Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1989, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989.
: i 1 ' ■ :
RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG
SÍMI 12725
OPNUNARTÍMAR:
MÁNUDAGA-FIMMTUDAGA 9-17.55.
FÖSTUDAGA 9-18.30.
LAUGARDAGA 10-14.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
SÍMI13010.
ÚTSALftN
ER HAFIN
VERSLUNIN
MANDA
Kjörgarðí, 2. hæð
Laugavcgí 59. Sími 622335
NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ AUGLÝSIR
NÁMSKEIÐ í NÁTTÚRUVERND
Tilgangur námskeiðsins er að gefa fólki innsýn í
náttúruvernd á Islandi, þjálfa það til að hafa eftirlit
með friðlýstum svæðum og fræða fólk um náttúru
landsins.
Þátttakendur í námskeiðinu skulu vera orðnir 20 ára
og hafa staðgóða framhaldsmenntun.
Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður.
Þátttaka í námskeiði þessu er skilyrði fyrir ráðningu
í landvörslustörf á vegum Náttúruverndarráðs en
tryggir þátttakendum þó ekki slík störf. Námskeiðið
verður haldið í Reykjavík og stendur yfir eftirfarandi
daga:
17., 18. og 19. febrúar, 10., 11. og 12. mars, 7., 8.
og 9. apríl og dagana 19.-23. apríl verður dvalið
utan Reykjavíkur.
Skriflegar umsóknir, með heimilisfangi og síma, er
greina frá menntun, aldri, störfum og áhugamálum
og öðru sem máli skiptir, skulu berast Náttúruvernd-
arráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir 25. jan.
1989.
^Heba heldur við heilsunni^
Námskeið hefjast 9. janúar
KONUR!
Víð bjóðum tipp á:
Þolaukandi (acrobic) vaxtarmótandi,
liðkandí og megrandi leíkfimí með
músik (vixlþjálfun).
Dag- og kvöldtimar. Frjáls mætíng laug-
ardaga.
Keðjuvírkandi bónuskerfi í gangi.
NÝJUNG!
,,HEBU-LÍNAN“, 4+ 1, 3+ 1, 2+ 1, er
algjör nýjung.
NÝTT-NÝTT!
Höfum tekið nýja tækíð TRIMMFORM
í þjónustu okkar.
í HEBU geta allar konur á öllum aldrí
fundið eitthvað við sítt hæfi.
innritun og upplýsíngar í simum 42360
og 641309 (Elísabet).
Kennari: Elisabet Hannesdóttír iþrótta-
kennari.
Heilsurœktirt Heba
Auðbrekku 14. Kópayogi. .
Útlönd
Ættingi eins fórnarlamba flugslyssins yfir Skotlandi leggur bandaríska fánann ofan á blómvendi að lokinni minning-
arathöfninni. Símamynd Reuter
Fórnarlömb-
in kvödd
íbúar þorpsins Lockerbie í Skot-
landi munu í dag fylgja til grafar tíu
ára gamalli telpu og áttræðri ekkju.
Þær voru meðal þeirra ellefu þorps-
búa sem biðu bana þegar breiöþota
bandaríska flugfélagsins Pan Amer-
ican hrapaði í mörgum hlutum yflr
þorp þeirra þann 21. desember síð-
astliðinn.
Fjórtán ára gamall bróðir litlu
stúlkunnar mun ganga fyrstur syrgj-
enda. Hann missti einnig báða for-
eldra sína í slysinu. Pilturinn komst
lífs af þar sem hann hafði farið í
heimsókn til vinar síns nokkrum
mínútum áður en hlutar úr þotunni
grönduðu heimili hans.
Það var margt um manninn í Loc-
kerbie í gær þegar þúsundir syrgj-
enda, þar á meðal ættingjar fórnar-
lambanna tvö hundruö og sjötíu,
stjórnmálamenn, björgunarmenn og
starfsfólk Pan Americanflugfélags-
ins komu saman til að minnast hinna
látnu.
Margaret Thatcher. forsætisráð-
herra var meðal þeirra sjö hundruð
sem fylltu kirkjuna í Lockerbie þar
sem presturinn studdi beiðni forsæt-
isráðherrans um að hefndaraðgerð-
um yrði ekki beitt. Sérfræðingar
segja að sprengja hafi grandað flug-
vélinni og hefur leitin að tilræðis-
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, var meðal þeirra
sem viðstaddir voru minningarat-
höfnina i Lockerbie i gær.
Símamynd Reuter
mönnunum nú verið hafin.
Reuter
Ikveikja i kjolfar
tungumáladeilna
stundað síðustu daga. Sagði tals-
maður samtakanna að sú stefna
væri óbreytt þrátt fyrir íkveikjuna
enda gæti slíkt einungis leitt til enn
frekari ýfinga og ósættis milli hóp-
anna tveggja.
Ekki er búist við kosningum í
fylkinu fyrr en seint á þessu ári og
því er viðbúið að tungumáladeilan
haldi áfram og kunni jafnvel að
magnast til muna er kosningar
nálgasL
Agúst Hjörtux, DV, Ottavra:
Sannað þykir að um íkveiKju
hafi verið aö ræða þegar aöalskrif-
stofur samtaka enskumælandi Qu-
ebecbúa í Montreal brunnu síðast-
liðinn fóstudag. Engin slys urðu á
fólki en eignatjón er metið á um
átta milljónir króna.
Er þetta alvarlegasta atvikið í
öldu skemmdarverka sem gengið
hefur yfir borgina síðan tungu-
málalöggjöf fylkisins var breytt
fyrir tveimur vikum. Nýju lögin,
sem heimila einungis frönsku á
auglýsingaskiltum utandyra en
margmálaskilti innandyra, hafa
sætt gagnrýni bæði ensku- og frön-
skumælandi fólks í fylkinu.
Samtök enskumælandi Quebec-
búa, sem urðu fyrir fkveilgunni,
hafa harðlega gagnrýnt nýju lögin
og telja að þau bijóti í bága við
ákvæði stjómarskrárinnar um
tjáningarfrelsi. Samtökin era þó
aifariö á móti skemmdarverkum
og aðgerðum af þvi tagi sem öfga-
hópar frönskumælandi fólks hafa
Khomeini
sendir Gor-
batsjov skilaboð
Sérstakur sendimaður frá Kho-
meini, andlegum leiðtoga írana, fór
frá Moskvu í gær eftir að hafa hitt
að máli Gorbatsjov, forseta Sovét-
ríkjanna, að því er sovéska fréttastof-
an Tass greindi frá í gær.
í fréttinni var ekki sagt um hvað
viðræöumar hefðu snúist. íranska
fréttastofan Ima sagði á þriðjudag-
inn að sendimaðurinn hefði með-
ferðis skilaboð frá Khomeini til Gor-
batsjovs en ekki var getið um inni-
hald þeirra.
Samskiptin miili írans og Sovét-
ríkjanna hafa verið stirð árum sam-
an þar sem Sovétmenn hafa sent
vopn til íraks og vegna stuðnings
írana við skæruliða sem beijast gegn
stjóminni í Afganistan. Samskiptin
bötnuðu hins vegar í fyrra þegar
vopnahlé komst á í Persaflöastríðinu
og þegar Sovétmenn hófu brottflutn-
ing herliðs síns frá Afganistan.
Reuter
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, í Moskvu ásamt Amoli,
sérlegum sendimanni Khomeinis,
ieiðtoga írana.
Simamynd Reuter