Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. Fréttir Jón Baldvin og Ólafur Ragnar „á rauöu ljósi“ á Selfossi: Sverrir Hermannsson eins og ffll í postulínsverslun - sagöi Jón Baldvin um bankastjóra Landsbankans „Sverrir Hermannsson bölsótast eins og fíll í postulínsverslun sagöi Jón Baldvin „á rauðu ljósi" á Selfossi í gærkvöldi þegar rætt var um andstöðu bankastjóra Landsbankans við lækkun vaxta. Ólafur Ragnar Grímsson sá held- ur ekki ástæðu til að vanda Sverri kveðjurnar: „Sjálfstæðisflokkur- inn mun bíöa ósigur í striðinu um vextina hvað sem Sverrir Her- mannsson segir,“ sagði Ólafur. Þetta var þriðji fundur þeirra fé- laga undir yfirskriftinni „á rauðu ljósi". Fjölmenni var á fundinum og umræöur fjörugar. Einkum voru það sjálfstæðimenn sem fengu fóst skot og þá sérstaklega það sem þeir kölluðu „lávarðadeildina í bankakerfinu" og eignuðu flokkn- um. Jón sagði að Sverrir ætti að spara sér stóru orðin um stefnu stjórnar- innar í vaxtamálum meðan rekstur hans eigin banka væri allur í ólestri. „Þaö þarf að fá erlent fjármagn inn í bankakerfiö, einfalda rekstur- inn, auka samkeppni og koma því undir faglega stjórn,“ sagði Jón. „Seðlabankinn lýtur ekki faglegri stjórn því stjórn hans er eins konar lávarðadeild. Aðalvígi Sjálfstæöis- fiokksins er í bönkunum og fjár- magnsfyrirtækjunum. Það er sú stjórnarandstaða sem við þurfum daglega að kljást við,“ sagði Jón Baldvin. „Það verður fundur með öllum bankaráðum ríkisbankanna nú eft- ir helgina og þar verður þeim gerð grein fyrir hver stefna stjórnarinn- ar er í vaxtamálunum. Við munum stýra vöxtunum niöur á við hvað sem það kostar og hvað sem Sverr- ir Hermannsson og lávarðadeild Sjálfstæðisflokksins í bankakerf- inu segir,“ sagði Ólafur Ragnar. Eins og Jón Baldvin talaði hann um stjórnarandstöðuna í banka- kerfinu og taldi hana mun erfiðari viðfangs en þá sem situr á þingi. „Það er rangt að forystumenn úr stjómmálunum skipi lykilembætti í bankakerfinu. Þetta er kerfi sem færir föllnum foringjum úr stjórn- málunum meiri völd en eðlilegt getur talist. Þjóöin á ekki að gjalda fyrir það þótt Þorsteinn Pálsson hafi orðið aö finna stól fyrir Sverri Hermannsson til að halda frið í þingflokknum," sagði Ólafur Ragn- ar. -GK Önnur mann- réttindi Ólafur Ragnar upplýsti aö Jón Baldvin væri á förum til Vínar- borgar að undirrita nýjan mann- réttindasáttmála. Því var skotiö að þeim utan úr sal hvort lands- mönnum væru þá tryggö þau mannréttindi að semja um kaup sitt og fara í verkföll. Jón Baldvin bað menn vinsam- legast að rugla ekki þessu tvennu saman því hér ríktu full mann- réttindi þrátt fyrir að stjórnvöld heföu tímabundið orðíð aö grípa innísamninga. -GK Breiðafjörður: Grásleppukarl- arkærðirtilrík- issaksóknara Ríkissaksóknara hefur verið send kæra Æðarræktarfélagsins vegna neta sem legið hafa í sjó í Breiðafirði. Æðarræktarfélagið kærði fyrst til lögreglunnar í Stykkishólmi. Töldu félagsmenn að fjöldi neta frá grásleppusjó- mönnum væri enn í sjó. Lögregl- an hóf þegar leit og hafa fúndist um tvö hundruð net Nokkrir voru yfirheyrðir vegna málsins en ekki fengust hald- bærar skýringar. Helst var það á mönnum að heyra að þeir hafi ekki fundið netin sin aftur. Mikil hætta er á að netin drepi æðar- fuglinn. Netin kosta um fimm þúsund krónur þannig að hér var um mikil verðmæti að ræöa sem lágu í sjónum. Flest netin voru rifin og illa farin. -ELA Tveir lentu utan vegar Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri: BOl, sem lenö utan vegar á Öxnadalsheiði um helgina og valt þar nokkrar veltur, er talinn ónýtur en ökumann sakaði ekki. Hann slapp lika án meiðsla ökumaðurinn sem missti bö sinn út af veginum í Víkurskarði og bíll hans er lföö skemmdur. Öku- maður er hins vegar grunaður um ölvun við akstrn. Tvö smáinnbrot voru framin á Akureyri um helgina. Broöst var inn í verslunina Maríu en sá sem þar var að verki hafði ekki nema tvö hundruð krónur upp úr krafsinu. Þá var skjalatösku stol- ið úr biíreið á laugardagsmorgun en engin verðmæö voru í tösk- unni. Hver á að slátra kálfinum? ,J>egar týndi sonurinn kemur heim þá er ég reiöubúinn öl að slátra kálfi og efna öl veislu,“ sagði Ólafur Ragnar og beindi orðum sínum öl Jóns Baldvins þegar rætt var um hugsanlega saraeiningu.Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags sem þó var ekki á dagskrá. Jón Baldvin var ekki sáttur við þá skipan mála og vitnaði einnig öl Biblíunnar. „Ég man ekki bet- ur en að það standi í þeirri ágætu bók að guð gleddist meira yfir einum ranglátum manni sem sneri af völu síns vegar en 99 réttlátum. Alþýðuflokkurinn er hið rétta heimili jafnaðarstefn- unnar. Ég skal því slátra kálfin- um þegar Ólafur Ragnar kemur,“ sagðiJónBaldvin. -GK Skemmt- anaskattur felldur niður Menntamálaráðuneyöð hefur ákveðið að leggja ekki skemnlt- anaskatt á þá peninga sem safn- ast tö að kosta fundaferð þeirra Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars. ' ÓlafurRagnarvarmjögósáttur við þessa ákvörðun. „Ég æöa aö mótmæla viö menntamálaráð- herra næst þegar ég hitö hann ef þetta er reist á þeim rökum að við séum ekki nógu skemmöleg- ir,“ segaði Ólafur við góöar und- irtekörísalnum. -GK Eyðimerkur- ganga Ólafs Ragnars Einn fundarmanna minnöst þess að Ólafur Ragnar heföi kom- ið öl Selfoss fyrir tuttugu árum með þann boðskap að leggja ætti Framsóknarflokkinn niöur. Nú væri hann í stjómarsamstarfi með flokknum. „Það hefur lengi veriö ástar- og haturssamband milli min og Framsóknarflokksins. Ætli það sé ekki ást núna,“ svaraði Ólafur. „Þaö er rétt aö ég var einn þeirra sem sættu sig ekki viö stefnu flokksins og lögöu forðum út í eyðimörkina frá Möðruvöllum.“ „Og hvar er úlfaldinn núna, Ólafur?“ skaut Jón Baldvin inn í, og Ólafur svaraði að bragöi: „Hann er hérna úö og þú mátt koma með, Jón, ef þig vantar £ar.“ -GK A slysstaðnum í Hvalfirðinum. Efst á myndinni sést i bifreið á veginum, en fallið niður i fjöru er um þrjátíu metrar. DV-mynd S FuUoröin hjón létust í Hvalfiröi: Bifreiðin fór fram af 30 metra háu bjargi Fullorðin hjón, Sverre Helgi Val- týsson, fæddur 1923, og Nanna Sig- urðardótör, fædd 1922, öl heimilis að Ölduslóð 22 í Hafnarfirði, létust er bíll þeirra, Citroen AX, fór út af veginum í Hvalfirði um hádegisbOið í gær. Lögreglunni var ölkynnt um slysið klukkan 12.54 og var þá taliö að slysið hefði nýlega oröið. Slysið átö sér stað á milli Fossár og Brynjudalsár í Hvalfirði. MOdl hálka var á þessum slóðum en bíUinn fór fram af um 30 metra háu bjargi og hafnaði á hvolfi í sjónum. Talið er aö hjónin hafi láöst samstundis. Lögregla og sjúkrabifreið komu strax á vettvang en auk þess var þyrla landhelgisgæslunnar kölluð út og kafari. Töldu menn að flugmaður þyrlunnar hefði sýnt mikið snarræði er hann lét þyrluna síga niöur með bjarginu og lét kafara síga niður í íjöru. Leitaði kafarinn í sjónum um- hverfis bílinn en ekki var vitað hvort fleiri hefðu verið í honum. í allan gærdag var reynt aö ná flak- inu upp en vegna staðhátta var þaö mjög erfitt. Saltbílar fóru um miðjan dag í gær öl að salta þannig að krana- bifreið gæö athafnað sig á svæöinu. Kranabifreiðin híföi flak bílsins upp skömmu síðar. -ELA/-sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.