi móðir með áhyggjur af börnum mínum. Þótt þau séu orðin fullorð- in finnst mér ennþá að þau þurfi á mér að halda." Farah segir að hún hugsi oft til eiginmannsins. „Ég meira að segja tala við hann þegar ég er ein. Oft biö ég hann um ráðleggingar." Annað hjónaband segir Farah að komi ekki til greina. „Minningin um manninn minn er til að lifa með.“ Farah segir að síðustu ár hafi þroskað hana mikið og gefið henni mikla reynslu. „Líklegast verð ég meira einmana þegar börnin eru öll farin frá mér. Yngsta dóttir mín er aö fara í menntaskóla og flytur þá að heiman." Lífið verður að halda áfram Fyrrverandi keisaraynjan er mikið fyrir íþróttir. Hún spilar tennis, syndir og fer á skíði. Vina- hópur hennar er ekki stór. Þó held- ur hún alltaf sambandi við Jehan Sadat, ekkju forseta Egyptalands. Á hverjum degi skrifar Farah bréf til gamalla íranskra vina, flestra landflótta. „Ég hef ekki áhuga á að eiga stór- an vinahóp. Ég vil heldur eiga færri og betri vini. Færri vinir - færri vandamál. Gamalt íranskt máltæki segir: Eftir því sem þakið þitt er stærra færðu meiri snjó á það. Ég vil minnast írans eins og það var fyrir byltinguna, fallegu sveit- irnar, bæina, trén og fjöllin. Mér þykir vænt um landiö mitt og fólk- ið sem þar býr. Ég reyni aö hlæja og skemmta mér, annars verður sorgin óbærileg. Lífið verður jú aö halda áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.