Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Side 30
38 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
t ■ffcgtm DV
Áleggshnífar geta
borgað sig upp á ári
„Svo framarlega sem þú reiknar
ekki á þig vinnutíma, þá borgar sig
alltaf aö sneiða niður álegg og
brauð,“ sagði einn viðmælenda DV,
kjötkaupmaður í Reykjavík. Við
könnuöum nýlega verð á svokölluð-
um áleggshnífum, rafdrifnum.
Bæði var kannað verð á hnífum
(vélum) sem hggja á borði og þeim
sem maður heldur á í annarri hendi.
Ætlunin var að skoða hvort það
borgaði sig að kaupa slík tæki með
það fyrir augum að kaupa óniður-
sneitt brauð og álegg. Viö komumst
að því hnífur sem kostar 4.300 krónur
er varla meira en eitt ár að borga sig
með þessu móti.
Áleggshnífar á
um 4.300 krónur
Stærri áleggshnífar með hringlaga
blaði eru þægilegir í notkun. Þá er
hægt að stilla nákvæmlega eftir ósk-
aðri þykkt áleggs eða brauðs.
Kannað var verð á slíkum tækjum
á fjórum sölustöðum. Þessir hnífar
kosta frá um 4 þúsund kr. og allt upp
í á ellefta þúsund. Dýrustu hnífamir
henta þó frekar mötuneytum.
Rafdrifnir hnífar sem henta til
heimilishalds voru til á þremur
þeirra sölustaða sem við könnuðum
verðið hjá. Þeir kosta frá 4.100 til
4.500 krónur. Við reiknum því með
að meðalverð hér sé um 4.300 krónur.
Rafdrifnir hnífar sem haldið er á
með annarri hendi munu vera ætlað-
ir til nokkuð annars konar nota en
stóru borðhnífamir. Þeir henta eink-
ar vel þeim sem hafa lítinn hand-
styrk eins og eldra fólki og fötluðum.
Margir munu einnig nota þessa hnífa
til að skera steikur með - þægilegt
og einfalt.
Vafasamt er þó að miða þessi tæki
við að skera niður álegg á sama hátt
og stóru hnífana því gera má ráð
fyrir að sneiðar verði óreglulegri -
meira fer til spillis. Við reiknum
þessa hnifa ekki með hér en emm
engu að síður meðvituð um að hér
er um góðan kost að ræða til ýmissa
eldhúsverka.
Munur á kílóverði
skiptir hundruðum króna
Talsverð vinna fer í að pakka niður
og skera álegg hjá söluaðilum. Álegg-
inu er líka raðað þannig að vel sjáist
í umbúðunum hvernig varan lítur
út. Vinnuna borgar svo neytandinn.
En gerum nú ráð fyrir að við eigum
góðan áleggshníf sem við höfum
keypt fyrir 4.300 krónur - ætlum að
skera sjálf og kaupa álegg í heilu.
Þar sem DV kannaði verð á áleggi
kostaði kílóiö af spægipylsu í heilu
241 kr. minna en í sneiðum (bréf-
um). Rúllupylsukílóið kostaði tæp-
um 4 hundruð krónum minna í heilu
niðursneitt. Svipaður munur var á
hangikjöti. Skinka kostar aftur um
Algengt er að þjónustuverð í verslunum sé um 12 krónur fyrir að skera niður eitt brauð.
Áleggshnífar sem þessi kosta um 4.300 krónur. Þá er hægt aö stilla nákvæm-
lega i samræmi við óskaða þykkt á áleggi og brauði.
DV-mynd BG
tvö hundruð krónum minna kílóið í
heilu en niðursneitt. í þessu sam-
bandi er vert að geta þess að það á
eftir að sjóða rúllupylsu og hangikjöt
og helst að setja það í pressu. Þannig
er um töluvert meiri vinnu að ræða.
Að skera niður brauð
kostar um 12 krónur
Ef við gefum okkur að meðal þjón-
ustuverð fyrir að skera niður brauð
í verslun sé 12 krónur, þá hafa 120
krónur sparast með því að kaupa tíu
óniðursneidd brauð. Tuttugu brauð
á mánuði spara neitanda því 240
krónur. Á ári nemur spamaðurinn
2.640 krónum. Brauð er yfirleitt
ferskara sé það skorið stuttu áður
en það er borðað. Spamaður er því
ekki eini kosturinn.
Það getur því fljótlega borgaö sig
aö kaupa sér rafdrifinn skurðhníf
sem sker álegg og brauð í óskaða
þykkt. Samkvæmt þessum útreikn-
ingum tekur þaö varla meira en ár
séu tuttugu brauð keypt á mánuði
og eitt kíló af áleggi. En það ber þó
að hafa í huga að hnífar sem þessir
eyða rafmagni sem kemur í þessu
tilfelli til frádráttar.
Með því að kaupa sér áleggshníf á
4.300 krónur getur hann því borgað
sig upp á einu ári. Þannig er gert ráð
fyrir því að 20 brauð séu keypt til
heimilisins á mánuði og um eitt kiló
af áleggi í heilum stykkjum.
-ÓTT.
Rafknúnir handskurðhnifar eru t.d heppilegir til að skera steikur og margt
annað. Þeir henta vel eldra fólki og fötluðum - þeim sem ekki hafa mikinn
mátt í höndum. Þessi tegund kostar 3.900 kr.
DV-mynd KAE
DV-mynd BG
Umgengni og skemmdarverk í fjölbýlishúsum:
Að láta ekki sitt eftír liggja
Reynt að vera til fyrirmyndar
Birgir Ottósson, húsnæðisfulltrúi
bjá félagsmálastofnun, segir að er-
fitt sé aö koma með góða lausn við
þessum vanda nema þá helst að
reyna að sýna gott fordæmi. „Það
er misjafnt hve mikið er skemmt
við þau fiölbýlishús þar sem borgin
leigir út íbúöir. En við reynum að
sýna gott fordæmi og viö höfum
hvatt leigjendur til að sýna virka
samstöðu. Hins vegar er raunin sú
að þegar uppvíst hefur orðiö um
skemmdarvarga þá hefur yfirleitt
komiö í fiós að hér hafa utanað-
komandi aðilar verið að verki -
þ.e.a.s. einhveijir sem búa annars
staöar."
Oft er það svo að utanaðkomandi aðilar reyna að koma skilaboðum á
- Hvemig er viðgerðum háttað af framfæri á húsveggjum. Dyrabjöllur verða oft fyrir barðinu á pörupiltum
ykkar hálfu? sem eiga erfitt með fingur sína. Til að koma i veg fyrir skemmdarverk
„Af hálfu borgarinnar er reynt og slæma umgengni er brýnt að sýna samstöðu um gott fordæmi.
að bregðast viö eins skjótt og mögu- DV-mynd BG
Oft er þaö svo að utanaðkomandi
aðiiar valda skemmdum á sam-
eignum í fiölbýlishúsahverfum.
Það er misjafn sauður i mörgu fé.
En þaö er sjálfsagt að foreldrar séu
vakandi fyrir þvi að brýna fyrir
bömum sinum hve mikil óþægindi
kostnaður getur skapast af
skemmd t.d. á dyrabjöllum. Oftast
heldur fólk að íbúar eigi sök að
máli þar sem skemmt er eða böið
er að mála eða teikna á veggi, hurð-
ir og fleira. En raunin mun vera
önnur.
legt er. Ég vil vekja athygli á því
að á sumrin eru iðnaðarmenn, sem
starfa á vegum borgarinnar, oft
uppteknir við viðhald í skólum, úti
í Viðey og víðar. Því kann aö vera
að einhverjar seinkanir hafi stafað
af því á siðustu mánuðum. En viö
reynum að vera- til fyrirmyndar.
Ef um bráðaviðgeröir er að ræöa
er farið strax af stað, eins og t.d.
ef rúður brotna og ef rör springur.
En það er nýtt fyrir mér að fólk sé
óánægt með viöhald á húsnæði sem
er leigt út á vegum borgarinnar.“
Því minna sem skemmt er því
minni „skemmdarskatt" þurfa
borgarbúar að bera, DV vill hvetja
fólk til þess á tímum átaks gegn
óhreinindum i borginni að láta ekki
sitt eftir liggja - brýna fýrir böm-
um sínum aö ganga vel um eigin
eignir og annarra.
-ÓTT.