Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
Ólympíu-
leikur DV
- þrjár umferðir eftir
í dag er níunda umferðinni í ólympíuleik DV í samvinnu við Fjark-
ann, Bylgjuna og Flugleiðir.
Leikurinn byggist á því að safna fjórum fjörkum með nafni sama
handboltamanns eða stórmeistara í skák og senda til DV. Alls verða
leiknar ellefu umferðir á þennan hátt og geta allir tekið þátt í hverri
umferð. Leikurinn fer þannig fram að á hverjum degi birtist mynd
af handboltamanni eða stórmeistara í DV ásamt seðli fyrir nafn þátt-
takanda. Þennan seðil þarf að senda inn til DV ásamt fjórum fjörkum
með nafni sama manns. Bæði úrklippan úr DV og fjarkarnir fjórir
þurfa að vera meö nafni, heimilisfangi og símanúmeri þess sem sendir.
Glæsilegir ferðavinningar
Þeir sem veröa svo heppnir að fá sinn fjarka dreginn úr pottinum
hljóta að launum helgarferð með Flugleiðum til London eða Glasgow
að eigin vali. Alls verða það því ellefu heppnir þátttakendur sem hljóta
slíka ferð í þessum leik.
Bónusferð tii New York
Þegar dregið hefur verið úr fjörkunum er úrklippumyndinni haldið
til haga og að loknum umferðunum ellefu verður dregið sérstaklega
úr þessum innsendu seölum og sá heppni hlýtur að launum helgar-
ferð með Flugleiðum til New York.
Dregið í beinni útsendingu á Bylgjunni
Nöfn þeirra heppnu verða dregin ,út daglega í beinni útsendingu á
Bylgjunni og síðan birt næsta dag í DV.
Til aö allir eigi jafna möguleika á þátttöku verður viku frestur til
að senda fjarkana og úrklippuna hingað til DV þannig að dregið verð-
ur úr seðlum og fjörkum frá miðvikudeginum 21. september í beinni
útsendingu á Bylgjunni viku seinna og nafn þess heppna birtist síðan
í DV daginn eftir.
Margfaldur möguleiki
Þeir sem taka þátt í þessum ólympíuleik í samvinnu DV, Fjarkans
og Bylgjunnar eiga margfalda möguleika á því að komast í helgarferð
með Flugleiðum til London eða Glasgow því að ef þeir taka þátt í öll-
um umferðunum ellefu eiga þeir alls 44 möguleika á því að þeirra
nafn verði dregiö úr pottinum. Til viðbótar er svo jafn möguleiki allra
til að hljóta bónusvinninginn, helgarferð til New York með Flugleiðum.
Tvíburar í Garðabæ áttu vinningsfjarkann
í gær dró Þorsteinn Ásgeirsson úr fjörkum með nafni Friðriks Ólafs-
sonar í beinni útsendingu á Bylgjunni. Upp kom fjarki með nafni
Sverris og Kristínar Diego, Mávanesi 25 í Garðabæ. Þegar Þorsteinn
náði sambandi viö vinningshafana kom í ljós að þetta voru sex ára
tvíburar og var mikil ánægja á heimilinu með vinninginn.
Nokkuð hefur boriö á því að þátttakendur hafi gleymt að rita nöfn
sín og símanúmer aftan á fjarkana sjálfa. Þetta hefur orsakað meiri
vinnu við flokkun seðla og fjarka því dregiö er sérstaklega úr fjörkun-
um fyrst en bónusvinningurinn er dreginn úr seðlunum úr DV í lokin. .
Jón L. Árnason
Níundi í röðinni er stórmeistarinn Jón L. Árnason sem þessa dagana
tekur þátt í skákmóti í Sovétríkjunum. Nú er bara að safna fjórum
fjörkum með nafni hans og senda til DV, merkt: „Ólympíuleikur
DV“, og senda bæði fjarkana og seðilinn með nafni, heimilisfangi og
símanúmeri.
Nafn: ....
Heimili:
Sími:...
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Húsgögn
7 tegundir af innskotsborðum komnar.
Einnig ýmiss konar gerðir af smáborð-
um og sófaborðum. Seljum útsaum á
rókókóstóla og borð. Verið velkomin.
Opið kl. 10-19. Nýja bólsturgerðin,
Garðshomi, sími 16541.
■ Bátar
Rafstöðvar fyrir: handfærabáta, spara
stóra og þunga geyma, sumarbústaði,
220, 12 og 24 volta hleðsla, iðnaðar-
menn, léttar og öflugar stöðvar. Verð
frá kr. 27.000. Vönduð vara.
BENCO hf., Lágmúla 7, sími 91-84077.
Skipasalan Bátar og búnaður. Þessi
bátur er til sölu, 15 tonna álbátur árg.
1988, mjög vel búinn tækjum. Skipa-
salan Bátar og búnaður, Tryggvagötu
4, sími 652554.
■ Bflar tfl sölu
Toyota Hilux turbo disil '86 extra cab,
ekinn 70 þús. km, 35" BF.Goodrich,
brettaútvíkkanir.
Camaro Iroc Z-28 TPI ’86, ekinn 29
þús. mílur, low profile, T-topp, raf-
magn. Símar 92-11937, 12071, 13537.
Mjög vel með farinn Jaguar XJ 6 4,2 '79
til sölu, fluttur inn til einkanota, sjálf-
skiptur, rafdrifnar rúður, rafmagns-
læsingar, leðursæti. Góð greiðslukjör
eða skipti á ódýrari bíl. Uppl. í síma
91-17045 eða 15945 e.kl. 14.
Toyota LandCruiser dísil ’86 til sölu,
ÁB upphækkun, 35" dekk, lægri drif,
4,88 og 100% loftlæsingar á báðum
hásingum. Uppl. í síma 25780 á daginn
og 41086 á kvöldin.
Daihatsu Charade '88, ekinn 35 þús.
km, silfurlitaður, 5 dyra, útvarp +
kassetta. Ath. skuldabréf. Bílasalan
Blik, sími 686477.
Audi 80 árg. '87 til sölu, ekinn 27 þús.,
gullsanseraður, sóllúga, litað gler,
o.fl., skipti á ódýrari, ath. skuldabréf.
Einnig Mazda 626 2000 LX árg. ’88,
ekinn 8 þús. km, dökkblár, útvarp og
kassetta, 5 gíra, vökvastýri, skipti á
ódýrari, ath. skuldabréf. Bílasalan
Blik, sími 686477.
Toyota Tercel 4wd árg. ’85 til sölu,
ekinn 56 þús. km, tvílitur brúnn, út-
varp og kassettutæki. Toppeintak af
bíl. Ath. skuldabréf. Bílasalan Blik,
sími 686477.
Volvo F12 '84 til sölu, ekinn 280.000
km. Uppl. í síma 97-81200 virka daga
og 97-81676 á kvöldin og um helgar.
Bjöm.
Mazda 626 coupé GTi 16 v, 150 hö DIN
árg. ’88, ekinn 13.700 km, tölvustýrð
fjöðrun, vökva- og veltistýri, rafdrifn-
ar rúður, rafdrifin topplúga, álfelgur,
low profile dekk og rafmagnslæsingar.
Ath., skipti á ódýrari. Uppl. í síma
91-51057.
Golf GL 1987 til sölu, lituð gler,
grind, litur hvítur, fallegur bíll.
í síma 15144.
S) te)
r
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
• Corvetta ’81, verð 1.200 þús.
• Nissan Sunny 4x4 ’87, verð 630 þús.
• Escort XR3i ’81, verð 330 þús.
• MMC Colt 1500 GLX ’88, v. 550 þús.
Bílasalan Hlíð, símar 17770 og 29977.
Benz 1113 steypudælubíll til sölu, ný-
yfirfarinn, í toppstandi, góður stað-
greiðsluafsláttur, tek bíl upp í og
skuldabréf. Uppl. í síma 73676 eftir
kl. 18.
Ýmislegt
Hjálpartæki ástarlífins em bráðnauð-
synleg til að auka á tilbreytingu og
blása nýju lífi í kynlíf þitt, og gera
það yndislegara og meira spennandi.
Við höfum leyst úr margvíslegum kyn-
lífsvandamálum hjá hjónafólki, pörum
og einstaklingum. Mikið úrval f/döm-
ur og herra. Áth. sjón er sögu ríkari.
Opið 10-18 mán. - föstud. og 10-16
laugard. Erum í húsi nr. 3, 3. hæð
v/Hallærisplan, sími 14448.
úrvali á dömur, s.s. sokkabelti, nælon-
sokkar, netsokkar, netsokkabuxur,
opnar sokkabuxur, heilir bolir m/og
án sokkabanda, toppar/buxur, corse-
lett st. stærðir, o.mfl. Sjón er sögu
ríkari. Rómeó og Júlía.
Nýtt, nýtt. Vomm að fá alveg meirihátt-
ar fatnað (halldress) s.s. pils og kjóla,
stutt og síð snið í nokkmm útfærslum,
toppa, buxur og jakka, allt úr latex
(gúmmí) og pvc (fóðrað plast) efnum.
Dömur! þetta eru alveg meiriháttar
dress. Leitið uppl. Sjón er sögu ríkari.
Rómeó & Júlía.