Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Síða 40
r
'j*
FC| ET TT "T* /V K' T* I
■ ■L Mmmm ■ B jtr^k '%m3r |V I I mmJ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur, Fyrir besta fréttaskotið í hveri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Stuðningur Alþýðubandalagsins við
Allt eins gott að mynda
meirihlutastjóm staax
segir Svavar Gestsson
„Það liggur ekkert fyrir ura að
Alþýöubandalagið sé tilbúið til
þess. Við erum að tala um meiri-
hlutastjórn," sagði Svavar Gestson
um þá hugmynd um myndun
minnihlutastjórnar sem rætt hefur
verið um í stjórnarmyndunarvið-
ræðum Steingríms Hermannsson-
ar.
í þessari hugmynd felst að Al-
þýðubandalag og Stefán Valgeirs-
son styðji minnihlutastjóm Fram-
sóknar og Alþýðuflokks. Þessi
minnihlutastjórn framkvæmi
bráðaaðgerðir sem stuðningsaðil-
amir leggja blessun sína yfir. Þegar
bráðabirgðalög hafa verið sett hefj-
ast svo aftur eiginlegar sljómar-
myndunarviðræður þessara
fiokka.
Til þess að þetta sé mögulegt
þyrfti Steingrímur að endurnýja
umboð sitt hjá forseta íslands.
Hann mun þá sækjast eftir umboði
til að mynda minnihlutastjórn sem
leitt getur til myndunar meiri-
hlutastjórnar.
„Okkar viðræður miðast fyrst og
fremst við myndun meirihluta-
stjómar. Við héldum þeim sam-
tölum áfram í gærkvöldi og höldum
þeim áfram í dag. Það er hins vegar
Ijóst að sá meirihluti sem er fyrir
þeirri ríkisstjóm gæti orðið knapp-
ur.“
- Kæmi það til greina af hálfu Al-
þýðubandalags að styðja minni-
hlutastjóm Steingríms sem síðar
gæti leitt til meirihlutastjórnar?
„Ábyrgasta afstaðan er að mynda
meirihlutastjórn. Athuga sem fyrst
hvort þaö er hægt. Minnihluta-
stjórn er alltaf á ábyrgð meirihlut-
ans. Það er ekkert auðveldara að
standa að minnihlutasljórn en
meirihlutastjórn því þeir sem
styðja hana eru hvort sem er að
taka ábyrgð á verkum hennar.“
- Nú er talað um að brýnt sé að
grípa til aðgerða, Kæmi ekki til
greina að skjóta umræöum um
sjálfan stjórnarsáttmálann aftur
fyrir efhahagsaðger'ðirnar?
„Þá verða aðgerðirnar að vera
þannig að maður sætti sig við þær.
Þá er spuming hvort það sé ekki
eins gott aö mynda bara meiri-
hlutastjórn strax,“ sagöi Svavar.
-gse
t
t
i
i
i
t
i
í
t
t
t
t
t
t
Stefán Valgeirsson:
Steingrímur vildi
fa mig í Framsókn
„Eg skal ekki segja hvernig á að
taka því en þegar ég kom til við-
ræðna við Steingrím í gær sagði
hann að þeir vildu fá mig í Fram-
sóknarflokkinn. Ég tók þetta ekki of
alvarlega enda stendur það ekki til.
Nú emm við að undirbúa framboð
um allt land,“ sagöi Stefán Valgeirs-
son hjá Samtökum jafnréttis og fé-
lagshyggju. Stefán sagði að engin
ákvörðun hefði verið tekin um
hvernig hann og hans fólk kæmi inn
í stjórnarmyndunarumleitanir
Steingríms.
„Það hefur veriö rætt um að ef
''•* ekki verði mynduð ríkisstjórn i dag
þá verði þessir flokkar að koma sér
saman um þær aðgerðir sem þarf að
gera á morgun. Lengur sé ekki hægt
að bíða.“ -SMJ
Ragnar Amalds:
Stjómarmynd-
unættieinsað
ganga alla leið
„Þetta er upphaf veislunnar sem við Ingi Björn eigum eftir að sitja,“ sagði Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, þegar hann og Ingi Björn Albertsson, þingmaður Borgaraflokksins, sátu og snæddu saltfisk
í Alþingishúsinu í gær. DV-mynd GVA
„Ef á að fara yfir þann hjalla sem
nú er framundan á annað borð ætti
stjórnarmyndun eins að geta gengið
alla leið,“ sagði Ragnar Arnalds,
þingmaður Alþýðubandalagsins, í
samtali við DV í morgun þegar hann
var spurður um möguleika á því að
Alþýðubandalagið veitti minnihluta-
stjórn Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks hlutleysi fyrst í stað. Taldi
Ragnar að þær aðgerðir, sem lægju
fyrir á næstunni, væru það mikil-
vægar að ef um þær semdist væri
eins hægt að semja alla leið.
- En hefur þessi leið verið rædd?
„Þetta er vissulega einn af þeim
möguleikum sem hafa verið allan
tímann á borðinu en hins vegar er
þetta óljós valkostur.“ -SMJ
Mikið um árekstra
Mikið hefur verið um árekstra í
Reykjavík undanfarna daga. í gær
var lögreglu tilkynnt um átján
árekstra. Um og yfir tuttugu árekstr-
ar hafa verið á hverjum degi síðustu
vikur. Þetta þykir lögreglunni mikið
þar sem ætlast er til að fólk annist
sjálftfrágang skýrslna í minni háttar
umferðaróhöppum.
Númer voru klippt af fimmtán til
tuttugu bílum í gær vegna van-
ræksluáaðalskoðun. -sme
Framsókn og kratar:
3prósentgengis-
felling eða aukn-
ar verðbætur
LOKI
Lífið er saltfiskur
- jafnvel í þinginu.
Veðrið á morgun:
Austanátt
á landinu
Austanátt verður á landinu á
morgun, víða allhvasst austan-
lands en hægari annars staðar.
Rigning verður suðaustan- og
austanlands og á annesjum á
Norðausturlandi en að mestu
þurrt annars staðar. Hiti á
landinu verður 6-11 stig.
Friðrik Sophusson segir í Morgun-
blaðinu í dag að í útreikningum á
áhrifum af tillögum Framsóknar og
Alþýðuflokks sé gert ráð fyrir 3 pró-
sent gengisfellingu þó ekkert sé
greint frá því í þeim punktum sem
flokkarnir hafa sent frá sér. Þetta
mun vera að hluta til rétt. Afkoma
sjávarútvegsins er á núlli í útreikn-
ingunum. Til þess að fá þá útkomu
þarf að bæta við þá punkta sem þeg-
ar hafa verið lagðir fram um 3 pró-
sent gengisfellingu eða um 300 millj-
ón króna auknum verðbótum. Verð-
bæturnar hafa sömu áhrif fyrir sjáv-
arútveginn og gengisfelling. Þær
koma hins vegar ekki fram í verð-
lagi. Ef gengið yrði fellt yrði verð-
bólguhraðinn á næstu þremur mán-
uðum um 15 prósent í stað 13 pró-
senta eins og útreikningar flokkanna
segja til um. -gse
t
t
t
4