Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
19
Sviðsljós
Sundlaugarnar um borð eru margar þannlg gerðar að ef mann langar ekki
til að synda er hægt að breyta sundlauginni í nuddpott með þvi að ýta á
einn takka.
Cher
bættist á dögunum í þann hóp
frægra kvenná £em framleiðir
ilmvatn og reynir síðan að selja
venjulegu fólM sem trúir því að
með því að kaupa ilmvatnið sem
einhver auglýsir sé maður orðin
ný manneskja. Ilmurinn hennar
Cher heitir Uninhibited (óheft
eða óþvingað) og þykir mörgum
það nafn vera vel við hæfi. Hér
er Cher með fjölskyldustærðina
af ilminum.
’
Baðherbergin um borð eru þannig að maður verður eiginlega að setja upp
dökk solgleraugu þegar maður fer þangað inn þvi að þar er nær allt úr
skíragulli.
Borðstofan er ekkert slor því þar er hægt að halda sitjandi kvöldverðar-
borð fyrir sextiu og fimm manns.
Það er sennilega allt í lagi að verða sjóveikur um borð í Trump prinsess-
unni ef maður fær að leggja sig aðeins í aðalsvefnherberginu.
yngri, sem á hug og hjarta Ste-
faníu Mónakóprinsessu, gengur
nú með grasið í skónum á eftir
Madonnu. Þaö virðist ekki fá
mikið á hann þótt manneskjan
sé harðgift og eiginmaðurinn sé
enginn annar en Sean Penn.
Reyndar- hefur Kennedy viður-
kennt það fyrir vinum sínum aö
hann sé dáhtiö smeykur við
Penn, enda fara þær sögur af
honum að honum geti verið laus
höndin. Mörgum finnst þessi
Madonnuástríða Kennedys
minna mjög á það þegar pabbi
hans var meö Marilyn Monroe
hér á árum áður en Madonna
þykir reyna mjög að líkja eftir
hinni horfnu kynbombu.
Þetta er snekkjan Nabila sem Donald Trump keypti af Adnan Khashoggi og endurskirði Trump prinsessuna. Þetta er rennilegasta fley.
Kjarakaup hjá Donald Trump
Ivana og Donald Trump eru hamingjusöm um borð í nýju snekkjunni.
Milljarðamæringurinn Donald
Trump og kona hans, Ivana,
gerðu í sumar hreint ótrúlega góö
kaup. Þau dauðvantaði þægilega
snekkju en það getur verið erfitt
að fmna góðan bát á viöráðanlegu
veröi eins og allir vita.
En heppnin var með Trump-
hjónunum því að einmitt þegar
þau voru að leita sér að fleyi
þurfti Adnan Khashoggi, vopna-
sali með meiru, að losa sig við
sína snekkju og var tilbúinn að
sættasigviðalgertsmánarverð .
fyrir bátinn.
Verðið var tæplega einn og hálf-
ur milljarður íslenskra króna en
kostnaður við að smiða skipið var
á sínum tíma næstum þvi þrír og
hálfur milljarður. Þetta voru því
kostakaup, ekki síst þegar tekið
er tillit til þess að skipið er nokk-
uð vel búið af skipi í þessum verð-
flokkiaðvera.
Donald var ekki lengi að skíra
snekkjuna sína upp á nýtt og nú
heitir skipið Trump prinsessan
og er það líkast til tilvísun til
Ivönu.
Um borð eru þónokkur þægindi
og má sem dæmi nefna nokkur
gufuböð, sundlaugar, skothelt
gler, kvikmyndasal með sætum
fyrir eitt hundrað manns, þyrlu,
sem nota má til að bregða sér í
land, fullbúið sjúkrahús, lyftur á
milli hæða, sólbaðsaðstöðu og di-
skótek.
Um borð er hægt að hafa tvö
hundruð og fimmtíu gesti án þess
að illa fari um nokkum mann.
Skipið er hlaðið listaverkum og
dýrum húsgögnum og klefarnir
eru víst eins og herbergi á lúxus-
hóteli. Á einum barnum er flygill,
þakinn speglum sem Liberace
færði Trump að gjöf.
Snekkjan hefur siglingaþol upp
á tólf þúsund og fimm hundmð
kílómetra en Trump þarf ekki að
hafa áhyggjur af því að hann geti
ekki haft samband við skrifstof-
una þegar hann er úti á sjó. Hann
getur einfaldlega tekið upp einn
af296 símum sem um borö eru
oghringt.
Það eina sem veldur honum
áhyggjum núna er að Ed Koch,
bæjarstjóri í New York, þar sem
snekkjan hefur aðsetur, heimtar
að Trump borgi full hafnargjöld
af skipinu en hver maður getur
séð aö það er ósanngjarnt að láta
einn mann borga af svona stóru
skipi. Trump finnst það að
minnsta kosti þannig að nú verð-
ur sennilega að láta dómstóla
skera úr um það atriði.
Ólyginn
sagði...
Stefanía
Mónakóprinsessa
er nú yfir sig ástfangin af John
F. Kennedy, yngri. Þau hittust
fyrst fyrir einu ári og síðan þá
hafa þau skötuhjúin átt með sér
leynilega fundi öðru hvoru,
svona rétt á meðan þau hafa haft
tíma frá öðrum, en sem kunnugt
er þá er Kennedy óður af ást í
Madonnu og Stefanía er nýbúin
aö segja honum Mario sínum
upp. Rainier fursti er himinlif
andi með ráðahaginn og sér nú
loksins fram á aö yngri dóttir
hans nái sér í verðugan mann.
John F.
Kennedy