Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 42
58 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
Áskorendaeinvígin hafin:
Speelman áfram en
Short er úr leik
Óvænt úrslit urðu í áskorendaein-
T vígi ensku stórmeistaranna Nigels
Short og Jonathans Speelman sem
haldið var í London í ágúst. Short
sem hefur verið í fremstu röð stór-
meistara síðustu ár, þrátt fyrir að
hann sé aðeins 23ja ára gamall, varð
að lúta í lægra haldi og þar með er
hann úr leik í heimsmeistarakeppn-
inni.
Einvígi Shorts og Speelmans var
hið fyrsta fjögurra áskorendaein-
vígja en hin verða háö í janúar. þar
er fyrst að telja einvígi Jóhanns
Hjartarsonar við Anatoly Karpov
sem hefst 28. janúar í Seattle á Vest-
urströnd Bandaríkjanna; Timman og
Portisch munu tefla í Brussel og
Spraggett og Jusupov tefla í Toronto
-4 í Kanada. Þessir skákmenn tefla um
réttinn til aö skora á heimsmeistar-
ann Garrí Kasparov. Þetta eru stutt
einvígi, aðeins sex skákir og nægir
að fá 3,5 vinninga til aö sigra.
Líklegast hafa flestir talið' Short
sigurstranglegri ensku stórmeistar-
anna tveggja en Speelman, sem verð-
ur 32ja ára daginn sem heimsbikar-
mótið hefst í Reykjavík, hefur verið
í örri framfór. Sumir spáðu hönum
meira aö segja sigri fyrirfram, eins
og t.d. Viktor Kortsnoj. Speelman er
L stærðfræðingur og mikill hugvits-
** maður við skákborðið. Short teflir á
hinn bóginn „beinna af augum” enda
mun sjón hans vera betri en Speel-
mans, sem gengur um með hnaus-
þykk gleraugu.
Svo fór að fyrstu tvær skákimar
urðu jafntefli. Fyrsta skákin eftir 23
leiki í drottningarbragði, þar sem
Speelman hafði hvítt og komst ekk-
ert áleiðis. í 2. skákinni tefldi Speel-
man franska vörn sem bersýnilega
kom Short á óvart. Hann reyndi að
þrýsta að stöðu Speelmans en hafði
ekki árangur sem erfiði. Eftir 33 leiki,
er tímahrak var yfirvofandi á báöa
bóga, bauð Speelman jafntefli sem
Short þáði.
Fyrir þriðju skákina var því útlit
fyrir að nokkuð jafnræði yrði með
þeim félögum í einvíginu en í þriðju
skákinni voru Short gjörsamlega
mislagðar hendur. Eftir aðeins 15
leiki stóð staða hans í björtu báli og
ósigrinum var aðeins frestað í 12 leiki
til viðbótar. Þar með hafði Speelman
náð forystunni, 2-1 og sigurganga
hans hélt áfram.
Skemmtilegasta skákin í einvíginu
var sú fjórða, þar sem Speelman kom
enn á óvart og beitti Pirc-vörn. Mik-
ill kliður fór um salinn (teflt var í
kvikmyndahúsi í Barbican í London)
er Speelman fórnaði manni í 21. leik.
Fórnin virtist hæpin, þar sem Speel-
man fékk aðeins tvö peð í skiptum
fyrir manninn. Báðir lentu hins veg-
ar í miklu tímahraki og skyndilega
réð Short ekki við neitt. Svörtu
mennirnir gerðu innrás, drottning
og hrókur komust niður á 2. reitaröð
og mát blasti við Short.
Staðan 3-1 og þar með voru úrslitin
nánast ráðin. Speelman nægði jafn-
tefli með hvítu mönnunum í fimmtu
skákinni og fékk það án teljandi erf-
iðleika. Lokatölur urðu því 3,5 - 1,5
Speelman í vil sem er til alls líkleg-
ur. Skyldum við verða vitni að ein-
vígi hans við Kasparov um heims-
meistaratitilinn?
Skoðum 3. og 4. skákir einvígisins.
Þriðja einvígisskákin:
Hvítt: Jonathan Speelman
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð.
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7
5. Bf4 0-0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5 8. Dc2
Rc6 9. a3 Da5 10. 0-0-0!?
Nýjasta sveiflan í skákfræðunum,
í stað 10. Hdl sem skákunnendur
kannast við, m.a. úr baráttu Karpovs
og Kortsnojs. Mikhail Gurevits, sá
er tefldi hér á Reykjavíkurskákmót-
inu og alþjóðamótinu á Akureyri,
hrókaði langt gegn Andrei Sokolov á
sovéska meistaramótinu á dögunum
og Speelman hefur hrifist af.
10. - Be7
í skák Gurevits og Sokolov varð
framhaldið: 10. - dxc4 11. Bxc4 Be7
12. g4!? b5 13. Bxb5 Bb7 14. Rd2 Rb4?
15. axb4 Bxb4 16. Rc4 Dal + 17. Kd2
Bxc3+ 18. Ke2!! Da2 19. Hal! og So-
kolov varð að gefast upp, því að
drottningin er fónguð. Short vill ekki
gefa eftir á miðborðinu.
11. g4 Hd8 12. h3 a6 13. Rd2 e5?
Afleikur sem gefur svörtum tapað
tafl. Stórmeistarinn Keene benti á
tilraunina 13. - b5 14. g5 bxc4!? 15.
gxfB BxfB sem gefur nokkur gagnfæri
fyrir mann.
14. g5 Re8
X AX 4l #
7 A iii 1
6 A *
vU£/ 5 W A A A
4 A Jsl
3 A ■ A A
2 A & ,
1 A B M 2 C D Á E F G S H
15. Rb3! Db6
Hinn reiturinn sem drottningin á
völ á er engu betri. Eftir 15. - Dc7 16.
Rxd5 Db8 17. Rxe7+ Rxe7 18. Hxd8
er svarta taflið tapað.
16. Rxd5 Hxd5 17. cxd5 exf4 18. dxc6
Hvítur hefur unnið skiptamun og
staða hans er sterk.
18. - fxe3 19. fxe3 Bxg5 20. Kbl bxc6
21. Bc4 Ha7 22. Hhfl Bf6 23. De4 Kfö
24. Dxh7 g6 25. e4 c5 26. e5 Bg7 27. e6!
Og Short gafst upp.
Fjórða einvígisskákin:
Hvítt: Nigel Short
Svart: Jonathan Speelman
Pirc-vörn.
1. e4 d6 2. d4 g6 3. Rc3 Bg7 4. f4 Rfö
5. Rfö 0-0 6. Be2 c5 7. dxc5 Da5 8. 0-0
Dxc5+ 9. Khl Rc610. Bd3 Bg4 11. Del
Bxfö 12. Hxfí Rb4!?
Speelman leitar eftir uppskiptum á
hvítreita biskupi hvíts. Aður hefur
svartur reynt 12. - Rd4 í stöðunni en
í því tilviki er hvíta staðan betri.
13. Be3 Rxd3 14. cxd3 Db4 15. Hbl a5
Sem svar við væntanlegum sókn-
artilraunum hvíts á kóngsvæng ætl-
ar Speelman að sækja fram á drottn-
ingarvæng. Áætlun hans er athyglis-
verð en þó virðist hvítur hafa undir-
tökin.
16. f5 Hac8 17. Bgl a4 18. a3 Db3 19.
Bd4!? e6 20. Dgl b5 21. g4
X X # ííí
A i4i
A A
A ÉL A A
A#4A A S
A A
S
ABCDEFGH
21. Rxg4!?
Bráðskemmtilegur leikur, hvort
sem mannsfórnin stenst fullkomlega
Skák
Jón L. Árnason
eða ekki. Eitthvað varð svartur
a.m.k. aö taka til bragðs áður en
hvítur næði að leika 22. g5 og kaf-
sigla hann kóngsmegin. Nú strandar
22. Dxg4 vitaskuld á 22. - Bxd4 og
svarið við 22. Bxg7 Kxg7 23. Dxg4
yrði 23. - Hxc3 og áfram 24. fö + Kh8
25. Dh4 Hxd3 26. Dh6 Hg8 og svartur
kemst hjá máti.
22. fö! Rxfö 23. Bxfö b4!
Hvítur hefur unnið mann en frum-
kvæði svarts á drottningarvæng er
býsna óþægilegt.
24. Bxg7 Kxg7 25. axb4 a3! 26. Ddl
Dxb4 27. Hf2 axb2 28. Ra2 Dd4 29.
Hfxb2 d5 30. Hb4 Da7 31. Rcl dxe4 32.
dxe4?
Rétt er að geta þess að tímahrakið
var í algleymingi er hér er komið
sögu. Hugsanlega hefur Short getað
teflt betur eftir mannsfórnina og
áreiöanlega hér. Nauðsynlegt var 32.
Hxe4. Nú verður frumkvæði svarts
óviðráðanlegt.
32. - De3! 33. Dgl Dfi + 34. Dg2 Ddl +
35. Dgl Hfd8! 36. Rb3
Hvað annað?
36. - Dfö+ 37. Dg2 Hdl+ 38. Hxdl
Dxdl+ 39. Dgl De2! 40. h3
Ef 40. Dg2, þá 40. - Del + og Hb4
fellur.
40. - Hc2
Short gafst upp, því að hann er
varnarlaus gegn 41. - Df3 + , eða 41.
- Dxe4+ eftir 41. Rd4. Fjörug skák,
þar sem Speelman náði á dæmigerð-
an hátt að „sprikla" til sigurs.
-JLÁ
'Trompdrottningin
lá rétt en það
dugði samt ekki
Sveit Pólaris sigraði naumlega í
Sanitas-bikarkeppninxú sem spiluð
var til úrslita um sl. helgi á Hótel
Lofitleiðum.
Andstæðirigarnir, sveit Braga
Haukssonar, börðust hraustlega,
unnu tvær lotur, jöfnuðu eina en töp-
uðu samt með 11 impum þegar Pólar-
is vann síðustu lotuna.
Það mætti raunar segja að spilið í
dag hefði ráðið úrslitum í keppninni.
Það kostaði sveit Braga 16 impa en
hún tapaði aðeins með 11 impum.
Við skulum skoöa það nánar.
S/Allir.
♦ G7
-k V 1073
♦ 87
♦ ÁK10765
♦ 109842
V -
♦ 962
+ D9842
♦ ÁKD
V ÁKG852
♦ ÁK54
+ -
í lokaða salnum sátu n-s Karl Sig-
urhjartarson og Sævar Þorbjörnsson
en a-v Bragi Hauksson og Sigtryggur
Sigurðsson.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Þar gengu sagnir á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
2 L pass 2 T pass
2 H pass 3 L pass
3 T pass 3 H pass
3 S pass 4 L pass
6 H pass pass pass
Sævar veit að það er enginn tapslag-
ur fyrir utan tromplitinn og þótt lík-
legt sé að Karl eigi þrjú tromp þá
vantar örugglega trompdrottning-
una. Hann velur því öruggu slem-
muna.
í opna salnum sátu n-s Ásgeir Ás-
bjömsson og Hrólfur Hjaltason en
a-v Guðmundur Páll Arnarson og
Þorlákur Jónsson.
Þá gengu sagnir þannig:
Suöur Vestur Noröur Austur
1 L dobl 1 G pass
2 H pass 3 H pass
7 H pass pass pass
Svartir eða rauðir litir
Grand norðurs lofaöi 7-9 punktum
og þrjú hjörtu staðfestu góða punkta
og trompstuðning. Hrólfur vissi að
hann tók áhættu með alslemmunni
en eftir dobl vesturs taldi hann lík-
legt að trompdrottningin væri hjá
austri ef makker ætti hana ekki.
Hann hafði á réttu að standa með það
en hins vegar reið honum að fullu
aö hún var fjórða en ekki þriðja.
Þaö kostaði einri niöur og bikar-
meistaratitilinn.
Bridgefélag Hafnarfjaröar hefur eins kvölds tvímenningur, en 3.
árlega starfsemi sína mánudaginn október hefst fyrsta keppni vetrar-
19. september með eins kvölds tví- ins sem verður tveggja kvölda tví-
menningi. í vetur verður spilað á menningskeppni með Mitchell fyr-
raánudagskvöldum í íþróttahúsinu irkomulagi. Keppnisstjóri er, eins
við Strandgötu (uppi) og hefst og undanfarin ár, Ragnar Magnús-
spilamennskan kl. 19.30. Næsta son.
mánudag verður einnig spilaður
Bridgefélag
Siglufjarðar
Bridgefélag Siglufjarðar, elsta
bridgefélag landsins, hélt glæsilegt
afmælismót dagana 3. og 4. septem-
ber síðastliðinn í tilefni þess að 50
ár eru hðin frá stofnun félagsins.
Mótið fór fram á Hótel Höfn og voru
óvenjuhá verðlaun í boði. Mótið var
sterkt, og mörg þekkt pör tóku þátt,
en athygli vakti góð frammistaða
siglfirskra para. Efstu pör urðu:
1. Guðni Sigurbjamason
Jón Þorvarðarson, Rvk.......1305
2. Ásgeir Ásbjörnsson
Hrólfur Hjaltason, Rvk......1274
3. Ásgrímur Sigurbjörnsson
Jón Sigurbjörnsson, Sigluf.... 1253
4. Anton Sigurbjörnsson
Bogi Sigurbjörnsson, Sigluf.
..............................1238
5. Björk Jónsdóttir
Sigfús Steingrímsson, Sigluf.
..............................1230
Auk þess voru veitt ferðaverðlaun
fyrir hæstu skor hverrar umferðar,
og þau hlutu Guðni Sigurbjarnason
og Jón Þorvarðarson fyrir fyrstu
umferðina, Hjördís Eyþórsdóttir og
Anton Gunnarsson fyrir aðra umferð
og Jón Sigurbjörnsson og Ásgrímur
Sigurbjörnsson fyrir þriðju umferð.