Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Side 36
44
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
Fréttir_______________________________________________dv
„Ég tók vel á laxinum,
flugan var líka vel fost“
- sagði Úlfar um stærsta lax sumarsins, 29 punda hæng
„Viöureignin við laxinn stóð
yfir í hálftíma og ég tók vel á
því flugan var vel föst í hon-
um,“ sagði Úlfar Sveinbjöms-
son en hann fékk, eins og við
sögðum frá í gær, stærsta lax
sumarsins, 29 pund, úr Iðu í
Ámessýslu. „Laxinn hktist
mest lúðu svo svakalega breið-
ur var hann. Ég var búinn að
lengja fluguna sem hann tók
hún var orðin eins og streamer.
Þegar laxinn var kominn á land
hélt ég hann vera um 25 pund
en þegar ég var farinn að bera
hann fann ég að hann var
þyngri. Kristján Gíslason og
Pétur Georgsson komu og vigt-
uðu laxinn, 14,5 kíló, það fór
ekki á milli mála. Laxinn var
ekki mjög leginn," sagði Úlfar
að lokum.
-G.Bender
Þingeyri:
Kaupfélag Dýrfirð-
inga innsiglað
- vegna vanskila á staðgreiðslu- og söluskatti
Úlfar Sveinbjörnsson með stærsta lax sumarins af Iðunni, 29 punda hæng,
sem tók thunder and lightning flugu númer 6 og stóð viðureignin yfir í
hálftíma. DV-mynd Óli P. Friðþjófsson
Jaröarfarir
Ragnar Gísli Thorvaldsson rafvirki
lést 16. september sl. Hann var fædd-
ur 2. ágúst 1927. Foreldrar hans voru
Thorvald Gregersen járnsmiöur og
Marín Magnúsdóttir úr Grindavík.
Ragnar starfaði hjá Landsvirkjun.
Hann gaf sig mikið að hestamennsku
og var áhugasamur meðlimur í Fák
og jafnframt dyggur starfsmaður í
ferðalögum og á mótum félagsins.
Útför hans fer fram fimmtudaginn
22. september kl. 13.30.
Guðrún Bjartmarsdóttir þjóösagna-
fræðingur lést 13. séptember sl. Hún
var fædd 3. júh 1939 á Sandi í Aöal-
dal. Foreldrar hennar voru Hólm-
fríður Sigfúsdóttir og Bjartmar Guð-
mundsson. Guðrún lauk prófi frá
Kennaraskóla íslands og síðar BA
og cand. mag. prófi frá HÍ. Eftirlif-
andi eiginmaður hennar er Þorkeh
Steinar Ellertsson. Þau hjónin eign-
uðust fjögur börn. Útfór Guðrúnar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Gunnfríður Jóhannsdóttir sauma-
kona, sem andaðist á Dalbraut 2712.
september, verður jarðsungin frá
Áskirkju miðvikudaginn 21. septem-
ber kl. 15.
Baldur Einarsson, fyrrv. bifreiða-
stjóri, Skúlagötu 66, verður jarðs-
unginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 22. september kl. 15.
ÚtfÖr Þorbjargar G. Jensdóttur,
Bakkagerði 6, Reykjavík, verður gerð
frá Bústaðakirkju fóstudaginn 23.
september kl. 13.30.
Gunnar Valgeir Stefánsson, Bræðra-
borgarstíg 36, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 22. september kl.
10.30.
ÚtfÖr Margrétar Sigurðardóttur
Briem fer fram frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 22. september kl.
10.30. Jarðsett verður frá Stokks-
eyrarkirkju sama dag kl. 15.
Andlát
Svavar Erlendsson, Iðufelli 10,
Reykjavík, andaðist í Landakotssþít-
ala sunnudaginn 18. september.
Ragnheiður Jóhannsdóttir, Faxa-
skjóh 14, Reykjavík, lést þann 20.
september.
Eiríkur Guðlaugsson, Shfurteigi 5,
Reykjavík, andaðist 20. september í
Landakotsspítala.
Ráðstefnur
Ráðstefna um tölvuforrit
Interactivity er heiti á ráðstefnu um
tölvuforrit sem haldin veröur í Haag í
Hollandi dagana 5.-7. október nk. Á ráð-
stefnunni verður m.a. fjallað um þróun
tölvutækninnar og þær breytingar sem
leiða af aukinni notkuri í samskiptum,
námi og þjálfun, um flutning tölvuforrita
og notkun frá einu menningarsvæði til
annars, um þýðingar á forritum, um
breyttar kennsluaðferðir við aukið fram-
boð á forritum, um fjarkennslu og notkun
forrita í söfnum og bókasöfnum svo nefnt
sé eitthvað af þvi sem fjallað verður um.
Fyrirlesarar eru frá 11 löndum og kynna-
þeir efni sem þeir eru að vinna við og
leiða vinnufund eftir fyrirlestur. Meðal
þeirra er Jón Torfi Jónasson, dósent við
Háskóla Íslands. Þátttakendur geta valið
sér efni eftir áhuga því nokkur erindi
verða flutt á sama.tíma. Upplýsingar eru
veittar í Námsgagnastofnun, Laugavegi
166, í síma 28088.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Síðasta ferð félagsins i sumar verður
Þingvallahringurinn. Lagt verður af stað
frá Umferðarmiðstöð BSÍ laugardaginn
24. september kl. 10, ekið um Suðurlands-
veg að vegamófiun við Geitháls, þar beygt
út af og farinn gamli Þingvallavegurinn
(Kóngsvegurinn) og sveigt inn á nýja
Nesjavallaveginn skammt austan við
Dalland (Miðdal). Síðan verður ekið sem
leið liggur um Mosfellsheiði fram hjá
Hengli og um Sköflung að hverasvæðinu
við Nesjavelh. Þar verður stansaö og
virkjunin skoðuð, síðan ekið upp Grafn-
ing og til Þingvalla. Frá Þingvöllum verð-
ur farið með Þingvallavatni að austan-
verðu niður Grímsnes og til Selfoss.
Borðað verður á Hótel Selfossi, síðan far-
ið um nýju Óseyrarbrúna, Þorlákshöfn
og Þrengsli til Reykjavikur. Verð er kr.
2.000, matur innifalinn.
Allar dyr Kaupfélags Dýrfirðinga á
Þingeyri eru nú innsiglaðar vegna
vanskila á söluskatti og staðgreiðslu-
sköttum. Um er að ræða vanskil fyr-
ir mánuðina apríl, maí og júní. Það
var sýslumaðurinn á ísafirði sem
innsiglaði kaupfélagið síðdegis í gær.
Magnús Guðjónsson kaupfélags-
stjóri sagði að heildarskuldirnar
ásamt dráttarvöxtum og sektum
næmu 13-14 milljónum króna. Hann
kvaðst ekki geta tímasett hvenær
málunum yrði kippt í lag en unnið
væri að lausn þeirra núna.
Kaupfélag Dýrfirðinga rekur auk
verslunarinnar útgerð, frystihús og
fiskimjölsverksmiðju. Gerir kaup-
félagið út tvo togara, Framnes og
Sléttanes. Kaupfélagið er langstærsti
vinnuveitandinn á Þingeyri. Um 80%
launafólks þar vinna hjá fyrirtækinu
og eru um 200 manns á launaskrá
hjá því.
-JSS
Bílamarkaður
á laugardögum
Fjöldi bílasala og bílaumboða auglýsir
fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum
og öllum verðflokkum.
Auglýsendur athugið !
Auglýsingar í DV-Bílar þurfa að berast
í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum.
Skáldakvöld í
Norræna húsinu
Besti vinur ljóðsins heldur skáldakvöld
í Norræna húsinu nk. miðvikudagskvöld
kl. 21. Þar koma fram átta skáld, flest af
yngri kynslóðinni, en þeim til fulltingis
verða Hannes Pétursson og Hannes Sig-
fússon. Eftirtalin skáld lesa úr verkum
sínum á skáldakvöldinu: Hannes Péturs-
son, Hannes Sigfússon, Valgerður Bene-
diktsdóttir, Ehsabet Jökulsdóttir, Finar
Heimisson, Sjón, Ehsabet Þorgeirsdóttir
og Ágúst Sverrisson. Öm Magnússon
einleikari opnar kvöldið með píanóleik.
Kynnir á skáldakvöldinu er Hrafn Jök-
ulsson. Kaffistofa Norræna hússins verð-
ur opin í tilefrii af skáldakvöldinu og er
fólk hvatt til að mæta tímanlega. Miða-
verð á skáldakvöldið er 400 krónur.
Vetrarstarf Krossins
að hefjast
Vetrarstarfið er að hefjast í Krossinum
við Auðbrekku 2 í Kópavogi. Bamastarf
vetrarins er hafið og fer það fram á
sunnudögum frá kl. 16.30, á meðan al-
mennar samkomur fara fram. Bama-
starfiö er fólgið í kennslu og leik meö
bömum allt frá þriggja ára aldri. Paul
og Lilly Hansen em væntanleg til lands-
ins og mun Paul predika á samkomum
sem verða á fimmtudags-, fóstudags- og
laugardagskvöld kl. 20.30 og á sunnudag-
inn kl. 16.30. Unglingamir vom á móti í
Ölveri um síðustu helgi viö hinar bestu
aöstæður og við mikinn fognuð móts-
gesta og má segja að þar hafi vetrarstarf
unglinganna hafist.
Iceland Seafood Limited opn-
ar söluskrifstofu i Frakklandi
Iceland Seafood Limited, sölufyrirtæki
sjávarafurðadeildar Sambandsins í Evr-
ópu, hefur nú opnað söluskrifstofu fyrir
Frakkland og Belgíu. Skrifstofan er í
Boulogne-sur-Mer í Frakldandi og sölu-
stjóri þar er Höskuldur Ásgeirsson við-
skiptafræðingur. Opnun þessarar nýju
söluskrifstofu tengist aukinni eftirspum
og mikihi söluaukningu á íslenskum
sjávarafurðum í Evrópu. Fyrstu átta
mánuði þessa árs varð 58% söluaukning
í magni til Frakklands hjá Iceland Sea-
food LTD, en um 55% aukning að verð-
mæti miðað við franska franka. Salan
fyrstu átta mánuðina í fyrra nam 42 millj-
ónum franka en 65 núlljónum á sama
tíma á þessu ári.
Námskeið
Ferðamálanámskeið í
Menntaskólanum í Kópavogi
Menntaskólinn efnir nú, þriðja veturinn
í röð, til kvöldnámskeiða um ferðamál.
Þar sem ferðaþjónusta er ört vaxandi
atvinnugrein hér á landi er þörf á auk-
inni menntun starfsfólks í ferðaþjónustu.
Vih Menntaskólinn i Kópavogi koma til
móts við þær þarfir með þvi að starf-
rækja sérstaka feröamálabraut fyrir
nemendur skólans og auk þess með því
að efna til sérstakra kvöldnámskeiða fyr-
ir almenning. Námskeiðið á haustönn
verður í október og nóvember. Nám-
skeiðin eru ætluð bæði þeim sem þegar
vinna við ferðaþjónustustörf til að auka
þekkingu þeirra og viðsýni og einnig eru
námskeiðin tilvalin fyrir þá sem hafa
áhuga á að vinna í ferðaþjónustu í fram-
tíðinni.
Ferðalög
Gengið ofan úr Blá-
fjöllum niður í Gróf
Fimmtudaginn 22. september stendur
Náttúruverndarfélag Suðvesturiands
fyrir göngu frá Bláfjallaskálanum niður
í Heiðmörk, um EUiðaárdal, Fossvogsdal,
með Fossvogi, ÖsKjuhhð og niður í Gróf-
ina. Lagt verður af stað frá Bláfjallaskál-
anum um kl. 8 um morguninn. Reyndir
fararstjórar skiptast á mn að leiða
gönguna. Ætlurún er að vera við Foss-
vogsskóla um kl. 16 og í Grófinni um kl.
18. Öllum er boðið að slást í fór í lengri
eða skemmri tima eftir ástæðum eða
nýta sér gönguna á annan hátt. Tilgangur
ferðarinnar er að kanna þessa bráð-
skemmtilegu gönguleið og vekja á henni
athygli en einnig mætti nota hana sem
skíðagönguleið á vetuma.
Fundir
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Fundur verður haldinn í safnaðarheimil-
inu Kirkjubæ fimmtudaginn 22. septem-
ber kl. 20.30. Fundarefni: Vetrarstarfið
og kirKjudagurinn.