Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Viðræðumar halda áfram:
Leitað stuðnings
einstakra þingmanna
í dag munu viðræður Framsóknar,
Alþýðuílokks og Alþýöubandalags
halda áfram. Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, segir Alþýðubandalag-
iö sammála um fjöldamargt í pakka
Framsóknar og Alþýðuflokks,
ágreiningur sé hins vegar um launa-
stefnuna; samningsréttinn og kaup-
máttinn. Matarskatturinn er lítill
þröskuldur.'
í viðræðum Steingríms við Stefán
Valgeirsson í gær kom fram að mikl-
ar líkur eru á að hann styðji stjórn
þessara flokka. Sá stuðningur er
nægjanlegur til þess að afgreiöa íjár-
lög og veijast vantrausti. Til þess að
fá önnur mál í gegnum þingið þyrfti
stjórnin að semja við einhverja þing-
menn stjórnarandstöðunnar.
Það er því líklegt aö samhliða því
að þessir flokkar ræðist við muni
þingmenn þeirra bera víurnar í þing-
menn annarra flokka. Helst er talað
um þingmenn Borgaraflokksins í því
sambandi. Það er mat þeirra sem
taka þátt í stjórnarmyndunarvið-
ræðum nú að ef tekst að mynda
stjórn muni Borgaraflokkurinn
halda áfram á þeirri niðurleið sem
hann var á áður en stjórnarkreppan
skall á. -gse
Villa í stjómarmyndunarplaggi Framsóknar og krata?
„Þarf gengisfellingu til að dæmið gangi“
- segir Friðrik Sophusson
„Ég sé ekki annað en að það sé
mikil villa í því plaggi sem Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur hafa
notað sem viðræðugrundvöll í
stjórnarmyndunarviðræðum sínum.
Ég hef látið Þjóöhagsstofnun reikna
þetta út fyrir mig og þeir hafa kom-
ist að því að það vantar verulegar
upphæðir til að frystingin komist í
jafnvægi eins og þeir þó segja,“ sagði
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sj álfstæðisflokksins.
í plaggi því sem um er að ræða og
heitir „Yfirlýsing um aðgerðir í efna-
hagsmálum" eru leidd rök að því að
unnt sé að koma rekstri frystingar í
‘/j% hagnað úr 8% tapi nú. Til þess
á að lækka raforkuverð um 25%, sem
að sögn Þjóðhagsstofnunar bætir hag
frystingarinnar um 0,5%, lækka
raunvexti um 3% og lækka vaxta-
mun afurðalána um 0,7% sem í mesta
lagi geti orðið 1,5%. Þarna vantar 3%
upp á til að ná 0.
„Ef þetta er svona þá er gengis-
felling á borðinu en hins vegar hefur
enginn nefnt gengisfellingu í þessum
viðræðum sem hafa átt sér stað,“
sagði Friðrik. Hann sagði að á þenn-
an hátt hefði plaggið verið kynnt
Borgaraflokknum.
Þá má geta þess að Þórhildur Þor-
leifsdóttir sagði í samtali við DV í
gærkvöldi að gengisfelling hefði ekki
verið rædd í viðræðunum við Stein-
grím í gær: „Aðeins voru nefnd þessi
3% sem þeir sögðu að þeir hefðu þeg-
ar rnisst."
-SMJ
Hard Rock Café í góögeröarsamvinnu við Kóka kóla:
Reykjavík á
milljónum
kókdósa
Á milljónum kókakóladósa, sem
seldar eru í búðum í Bandaríkjunum
um þessar mundir, er mynd af Hard
Rock Café í Reykjavík ásamt texta
um staðinn. Þar segir meðal annars
hvenær staðurinn hafi verið opnaður
og að hann sé tengiliöur tónlistar-
aödáenda við rokkið í þessu agnar-
litla landi eins og það er orðað.
Segir ennfremur að Hard Rock
Café-keðjan sé í samvinnu við banda-
rísku kókakólaverksmiðjurnar að
vekja athygli á bágri stöðu heimilis-
lausra fjöískyldna sem verða æ fleiri
vestra og rennur hluti af söluverði
dósanna til bandaríska Rauða kross-
ins.
Gunnar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Hard Rock Café í
Reykjavík, segir aö tónleikar nok-
kurra stórra nafna í rokkinu hafi
verið haldnir til styrktar málefninu
á Hard Rock Café í Los Angeles fyrir
stuttu og sé í bígerð að halda slíka
tónleika á Hard Rock-stöðunum
vestra á sex mánaða fresti.
-hlh
Þessi kókdós var keypt i verslun í Bandaríkjunum. A henni er sagt frá
Hard Rock Café í Reykjavik i „hinu agnarlitla landi“. Eiga milljónir slíkra
dósa að vera í umferð þar vestra. DV-mynd GVA
Fríkirkjudeilumar:
Stjómin ákveður að sitja áfram
- séra Gunnar fær enga lykla
Á fundi stjómar Fríkirkjusafnaö-
arins, sem haldinn var í gærkvöldi,
ákvað stjómin að sitja sem fastast
og láta séra Gunnar ekki hafa lykla
aö kirkjunni. Á þessum fimmta
stjómarfundi frá safnaðarfundinum
fræga í Gamla bíói fyrir rúmri viku
vom teknar ákvarðanir sem ganga í
berhögg við meirihlutaákvöröun
safnaðarfundar um að uppsögn séra
Gunnars frá því í vor sé ógild og
vantraust á stjómina og áskorun um
að hún segi af sér.
„Þessi ákvörðun stjómarinnar
byggist á lögfræðilegu áliti og var í
raun tekin fyrir löngu. Hún hefur
ekki verið opinbemð fyrr en nú,“
sagði ísak Sigurgeirsson, einn stjórn-
armanna, við DV í morgun.
Á stjómarfundinum komu einnig
fram hugmyndir um skoöanakönn-
un um séra Gunnar. Hvemig slík
skoðanakönnun yrði framkvæmd
eða af hveijum er ekki vitað. Til-
gangurinn mun samkvæmt heimild-
um DV vera að koma séra Cecil í
fast starf sem prestur í Fríkirkjunni.
„Þetta er skollaleikur af sérstakri
gráðu,“ sagði Þorsteinn Kristjáns-
son, einn stuðningsmanna séra
Gunnars, við DV.
„Við fómm, tveir stuðningsmenn
séra Gunnars, til Bertu Kristinsdótt-
ur stjómarmeðlims á sunnudag til
að reyna aö fá afhenta lykla að kirkj-
unni. Hún harðneitaði að verða viö
ósk okkar. Við erum sáttamenn og
höfum verið í allt sumar. Okkur
finnst illa farið með meirihluta safn-
aðarins þar sem samþykktir hans
eru hundsaöar í einhveijum laga-
krókum. Við verðum að fara að kalla
til safnaðarfundar á ný ef þessum
skollaleik fer ekki að Unna,“ sagði
Þorsteinn.
Nýr stjórnarfundur hefur verið
boðaður á fimmtudag.
-hlh
Gústaf Lilliendahl
Fangar geta
gengið burt
hvenær sem er
„Fangar geta gengið burt héðan
hvenær sem er. Giröingar hér era
ekki mannheldar. Það er þörf
úrbóta en ég sé ekki að verði ráð-
ist í framkvæmdir á næstunni.
Þetta er verkefni upp á tugi millj-
óna og þvi er þetta fjárhagsspurs-
mál. Lóðin er stór og þegar ménn
hafa útivist og eru við vinnu er
erfitt að koma í veg fyrir þetta,“
sagði Gústaf Lilliendahl, for-
stöðumaður á Litla-Hrauni.
Þegar hann var spuröur hvort
meira væri um að fangar strykju
en fólk gerði sér grein fyrir svar-
aði hann að nær undantekning-
arlaust birti DV fréttir af slíku
strax og fangi hefði strokið.
-sme
Skákmótið í Tilburg:
Jóhann vann
Portisch
í 10. umferð skákmótsins í Til-
burg kom loksins sigur hjá Jó-
hanni Hjartarsyni þegar hann
lagði Laios Portisch í 63 leikjum.
Þetta er fyrsti sigur Jóhanns gegn
Ungveijanum. Karpov vann Tim-
man en Short og Nikolic, Van der
Wiel og Húbner gerðu jafntefli.
Karpov er nú efstur með 7% v.
en Jóhann er í 7. sæti með 4 v.
-SMJ
Maimi bjargað:
Smábátur sökk
við Stokksnes
Fimm til sex tonna plastbátur
sökk í gær út af Stokksnesi. Einn
maður var á bátnum og tókst
honum að komast í gúmmíbjörg-
unarbát. Manninum var bjargaö
um borð í annan smábát.
Reynt var að draga sökkvandi
bátinn til lands. Tveir bátar, bæði
sá sem tók skipsbrotsmanninn og
annar stærri, reyndu að draga
bátinn sem maraði í hálfu kafi.
Taugin, sem var á milli bátanna,
slitnaði og við það sökk báturinn
endanlega. Lögreglan á Höfn
vinnur að hefðbundinni lögreg-
lurannsókn í málinu. -sme
Verðlaunuðu
og leku rusla-
ílátin lagfærð
Ruslaílátin, sem verðlaunuð
voru fyrir útlit og notagildi, en
hafa reynst meingölluð, veröa nú
lagfærð. í DV birtist mynd af hin-
um gölluðu ílátum. Nú er unnið
aö lagfæringum á þeim. ílátin
láku ef gosdrykkir, mjólkurhrist-
ingur eða annað slíkt var sett í
þau þar sem botninn fyllti ekki
út í kassann.
Nú er verið aö setja fótur í ílát-
in og á með því að koma í veg
fyrir lekann. -sme
Byggingarkostnaöur:
Árshækkun
11 prósent
Vísitala byggingarkostnaðar
hefur verið reiknuö út eftir verð-
lagi um miðjan september.
Reyndist hún vera 124,5 stig, eða
0,16% hærri en í ágúst. Gildir
þessi vísitala fyrir október.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaöar
hækkað um 21,6%. Síöustu þijá
mánuði hefur vísitalan hækkaö
um 2,6% og samsvarar það 11%
árshækkun. _jgg