Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
41
Lífsstm
Landsbyggðin
borgar meira
- dýrara fyrir fólk úti á landi að senda böm í skóla
Mjólk á síðasta söludegi er 7-8 daga gömul. Nióurstöður rannsókna sýna
að mjólk stenst þær kröfur sem gerðar eru til hennar um heilbrigði og
geymsluþol. Kröfur um lágmarksgerlainnihald hafa og verið hertar á undanf-
örnum árum.
Er nýmjólk
ný mjólk?
- réttmeðferð frá kú til kaupanda mikilvæg
Menntun er besta fjárfesting sem völ
er á. En menntun er misdýr eftir því
hvar á landinu kaupandinn er bú-
settur. Margir foreldrar úti á landi
eiga ekki annarra kosta völ en að
senda börn sín burt í heimavistar-
skóla, bæði til þess að ljúka skyldu-
námi og eins ef um framhaldsskóla
er að ræða. „Það má segja að manni
sé gert ókleift að setja börnin sín til
Neytendur
mennta, þessi kostnaður verður
mörgum hreinlega ofviða,“ sagði
húsmóðir á Tálknafirði í samtali við
neytendasíðuna. „Þetta væri ekki
hægt ef krakkarnir ynnu ekki fyrir
þessu sjálfir að mestu leyti,“ sagði
móðir á Austfjörðum sem á tvö börn
í menntaskóla.
Kostnaður allt að 100 þúsund
á hvern nemanda
Nemandi, sem stundar nám í 9.
bekk, fjarri heimili sínu, þarf í vetur
að greiða um 75.000 krónur í fæöis-
kostnað. Auk þess þarf að greiða um
það bil 7.000 krónur í ýmis gjöld til
skólans. Nemendur í skyldunámi
þurfa aðeins að greiða efniskostnað
í mötuneytum. Hið opinþera greiðir
vinnulaun.
Ferðakostnaður nemandans, sem
um er rætt, er að sjálfsögðu afar
misjafn en getur verið á bilinu frá
10-20.000. Ríkið greiðir ekki niður
ferðakostnað nemenda á grunn-
skólastigi. Heildarkostnaður í þessu
dæmi verður því á bilinu 85-100 þús-
und krónur fyrir veturinn.
Einn greiðir meira en annar,
lítil dæmisaga
Tökum dæmi af nemanda sem
stundar nám við menntaskóla í
Reykjavík. Hann býr heima hjá for-
eldrum sínum og ferðast með stræt-
isvagni í skólann. Tvisvar í viku þarf
hann að fara í leikfimitíma annars
staðar. Bókakostnaður og skólagjöld
nema samtals 28.000 krónum. Heild-
arferðakostnaður yfir veturinn er
11.200 krónur, eða um 400 krónur á
viku. Með reglusemi og sparnaði eyð-
ir hann einungis 1600 krónum á viku
í skyndibita, bíóferðir og vasapen-
inga. Heildarkostnaöur hans vegna
skólans nemur því 84.000 krónum
yfir veturinn.
Vinur hans á Egilsstöðum fer
til Akureyrar
Tökum annað dæmi af nemanda
sem er búsettur á Egilsstöðum og
stundar nám við Menntaskólann á
Akureyri. Hann býr á heimavist
skólans og greiðir fyrir það 16.000
krónur yfir veturinn. Bókakostnað-
ur og skólagjöld nema 28.000 krón-
um. Hann er í fullu fæði í mötuneyti
skólans og greiðir fyrir það um
100.000 krónur fyrir heilan vetur.
Hann flýgur þrisvar sinnum yfir
veturinn milli Egilsstaða og Akur-
eyrar. Fyrir það greiðir hann sam-
tals 12.000 krónur með námsmanna-
afslætti. Hann temur sér reglusemi
að hætti félaga síns í Reykjavík og
eyðir því aðeins 1600 krónum á viku
í vasapeninga. Heildarkostnaður
hans vegna skólans nemur því um
200.000 krónum yfir veturinn.
Hið opinbera greiðir vinnu-
laun í mötuneytum. Ferða- og
dvalarstyrkir greiddir fyrir
nemendur á framhaldsskóla-
stigi
Þeim nemendum, sem eiga ekki
annarra kosta völ en að sækja nám
á framhaldsskólastigi fjarri heimili
sínu, er greiddur svokallaður dreif-
býlisstyrkur. Styrkjum þessum er
úthlutað af námsstyrkjanefnd á veg-
um menntamálaráðuneytisins. Ef
okkar maður frá Egilsstöðum hefði
átt rétt á styrk af þessu tagi, sem
hann á ekki vegna þess að mennta-
skóli er á Egilsstööum, hefði hann
fengið í fyrra 6.800 krónur í ferða-
styrk fyrir báðar annir og um 6.000
krónur í dvalarstyrk. Samtals 12.800
krónur. Hlutfall milli styrks og raun-
verulegs kostnaðar hefur i raun
lækkað á undanfórnum árum því aö
fjárveitingar til þessa liðs á fjárlög-
um hafa verið óbreyttar að krónu-
tölu undanfarin ár. Upphæð styrks-
ins er auk þess breytileg eftir flölda
umsækjenda.
Þegar mikil aðsókn er að skólum,
eins og nú í haust, má búast við að
styrkurinn lækki enn að raungildi.
Siguröur Viðar, kennari við Lauga-
skóla í Þingeyjarsýslu, sagði í sam-
tali við DV aö síðastliðinn vetur hefði
styrkupphæð fyrir nemendur á
framhaldsstigi numiö 8-16.000 krón-
um eftir því hversu langt að komnir
nemendur hefðu verið. Framlag hins
opiribera er því aöeins lítið brot af
heildarkostnaði.
-Pó
Mjólk sem neytandi kaupir á síð-
asta söludegi í verslunum á höfuð-
borgarsvæöinu er að jafnaði 7-8 daga
gömul. Til þess að neytandinn geti
treyst því aö hann fái góða vöru er
mikilvægt aö mjólkin fái rétta með-
ferð allt frá kú til kaupanda.
Gæðaeftirlit með nýmjólk hefur
verið hert mjög á undanförnum
árum. Nú er leyfilegur hámarks-
gerlaflöldi í fyrsta flokks mjólk 100
þúsund, en var 500 þúsund fyrir fáum
árum. Aukin tankvæðing á mjólk-
urbúum og bætt kæliaðstaða hafa
gert það að verkum aö gæði mjólkur
eru ekki eins háð aldri hennar og
áður.
Nú er verið aö leggja síðustu hönd
á rannsókn á geymsluþoli mjólkur
frá öllum mjólkurbúum á landinu.
Endanlegar niðurstöður liggja þó
ekki enn fyrir.
„Gegnumsneitt má segja að mjólk-
in standist þær kröfur sem gerðar
eru til hennar um geymsluþol, heil-
brigði og heilnæmi," sagöi Franklín
Georgssson, gerlafræðingur hjá
Hollustuvernd ríkisins, í samtali við
neytendasíðu DV. Geymsluþol
mjólkur er almennt 5-6 dagar frá
gerilsneyðingu. Mjólkursamlögin
hafa sitt eigið gæðaeftirlit og er fylgst
grannt með öllum innleggjendum.
Hreinlæti, kæliaðstaða og notkun
fúkkalyfja eru allt þættir sem geta
haft áhrif á gæði mjólkur frá fram-
leiðanda. Það hefur verið stefna hins
opinbera að innra eftirht mjólkur-
samlaganna væri sem öflugast. Holl-
ustuvernd ríkisins ásamt Heilbrigð-
iseftirlitinu veita síöan aðhald á
lokastigi framleiðslunnar. Að sögn
Franklíns Georgssonar hefur þetta
eftirlit samlaganna gefiö góða raun.
-Pá
Sendlar
óskast
á afgreiðslu DV
nokkra daga vik-
unnar.
Uppl. í síma
27022
Menntun er misjafnlega dýr eftir þvi hvar sá sem vilt mennta sig er búsettur
á landinu. Framlag hins opinbera til þess að jafna þennan kostnað fer
minnkandi.
Kurteisi kostar ekki neitt
- saga af skemmdum gosdrykk og sviknum hera
Guðbjörg Guðnadóttir hafði sam-
band viö neytendasíðuna og sagði
frá viðskiptum sínum við tvö fyrir-
tæki sem veittu að hennar mati
mismunandi góða þjónustu.
„Það var í ágúst í sumar að hald-
ið var upp á afmæli á heimilinu.
Sitthvað var keypt fyrir afmælið
og þar á meðal grape frá Ölgerð
Egils Skallagrímssonar. Afmælið
var komið í fullan gang þegar
stúlka, sem hjálpaði til eldhúsinu,
kom og sagði að grapeið væri ör-
ugglega skemmt. Ég smakkaði og
það reyndist vera ódrekkandi. Dag-
inn eftir haföi ég samband við
markaðsstjóra. Egils Skallagríms-
sonar og sagöi frá þessum óförum
mínum. Maðurinn var mjög kurt-
eis og spurði hvar ég byggtog hvort
ég yrði heima þennan dag. Seinna
um daginn birtust svo tveir menn
frá Agh og athuguðu máliö. Þeir
báðust afsökunar og færðu mér 3-4
sinnum meira magn af gosdrykkj-
um í stað þess sem haföi verið
skemmt. Þeir þökkuðu mér sérlega
fyrir að láta vita, þvi það væri ekki
gott til afspurnar fyrir fyrirtækið
þegar svona kæmi fyrir.“
Guðbjörg hafði aðra sögu að segja
af samskiptum sínum við annað
fyrirtæki. „Nóatún heitir verslun
sem nýlega keypti verslun á Lauga-
vegi 116, þar sem Sláturfélagið var
áður.
Ég vinn ásamt fleira fólki á
vinnustað nálægt Hlemmtorgi og
við keyptum stundum matar-
skammta í Sláturfélaginu. Einn
daginn kom ég í Nóatún og keypti
mér hálfan skammt af sviknum
héra. Á leiöinni i vinnuna aflur
fann ég alltaf mjög vonda lykt sem
ég hélt aö væri í loftinu. Þegar ég
kom í borðstofuna og ætla að fara
að næra mig, varð ljóst að þessi
vonda lykt var af matnurn sem ég
haföi keypt. Ég mátti því fleygja
matnum. Svangur magi þann dag-
inn.
Seinna um daginn hringdi ég í
Nóatún og talaði við afgreiðslu-
manninn í kjötborðinu og kvartaði
yfir þessu. Hann svaraði aö þetta
gæti ekki verið. Enginn heföi
kvartað undan matnum nerna ég,
en bauðst til þess að endurgreiða
mér. Nokkmm dögum síðar kom
ég í verslunina og vildi fá endur-
greitt. Þá sagöi maðurinn mér að
fleiri heföu kvartað og hráefnið í
matnum heföi reynst skemmt.
Maðurinn gekk með mér að kass-
anum og sagöi afgreiðslustúlkunni
að endurgreiða mér 125 krónur,
sem háffi skammturinn haföi kost-
að. Ekki datt honum í hug að bera
fram afsökunarbeiðni.“
sp^vcí'
^ Krínglunni
W ,