Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Stjómarmyndimartikaimlr Steingríms:
Alþýðubandalagið hefur
áframhaldið í hendi sér
- Borgaraflokkur til viöræðu seiuna
„Hvorugur þessara aðila sagði nei.
Líkurnar til þess að mér takist að
mynda meirihiutastjórn hafa alls
ekki versnað," sagði Steingrímur
Hermannsson eftir fundi sína með
Stefáni Valgeirssyni og fulltrúum
Borgaraflokks í gær.
Niðurstaða fundanna varð að
Framsóknarflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn muni freista þess aö
halda áfram með viðræður við Al-
þýðubandalag. Hugsanlegu sam-
starfi við Borgaraflokkinn var síðan
haldið opnu þar til einhver niður-
staða kæmi fram í þeim viðræðum.
Stefáni Valgeirssyni var boðið að
ganga aftur í Framsóknarflokkinn
en hann hafnaði því. Hann lýsti því
hins vegar yfir að hann væri jákvæð-
ur fyrir viðræðum um hugsanlegan
stuöning við meirihlutastjórn undir
forsæti Steingríms.
Eftir að Kvennalistinn hafnaði öll-
um viðræðum um myndun meiri-
hlutastjórnar með Framsóknar-
flokki, Alþýðuflokki og Alþýðu-
bandalagi eru tilraunir Steingríms í
raun bundnar við afstöðu Alþýðu-
bandalagsins. Samanlagt hafa þessir
þrír flokkar 31 þingmann. Með Borg-
araflokki yrðu þingmennirnir 38.
Stefán Valgeirsson gæti tryggt stjórn
þessara þriggja flokka meirihluta í
sameinuðu þingi en hins vegar hefði
stjórnin ekki meirihluta í neðri deild.
„Það er alveg ljóst að ef við náum
ekki samstööu við Alþýðubandalagið
þá er þetta orðiö afar erfitt. Vitanlega
má segja að þeir hafi þarna lykil-
hlutverk," sagði Steingrímur.
í morgun klukkan hálf ellefu hófst
fundur þessara þriggja flokka þar
sem rætt verður um hugsanlegt
áframhald viðræðnanna.
-gse
Steingrímur J. Sigfússon um viöræður viö Framsókn og Alþýðuflokk:
Flokkamir sammála
um fjöldamargt
í pakkanum
- hafa rætt myndun minnlhlutastjórnar
„Það kom okkur mjög á óvart að ur er með umboö til að mynda er enn greinilegur ágreiningur
Kvennalistinn var ekki tilbúinn aö meirihlutastjóm og þaö hlýtur að uppi. Það er öllumn Ijóst að viö
ræða myndun meirihlutastjóraar vera hans aö meta hvað hann getur erum með mjög eindregnar kröfur
eða myndun ríkisstjómar yfirleitt gengið langt með sitt umboð. En hvaö varðar samningsréttinn og
nema þennan þjóðstjómardraum það er rétt að við höfum velt því kjaraskeröinguna. Við erum mjög
sem þær hafa sett fram. Þetta uppíokkarsamtölumhvaðamögu- hörðáþvíprinsippi.Þarhefurauð-
komst aldrei á þaö stig að málefni leikar gætu komið upp ef allir vitað ekki náðst neitt samkomulag.
skiptu máli," sagði Steingrímur J. möguleikar á meirihlutastjórn En hins vegar er fjölda margt ann-
Sigfússon eftir aö Ijóst var að reynast lokaðir en þaö er . of aö í pakkanum sem við höfum rætt
Kvennalistinn var ekki tilbúinn til snemmt að segja tii um það á þessu og við erum mjög nærri samkomu-
frekari viðræðna við Framsókn, stigi. lagi um. Mjög margt af því sem
Alþýöuflokk og Alþýöubandalag. - Hafið þiö og blokk Framsóknar þeir eru með i pakknum er ættað
- Hefúr möguieikinn á myndun og Alþýðuflokks nálgast í viðræð- úr samþykktum Alþýöubandalags-
minnihlutastjórnar þessara flokka unum? ins,“ sagði Steingrímur.
veriö ræddur? „Viö geröum það að þvi leyti að -gse
„Nú er þaö þannig aö Steingrím- við einangruðum þau mál þar sem
Ef Borgaraflokkurinn vill ekki ganga inn i viðræður Framsóknar, Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags er Stefán Valgeirsson það hálmstrá sem tilraun-
ir Steingríms Hermannssonar til að mynda meirihlutastjórn hangir á. Á
myndinn hafa þeir Steingrimur og Halldór Ásgrímsson Stefán á milli sin.
DV-mynd GVA
sagoi Albert
„Okkur miöaði ekki aftur á bak
og heldur ekki mikið áfram. Þetta
er í biðstöðu eins og var í upp-
hafi,“ sagði Albert Guðmundsson
að afloknum fundi hans, Júlíusar
Sólnes og Óla Þ. Guðbjartssonar
með Steingrími Hermannssyni,
„Við þekkjum ekki neraa tvo
flokka sem eru reiðubúnir að
mynda stjóra Steingríms. Ég veit
ekki hver þriðji flokkurinn á að
veröa. Við erum ekki reiðubúnir
að gefa svar fyrr en við vitum hver
það er. Við höfnum ekki neinum
viöræðum," sagði Albert.
Hann sagði hugmyndir nokkurra
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
um ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks,
Borgarflokks og Alþýðubandíúags
vera hugmyndir eins og hverjar
aðrar. Þetta væri ágiskun á vænta-
lega stöðu
upp.
ef Steingrímur gæfist
Ber fúlK traust
til Alþýðuflokks
- segir Steingrímur Hermannsson
„Eg ætla ekkert að segja um þetta
á þessu stigi. Við Alþýðuflokkurinn
stöndum að sumu leyti nokkuð sam-
an í þessu af því að við höfðum meiri
tíma til að samræma okkar sjónar-
mið. Ég ber fullt traust til Alþýðu-
flokksins í þessu sambandi. En að
sjálfsögðu getur allt komið upp í
þessu seinna,“ sagði Steingrímur
Hermannsson um hugsanlega ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks, Borgara-
flokksogAlþýðuflokks. -gse
í dag mæ]ir Dagfari
Allir að tala við alla
Stjórnarmyndunarþófið hélt
áfram í gær en síðdegis var htlar
fréttir að hafa af gangi mála. Virð-
ist eitthvað hafa slegið á yfirlýsin-
gagleði stjórnmálaforingjanna
þriggja sem slógust um að komast
í alla fréttatíma dagana sem þeir
unnu aö því að sprengja samstarf-
ið. Nauðug viljug varð þjóðina að
þola stöðugar yfirlýsingar foringj-
anna daginn út og daginn inn um
allt og ekkert með þeim afleiðing-
um að nú má almenningur ekki til
þess hugsa að kosið verði á næst-
unni með tilheyrandi argaþrasi
vikum saman. Sumir vilja halda
því fram aö fjölmiðlar hafi átt þátt
í falli stjórnarinnar. Það er stutt
þeim rökum að ef fjölmiðlar hefðu
ekki verið svona aðgangsharðir við
stjómarmenn og birt allt sem þeir
sögðu og líka það sem þeir hugsuðu
en sögðu ekki þá hefði þessi fjand-
skapur ekki komið upp milli for-
ingjanna þriggja. Aðrir eru þeirrar
skoðunar að þótt hljóðnemi sé rek-
inn upp að nefi manna þýði það
ekki að hinir sömu þurfi að buna
út úr sér öllu sem þeir vita hvað
þá að þeir þurfi að romsa upp alls
konar söguburði um aðra. En nú
eru menn ekki alveg eins yfirlýsin-
gaglaöir enda er veriö að reyna aö
böggla saman stjórn en ekki
sprengja. Alþýðubandalagið leggur
mikla áherslu á að fá Kvennalis-
tann inn í Steingrímu. Það má ekki
til þess hugsa að konurnar fái að
spila frítt í stjómarandstöðu með-
an Alþýðubandalagið tekur þátt í
óvinsælum ráöstöfunum. Þær eru
hins vegar klókar sem fyrri daginn
og vilja bara þjóðstjóm til að redda
málum til bráðabirgða og láta svo
kjósa sem fyrst. Þetta hst gömlu
flokkunum ekki á því þeir eru log-
andi hræddir við útkomuna. Stein-
grímur heldur því áfram aö tala
við Ólaf Ragnar og Jón Baldvin
fylgir Steingrími í hvert fótmál
enda kemst ekki rýtingurinn á
milli þeirra tveggja þessa dagana.
Albert talar við alla sem vilja yrða
á hann eins og fyrri daginn en seg-
ist ekki hafa hlaupið úr Sjálfstæðis-
flokknum til þess að koma hér á
kommúnisma í félagi við Ólaf
Ragnar. Auk þess veröi minni-
hlutastjóm Sjálfstæðisflokks og
Borgaraflokks stærri en minni-
hlutastjóm Framsóknar og krata
þótt hún verði ekki eins stór og
minnihlutastjóm krata, Fram-
sóknar og Alþýðubandalags. Stefán
Valgeirsson getur vel hugsað sér
aö koma til hðs við A-flokkana og
Framsókn gegn því að hann fái
áfram að velta sér upp úr bitlingum
í bönkum og sjóðum. Það er því
fundaö í öllum homum dag og nótt.
Matti Matt brá við skjótt þegar
hann frétti til Seoul að stjórnin
væri sprungin og flaug á 33 klukku-
stundum heim. Mætti gustmikhl á
leikvanginn hér heima því ef svo
færi að Sjálfstæðisflokkurinn lenti
í stjórn þá ætlaði Matti sér sæti í
aðalhðinu en veit hins vegar af
fyrri reynslu að til að ná í ráð-
herrasæti þurfa menn að berjast
með hnúum og hnefum því margir
eru kahaðir en fáir útvaldir. En
hvað Birgi varðar var hann ekki
lagður upp í langflug til Kóreu þeg-
ar ósköpin dundu yfir og hans
ólympíuferö verður því ferðin sem
aldrei var farin. Steingrímur tók
sér þijá eða íjóra daga til aö mynda
stjórn. Ef hvorki gengur né rekur
verður hann að grípa til þess ráðs
að fá góða mataruppskrift hjá
Bryndísi og láta viðræður viö for-
ystumenn annarra flokka fara
fram við eldhúsborðið heima hjá
sér. Allar hugmyndir varðandi
stjórnarsáttmála, sem flokkarnir
setja á blað, em samstundis stimpl-
aðar sem trúnaðarmál svo öraggt
sé að þeim verði dreift jafnharðan
til fjölmiðla. Sérstaklega keppast
sjónvarpsstöðvamar við að bregða
á skjái einhveijum pappírum sem
eru rækilega merktir sem trúnað-
armál. Er það eflaust gert í þeim
tilgangi að sýna sjónvarpsnotend-
um það svart á hvítu hvað þeir
sjónvarpsmenn eru duglegir við að
hnupla leyniskjölum þótt stað-
reyndin sé hins vegar sú að trúnað-
arskjölum sem þessum er spreðað
út í haugum til fjölmiðla sem þurfa
ekki annað en rétta út höndina og
taka á móti. En alltaf eru að koma
fram nýjar hugmyndir í viðræðum
flokkanna og ekki gefst tími til að
sefja þær allar niöur á trúnaðar-
pappíra. Viðtöl við fjölmiðla taka
mikinn tíma frá pólitíkusunum
enda er svo að sjá sem þeir hafi
miklu meiri áhuga á að tala við fjöl-
miðla en halda uppi löngum sam-
ræðum sín á milli. Stöðugt er hins
vegar hamrað á nauðsyn þess aö
grípa til aðgerða nú þegar því allt
sé að sigla í strand. Það væri
kannski ráð að læsa forystumenn
flokkanna inni og hleypa þeim ekki
út fyrr en stjórn væri komin á
koppinn.
Dagfari