Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 48
FR ÉTT/VS KOTIÐ "* Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. Aífreð Gíslason: Hljóp uppi skemmdar- varga Alfreð Gíslason, landsliðsmaður í handknattleik, hljóp uppi skemmd- arvarga aðfaranótt laugardags. Al- freð, sem býr við Tjarnargötu í Reykjavík, vaknaði við hávaða og hlátrasköll. Þegar hann leit út sá hann að þrír menn voru að skemma bíl í götunni og virtust þeir skemmta sér vel við verkið. Alfreð brá skjótt við - fór í buxur og skyrtu - fór út og hljóp uppi tvo af mönnunum. Annar þeirra virtist lítið ölvaður. >—„Ég ákvað að fara með annan manninn heim og sleppti því hinum. Þegar ég kom með hann heim hringdi ég í lögregluna og hafði manninn hjá mér þar tii hún kom,“ sagði Alfreð. - Þurftir þú aö hlaupa langt? „Nei, ég er svo fljótur að hlaupa," sagði Alfreð og hló við. Alfreð sagði að sinn bíll hefði veriö sá fjórtándi í röðinni af þeim fjórtán bílum sem mennirnir skemmdu. Þeir spörkuðu í afturhurð á bíl Alfreðs, brutu spegla, þurrkur og afturljós. ^ „Ef þú ætlar að skrifa um þetta - getur þú þá ekki sagt aö þetta hafi verið Siggi Sveins?“ -sme Laxabúrfærðust fimmb'u metra „Þetta voru engin ósköp. Þegar hann er af suöaustan þá stendur beint á búrin og þá verðum við að fara út og sjá til að allt sé í lagi. Það skemmdist ekkert núna nema búrin sneru dálítið upp á sig, það hefur ekki gerst áður,“ sagði Guðni Ge- orgsson hjá ÍSNO í Vestmannaeyjum við DV. Um 13 vindstig voru við Vest- .^annaeyjar á fóstudaginn og byrj- uðu tvö samfóst laxabúr ÍSNO þá að færast til. Fór lóðsbáturinn Gústi Ella þá með fjóra menn frá ÍSNÓ út að búrtinum í vitlausu veðrinu. Komust þeir upp á göngubrautir ofan á búrunum og gátu lagfært smávegis skemmdir á grindverkum og afstýrt frekari skemmdum. -hlh NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR LOKI 1 Hvernig á vel að fara með fíla og rauðkemb- inga við stjórnvölinn? hoA á oA líVAÍkÍð l^Clw CE Clw IVVvllVICI í sparifé manna - segir Sverrir Hermannsson um „rokur“ Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars „Ég ætla að biðja menn að minn- astþess hver var stefna ríkisstjórn- arinnar fyrir jól. Þá áttu vextir að fylgja verðbólgunni en nú á að taka upp neikvæða vexti. Það þýðir á mæltu máli að þeir ætla að kveikja í sparifé manna,“ sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Lands- bankans, en í fundaherferð þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar hefur komiö fram hörð gagnrýni á það sem þeir kalla „stjórnarandstööu Sjálfstæðisflokksins í bankakerf- inu“. Er Sverrir nefndur þar negatífa innlánsvexti. Það á að fremstur til sögunnar. hefja þann leik á ný að brenna upp „Ég nenni ekki og hirði ekki um sparifé landsmanna. Þetta þora aðeltaólar við þessar rokur þeirra þeir ekki að segja - það er ekki rauðkembinga þama vestra. Það heil brú til i málflutningi þeirra. er lögð rík áhersla á að reyna að Ef menn ætla að hafa lága vexti blekkja fólk. Það á að reyna að verða þeir að ná verðbólgunni nið- blekkja fólk með því að hækkandi ur en allar athafnir þessara herra- vextir séu orsakir verðbólgu en manna að undanfórnu hafa beinst ekki afleiðing. Það ætlar enginn að í allt aðra átt, meðal annars hjá hækka vexti meira en brýnasta Ólafi Grírassyni sera lætur prenta nauðsyn krefur en yfirlýsingar seðla upp á sjö milljarða til að dæla þeirra verða ekki skildar öðruvísi út í kerfið.“ en að það eigi aö hefja að greiða Sverrir sagðist ekki hafa gert annað en að benda hógværlega á staðreyndir málsins og hans um- mæli stjómuðust eingöngu af fag- legum sjónarmiðum. „Það er hins vegar annað mál aö Ólafur Grímsson þolir ekki mál- frelsi - það er alveg ljóst mál. Af því að ég tala ekki eftir hans pípu þá náttúrlega á ég aö þegja eða hafa verra af, aö því er hann segir.“ -SMJ sjá einnig bls. 2 Þeir A-flokkaformenn, Jón Baldvin og Ólafur Ragnar, stóðu í ströngu um helgina á fundum sínum á ísafirði og Selfossi. Þessi mynd er frá Selfossfundinum. Þar, eins og á ísafirði, höfðu þeir uppi stór orð um Sverri Hermanns- son bankastjóra og sögðu hann vera eins og fíl í postulínsbúð. Sjá nánar á bls. 2. DV-mynd S Stolið úr flugfrakt Ægir Már Kristinsson, DV, Keflavik: Skinnum og öðmm fatnaði var stolið úr sjö kössum í frakt Flugleiða- vélar sem fór til London á fostudag- inn. Þjófnaðurinn uppgötvaðist ytra. Fraktmenn og hlaðmenn í London og Keflavík hafa verið yfirheyrðir vegna málsins sem er ennþá óupp- lýst. „Stöðvarstjóri Flugleiða í London hafði samband við okkur á föstudag- inn og tjáði okkur að stolið hefði verið úr sjö kössum af 43 sem í var fatnaður," segir Barði Ólafsson, að- stoðarstöðvarstjóri Flugleiða í Kefla- vík. Flugleiðavéhn hélt áleiðis til Lon- don á föstudagsmorgun. Þegar frakt- in var komin í flugstöðvarbygging- una á Heathrow-flugvelli uppgötvað- ist stuldurinn. Fraktmenn og hlað- menn á Heathrow hafa verið yfir- heyrðir af lögreglunni. Ekkert hefur komið út úr þeim yfirheyrslum. Fraktmenn og hlaðmenn í Keflavík voru einnig yfirheyröir. í samvinnu við verkalýðsfélagið á Suðurnesjum greip lögreglan til þess ráðs að opna alla skápa hjá fraktmönnum í flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Það bar engan árangur. -JGH Lúðvlk Jósefsson: Veðrið á morgun: Vaxandi suðaustan- átt í fyrramálið þykknar upp með vaxandi suðaustanátt, fyrst vest- anlands. Snjókoma verður síðar en slydda eða rigning þegar líður á daginn. Hitinn verður -3-3 stig. Engin ástæða til að hreyfa vexti „Ég sé enga ástæðu til að hreyfa vexti núna. Það þarf ekki að hlaupa til núna vegna þess aö þessu er breytt á 10 daga fresti,“ sagði Lúðvík Jósefs- son, fulltrúi Alþýðubandalagsins í bankaráði Landsbankans. í dag mun bankamálaráðherra, Jón Sigurðsson, funda með banka- ráðum ríkisbankanna og verða þar ræddar breytingar á vöxtum bank- anna en sem kunnugt er telur ríkis- stjórnin ekki ástæðu til að hækka vexti eins mikið og bankastjórar hafa lagt til. í haust, þegar ríkisstjórnin vildi láta lækka vexti meira en bankastjóramir, studdu bankaráðs- menn ríkisstjórnina. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.