Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Blaðsíða 32
40
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
T .ffastffl
Ný náttúruminja-
skrá komin út
- Svæðum á skrá hefur fjölgað um 18
Steinataka er algeng meðal garðeigenda. Stundum eru steinar notaðir sem fyrir voru á lóðinni. Einnig er gjarna
farið „út fyrir þæinn" og eitthvað fallegt fundið til að taka með heim. En þá er betra að vita hvert má fara. DV-
mynd JAK
Náttúruverndarráð er nú að
gefa út svokallaða náttúru-
minjaskrá í flmmta sinn. í
bæklingnum er að finna kort
og umsögn um friölýst svæði.
Samkvæmt lögum um náttúru-
vernd ber Náttúruvemdarráði
að kynna sér eftir fongum nátt-
úruminjar á landinu og semja
skrá um þær.
Heimilið
Að þessu sinni er skráin gefin
út í 5 þúsund eintökum. Yfir 3
þúsund eintökum er dreift til
stofnana og einstaklinga um
land allt. Þannig mun skráin
eiga að berast öllum þeim sem
eiga land sem er friðlýst eða
skráð sem náttúruminjar.
Bæklingurinn (skráin) birtist
nú lesendum í nýjum búningi.
Verulegar breytingar hafa ver-
ið geröar á uppsetningu. í nýju
útgáfunni er tekin upp sú ný-
breytni að hafa aðeins eina skrá
- allir landshlutar (kjördæmi) í
sama bæklingi. Hveijum lands-
hluta er síðan skipt í tvennt -
annars vegar friðlýst svæði,
hins vegar náttúmminjar.
Friðlýst svæði nú 69 tals-
ins
í náttúruminjaskrá er að
finna ömefnaskrá. Þar koma
fram nöfn friðlýstra svæða og
náttúruminja. Einnig er að
Náttúruiiiinjaskrá
Fimmta útgáfa 1988
Náttúruvérndatráð
I fimmtu útgáfu náttúruminjaskrár
er m.a. greinargott yfirlit yfir hin 69
friðlýstu svæði landsins. í vasa aft-
ast i bæklingnum er stórt saman-
brotið íslandskort með svæðunum
merktum inn á.
finna ömefni sem notuð eru í
lýsingum á mörkum svæða.
Kortumí náttúruminjaskrá
hefur verið breytt frá því sem
áður var. Áður vom í skránni
tvö kort, annað sýndi friðlýst
svæði en hitt náttúruminjar.
Þessar upplýsingar hafa nú ver
ið teknar saman á stórt lit-
prentaö kort. Það er að finna í
vasa aftast í skránni. Töluvert
upplag af kortinu er til óbrotið.
Þannig hentar það vel fyrir
skóla og stofnanir.
Friðlýst svæði á íslandi era
nú 69 talsins og skiptast þau
þannig:
2 þjóðgarðar
29 friðlönd
29 náttúruvætti
9 fólkvangar
Á náttúruminjaskrá eru 273
svæði og hefur þeimfjölgað um
18 frá síðustu útgáfu. Náttúru-
minjaskrá er dreift ókeypis og
fæst hún á skrifstofu Náttúru-
vemdarráðs á Hverfisgötu 26,
101 Reykjavík.
ÓTT
Garðeigendur geta
leitað sér upplýsinga
Margir leita út í náttúrana til að
verða sér úti um hluti til að skreyta
garða sína með. Algengast er að
steinar séu teknir fyrir gróðurbeð og
t.d. við aðkomu húsa: En ekki er fólk
alltaf á svæðum þar sem leyfilegt er
að hreyfa við náttúranni.
Þegar hraunhellur og steinar era
teknir skilja þeir oftast eftir sig sár.
Með þvi móti er líklegra að um upp-
blástur verði að ræða. Fjörar eru
einnig gengnar og þar er leitað fanga.
Við akvegi era yfirleitt skilti sem
gefa til kynna umgengnisreglur. Þaö
vill þó brenna við að hliðarvegir séu
merktir. Þannig geta landsvæði verið
ómerkt þar sem ekki má hreyfa við
jarövegi. í þessum tilfellum er heppi-
legast að leita til landeigenda.
Til að fullvissa sig enn frekar um
umgengnisreglur á öllum svæðum
landsins er ráölegast að verða sér
úti um bækling Náttúravemdarráðs.
í svokailaðri náttúraminjaskrá er að
finna kort og umsögn um friðlýst
svæði landsins. Með því móti að
kynna sér þessa hluti verður best
komist hjá leiðindum vegna slæmrar
umgegni. Þannig þarf enginn að
ganga um eða hreyfa við neinu í leyf-
isleysi.
-ÓTT.
Hjá landeigendum og í náttúruminjaskrá er heppilegast aö leita sér upplýs-
inga um steinatöku og söfnun muna úr náttúrunni í garðinn.
DV-mynd JAK
Öryggi heimilisins:
Á síðustu tuttugu áram hafa ójarð-
tengdar raflagnir ekki veriö iagðar
í nýbyggingar. Eldri lagnir þurfa
ekki að vera hættulegar. En þær
þarf aö meta í ljósi nýrra krafna
um öryggi.
Eitt helsta öryggistæki heimila
er lekastraumsrofi. Hann kemur
þó ekki að tilætluðum notum nema
raflögn sé jarðtengd. Ef bilun verð-
ur í jarðtengdu tæki á lekastraums-
rofinn að slá út - þannig er straurn-
ur aö þvi rofinn.
Mikilsvert er að vissa sé fyrir því
hjá heimilisfólki að rofinn sé virk-
ur. Það er gert meö því að þrýsta
á prófunarhnapp á rofanum. Hann
er oft merktur: P eða T. Ef rofinn
er í lagi á hann aö slá úl Að því
loknu er hann settur aftur inn.
Lekastraumsrofinn rýfur
strauminnefumeinangrunarbUun Æskilegt er aö heimilisfólk kynni sér notkun lekastraumsrofa.
eða útleiðslu er að ræða á lögninni
semgeturorsakaðbrunaogsnerti- lekastraumsrofinn rýfur strax aft- ar úr sambandi eða slökkviö á
hættu. ur hafiö þá samband viö rafvlrkja. þeim.
C. Setjiö lekastraumsrofann inn á
Leiðbeiningar: Ef lekastraumsrofinn rýfur ekki ný.
Rjúfi lekastraumsrofi straum strax aftur: D. Rofinnn rýfur jafnskjótt og bU-
(slær út) má oft finna bUað raftæki A. setjið þá öry ggin inn eitt af öðru. aöa tækið er sett 1 samband.
á eftirfarandí hátt Rofinn rýfur jafnskjótt og öryggi E. Fariö með biluð tæki á verk-
A. Takið út öll greinivör (öryggi) í hins bUaöa hlutar er sett inn. stæði en kaUiö til rafvirkja ef bilun
töflunni en ekki aðalvör. B. Takiö öU raftæki sem tengd eru er 1 lögn hússins.
B. Setjiö iekastraumsrofan inn. Ef við hina bUuðu grein raflagnarinn- (Frá RafmagnseftirHti rikisins)