Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1989, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1989, Side 11
FIMMTUDÁGUR 5.' JÁNUAR 1989. n PV Útlönd Efnahagsmálin og dollarinn: Bush er vandi á höndum Mikil og góð sala á hlutabréfum á verðbréfamarkaðinum í New York í desember leiddi til þess að þegar markaðurinn var opnaður aftur í byrjun þessarar viku á nýju ári varö töluvert verðfall. Hluta- bréf og skuldabréf féllu í verði og dollarinn skilaði aftur hluta af þeirri hækkun sem hafði orðið á honum í lok síðasta árs. „Verðbréfamarkaðurinn fór fram úr sjálfum sér á síðasta ári,“ segir Thomas Ryan sem starfar hjá fjármálafyrirtækinu Kidder Pea- body. „Hann fór verulega upp á við í desember, jafnvel þótt vextir væru ekki á niðurleið,“ segir hann. Á þriðjudag lækkaði Dow Jones vísitalan, sem mælir gengi helstu hlutabréfa í kauphöllinni í Wall Street, um rúmlega 1 prósent, nið- ur í 2.144,64 stig. Um tíma leit þó liðinn föstudag. Hann lækkaði einnig gagnvart þýska markinu, í 1,7680 mörk úr 1,7690 fyrir helgi. Þessi lækkun var þó minni en búist hafði verið við og tahð er að það hafi komið í veg fyrir að lækkun á verðbréfamarkaðinum yrði meiri. Margir sérfræðingar telja að ef dollarinn heldur áfram að rokka upp og niður muni sú hækkun, sem varð á verðbréfamarkaðinum fyrir og um jólin, vera í mikilli hættu. í desember hækkaði Dow Jones vísi- talan um 150 stig frá því sem var í nóvember. Þar með varð hækkun hennar á árinu 1988 11,8 prósent. Það er veruleg hækkun og sér- fræðingar segja líklegt að einhver lækkun verði í kjölfar svo mikillar hækkunar. Hækkunin í desember varð á sama tíma og doharinn lag- aöi stöðu sína verulega. George Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, þarf að feta vandrataða slóð í efnahags- og utanríkisviðskiptamálum Bandaríkjanna. Sérfræðing- ar hafa mjög skiptar skoðanir um hvernig honum beri að haga sér. Mynd Lurie út fyrir að lækkunin yrði mun meiri. Ótti við þenslu Á skuldabréfamarkaðinum urðu einnig miklar sviptingar og verð á hlutabréfum lækkaði verulega. Það leiddi til þess að ávöxtun þeirra haskkaði um tæplega 1 prósent. Áhyggjur manna af því að vöxtur í bandarísku efnahagslífi sé of hraður ollu því að vextir hækkuðu enn frekar. í desember hækkuðu vextir af skammtímalánum tölu- vert. Síðastliðinn þriðjudag skýrðu bandarísk stjórnvöld frá því að fjárfestingar í byggingariðnaði hefðu aukist um 0,8 prósent í nóv- ember síðastliðnum. Daginn áður höfðu samtök kaupsýslumanna skýrt frá því að góöur vöxtur heföi haldist í efnahagslífmu í desember. Þessar fregnir komu af stað áhyggjum um að seðlabanki Bandaríkjanna muni hækka vexti af lánum til viðskiptabanka úr 6,5 prósentum í 7 prósent. Sveiflukenndur dollar Dollarinn seig nú eftir áramótin niður í 123,85 jen, úr 124,90 síðast- Hvernig bregst Bush við? Allt er þó á huldu um stöðu doll- arans í náinni framtíð. Ekki er vit- að hvernig George Bush, væntan- legur forseti, mun bregðast við ijár- laga- og viðskiptahalla. Einnig hafði það mikil áhrif til hins verra fyrir dollarann þegar vestur-þýski seðlabankinn lýsti yfir óánægju sinni með hækkun dollarans í síð- ustu viku. Það varð til þess að hann lækkaði aftur. Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig Bush á að bregðast við fjár- laga- og viðskiptahalla Bandaríkj- anna. Margir eru þeirrar skoðunar að hann veröi að bregðast hart við og beita öllum tiltækum ráðum til að minnka halla. Það þýðir í raun að menn eru að tala um að dollar- inn verði að lækka enn frekar, sennilega verulega, og skattar í Bandaríkjunum að stórhækka. Rangar aðgerðir kalla á kreppu Enn lægri dollar og stórhækkaðir skattar myndu vissulega hafa áhrif á bandarískt efnahagslíf. Vöxtur efnahagslífsins yrði snarlega stöðvaður en hkast til myndi verð- bólga stóraukast vegna aukins til- kostnaðar fyrirtækja í landinu. Skattahækkun myndi ennfremur vega á móti lækkun dollarans vegná þess að lækkun dollarans er fyrst og fremst ætlað að auka sam- keppnishæfni bandarískra vara á alþjóöamarkaði. Hækkaður kostn- aður heima fyrir vegna skatta- hækkunar myndi eyðileggja þessi áhrif. Það er einnig mjög hæpið að reyna að nota lækkun dollara til að auka útflutning á bandarískum vörum. Ástæðan er sú að fram- leiðslugeta í Bandaríkjunum er nær fullnýtt og þess vegna þarf fyrst að auka við hana með nýjum fjárfestingum áður en reynt er að auka útflutning. Lægri útgjöld betri en hærri skattar Af þessum ástæðum sýnist mörg- um að best sé fyrir hinn verðandi Bandáríkjaforseta að halda fast við stefnu fyrirrennara síns og hafna öllum nýjum sköttum og reyna að koma í veg fyrir að dollarinn sígi of langt niður. Svo sé best að reyna að minnka fjárlagahalla með því að skera niöur útgjöld, ekki með því að bæta viö tekjum. Hvaö sem verður eru flestir á þeirri skoðun að dollarinn verði mjög sveiflukenndur framan af ár- inu. Línur fara ekki að skýrast fyrr en ljóst er hvað Bush ætlar sér að gera í sambandi við utanríkisviö- skipti og fjárlög og einnig hvort hann verður nægilega sterkur gagnvart þinginu til að fá vilja sín- um framgengt. Hættan, sem hann stendur frammi fyrir, er sú að ef hann læt- ■ur undan þrýstingi þeirra sem hafa hvað mestar áhyggjur af fjárlaga- og viðskiptahalla Bandaríkjanna, hækkar skatta og lætur dollarann falla hefur hann vissulega dregið úr hinum öra vexti efnahagslífsins í Bandaríkjunum. Hann mun kalla fram samdrátt eða jafnvel kreppu vegna þess að meö stórhækkuðum tilkostnaöi á bæði innlendum og innfluttum vörum eykst verðbólga. Minni ráðstöfunartekjur valda minni neyslu og það veldur aftur minni umsvifum fyrirtækja og auknu atvinnuleysi. Afleiðing alls þessa getur síðan ekki orðið önnur en sú að verðbréf lækki mikið í verði og það veldur gjaldþrotum sem enn auka á at- vinnuleysi og samdrátt. Dollarinn látinn afskiptalaus? Það er því vandrötuð sú leið sem Bush þarf að fara. Margir hagfræð- ingar telja að hann geri best með því að snúa sér algerlega að því að viðhalda hagvexti í Bandaríkjun- um án þess að hann verði of mikill en láta dollarinn eiga sig. Best sé að markaðurinn ákvarði verðgildi hans, of dýrt sé að reyna að stjórna honum á einn eða annan veg ef það kemur niður á efnahagsstjórnun innanlands. ÓA/Reuter Sendum í póstkröfu n Janúartilboð Á börn, unglinga og fullorðna Verð nú frá aðeins KR. 3.950,- »hummel^ SPORTBÚÐIN Ármúla 40, Reykjavík, sími 83555 Eiöistorgi 11, 2. hæð, Seitjarnarnesi Sími 611055 í 30 ár Hressingarleikfimi kvenna og karla 30. starfsárið er runnið upp Vetrarnámskeið hefjast mánudaginn 9. jan. Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla Æk og íþróttahús Seltjarnarness. y* Fjölbreyttar æfíngar flk Músík - Dansspuni Þrekæfíngar - Slökun Jh Innritun og upplýsingar í síma 33290 Ástbjörg S. Gunnarsdóttir íþróttakennari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.