Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. íþróttir • Chris Waddie skoraði mark Tottenham gegn Nottingham Forest í gær. Mark hans dugði skammt þvi Forest fór með sigur af hólmi. Waddle var yfir- burðarmaður á vellinum og var kosinn maður leiksins. Simamynd Reuter Enska knattspyman: Arsenal sýndi meistaratakta - sannfærandi sigur á Everton og Arsenal hefur tekið fimm stiga forystu Arsenal hefur nú tekiö fimm stiga forystu í 1. deild ensku knattspyrn- unnar. Á laugardag vann liöiö sann- færandi sigur á Everton á útivelli en á sama tíma fékk Norwich skell á heimavelli er liöið tapaöi, 1-2, fyrir Coventry. Forysta Arsenal er afger- andi því liðið á aö auki einn leik til góöa á Norwich. Coventry er nú í þriðja sæti en svo ofarlega hefur fé- lagiö ekki komist í íjölda ára. • Arsenal sýndi góðan leik á Goddison Park, heimavelh Everton. Virtist sem leikmenn Uösins væru búnir að gleyma tapleiknum gegn West Ham í bikarkeppninni fyrr í vikunni. Paul Merson náði foryst- unni fyrir Arsenal á 47. mínútu. Merson hefur veriö iðinn viö kolann aö undanfömu því þetta mark hans var þaö sjötta í sjö leikjum. Alan Smith skoraði annað mark Arsenal sex mínútum síöar með skalla eftir fallega sendingu frá David Rocastle. Kevin Richardson skoraði þriöja mark Arsenal á 72. mínútu en sjö mínútum fyrir leikslok tókst Dave Watson að minnka muninn fyrir Everton með marki eftir hom- spymu. • Coventry stendur sig vel í 1. deild þrátt fyrir slæma útreið í bikar- keppninni um síðustu helgi þegar utandeildarliðið Sutton United sló liðið út úr keppninni. Á laugardag tók næstefsta lið deildarinnar, Nor- wich, á móti Coventry á Carrow Road. Fyrri hálfleikur var frekar tíð- indalítill en í siðari hresstust leik- menn liðanna til muna og þá komu öll mörk leiksins. Dale Gordon kom heimamönnum yfir á 56. mínútu. Níu mínútum síðar jafnaði David Speedie fyrir Coventrý og stuttu síðar var Speedie aftur á ferðinni þegar hann vippaði knettinum skemmtilega yfir Brian Gunn, markvörð Norwich, og tryggði Coventry dýrmætan sigur. • Sigurður Jónsson og félagar hans í Sheffield Wednesday sýndu góöan leik í fyrri hálfleik gegn Liver- pool. Leikurinn hafði aðeins staðið yfir í fimm mínútur þegar Mark Proctor kom Wednesday yfir. Skömmu síöar skoraöi Imre Varadi annaö mark fyrir Wednesday. í síöar hálfleik snerist leikurinn alveg við og Liverpool fór að sækja mun meira og mark virtist liggja í loftinu. Steve Nicol skoraði fyrir Liverpool með góðu skoti af 20 metra færi á 76. min- útu. Aðeins mínútu síðar skoraöi John Aldridge gott skallamark og jafnaði leikinn en Aldridge hafði áð- ur komið inn á sem varamaður. Aldridge hefur skorað tólf mörk á keppnistímabilinu. Sigurður Jóns- son átti góðan leik fyrir Sheffield Wednesday. • Manchester United átti ekki í miklum erfiðleikum með Millwall á Old Trafförd. United stillti upp hálf- gerðu unglingaliði en í byrjunarlið- inu voru sjö leikmenn sem eru undir tvitugsaldrinum. Það kom ekki að sök því liðið sýndi góða knattspyrnu. Clayton Blackmore náði forystunni á 13. mínútu og á 24. mínútu skoraði Tony Gill annað mark fyrir United. í síðari hálfleik sótti United talsvert en tókst aðeins að bæta við einu marki til viðbótar. Þar var að verki Mark Hughes með skoti sautján mín- útum fyrir leikslok. • West Ham virðist vera að rétta úr kútnum. Glæsilegur sigur á Arse- nal í bikarkeppninni ætlar ef til vill að gefa liðinu byr undir báða vængi. Á laugardag sigraði West Ham lið Derby á Baseball Ground. Dean Saunders gaf Derby ljómandi byijun er hann skoraði mark á upphafsmín- útum leiksins. írski landsliösmaöur- inn David Kelly jafnaði fyrir West Ham á 12. mínútu. Annar írskur landsliðsmaður, Liam Brady, inn- siglaði góðan sigur West Ham á 45. mínútu. • Ekkert gengur hjá Newcastle frekar en fyrri daginn. Þó náði Mir- andinha forystunni fyrir Newcastle á Villa Park gegn Aston Villa. Andy Gray jafnaði fyrir Villa rétt undir lok fyrri hálfleiks. í síðari hálfleik bættu þeir Tony Dale og Alan Mclnally við tveimur mörkum fyrir Aston Villa. • Charlton, sem ekki haföi unnið níu deildarleiki í röð, breytti út af venjunni og sigraði Luton örugglega á Shelurst Park. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik og voru þar að verki Paul Mortimer, Carth Cro- oks og Paul Willams. • Southampton tók forystu með marki frá Kevin Moore gegn Midd- lesbrough. í síðari háfleik tóku leik- menn Middlesbrough til sinna ráða og skoruðu þrjú mörk. Paul Kerr, Bernie Slaven og Paul Birch skoruðu mörkin. • John Scales skoraði mark Wimbledon í fyrri hálfleik sem nægði liðinu til sigurs gegn QPR. Leikurinn þótti annars slakur. • Tottenham fékk skell á heima- velli í gær er liöið tapaði fyrir Nott- ingham Forest, 1-2. Cary Parker kom Forest yfir á 32. mínútu og aðeins mínútu síðar skoraði Nigel Clough síðara mark Forest. Chris Waddle klóraði í bakkann fyrir Tottenham á lokamínútu fyrri hálfleiks. Leikur- inn þótti fjörugur og áttu bæðin liðin fjöldamörg marktækifæri. Erik Thorstvedt lék sinn fyrsta leik i marki Tottenham og kannski þann síðasta í bili. Leikurinn var hrein mar- tröð, Thorstvedt var talinn geta komið í veg fyrir bæði mörk Forest með góðu móti,virtistmjögóstyrkur. -JKS Staðan í 1. deild: Arsenal 20 13 4 3 45-21 43 Norwich 21 10 8 3 30-22 38 Coventry 21 9 6 6 29-21 33 Millwall 20 9 6 5 30-24 33 Liverpool 21 8 8 5 26-18 32 Man. Utd 21 7 9 5 28-18 30 Everton 20 8 6 6 26-22 30 Derby 20 8 5 7 22-16 29 Nott. For. 20 6 10 4 25-23 28 Wimbledon 20 8 4 8 24-27 28 Middlebr. 21 8 4 9 27-32 28 Aston Villa 21 6 8 7 31-32 26 Southt. 21 6 8 7 34-40 26 Tottenham 20 6 7 7 30-30 25 QPR 21 6 6 9 23-21 24 Luton 21 5 8 8 23-26 23 Sheff. Wed. 20 5 7 8 17-28 22 Charlton 21 4 8 9 22-32 20 West Ham 21 4 5 12 18-36 17 Newcastle 21 4 5 12 17-38 17 Staðan í 2. deild: Chelsea 25 13 8 4 48-26 47 W. Brom. 25 12 8 5 43-23 44 Watford 25 13 5 7 37-23 44 Man. City 25 12 8 5 34-23 44 Blackbum 25 13 4 8 41-36 43 Sunderland 25 9 10 6 35-27 37 Leeds 25 9 10 6 29-22 37 Ipswich 25 11 4 10 36-32 37 Barnsley 25 10 7 8 32-31 37 Bournem. 25 11 4 10 28-30 37 Stoke 25 10 7 8 31-33 37 C. Palace 24 9 8 7 37-31 35 Portsmouth 25 9 8 8 35-33 35 Leicester 25 9 8 8 32-34 35 Swindon 24 8 10 6 32-30 34 Plymouth 25 9 6 10 33-38 33 Hull 25 8 8 9 33-35 32 Bradford 25 7 10 8 26-30 31 Oxford 25 7 6 12 38-38 27 Brighton 25 7 4 14 35-43 25 Oldham 25 5 9 11 36-41 24 Shrewsb. 25 4 11 10 21-36 23 Birmingh. 25 3 7 15 16-47 16 Walsalí 25 2 8 15 21-42 14 jh England -----■/ ú siit 7 Úrslit í 1. deild: Aston Villa-Newcastle 3-1 Charlton-Luton 3-0 Derby-West Ham 1-2 Everton-Arsenal 1-3 Man. Utd-Millwall 3-0 Norwich-Coventry 1-2 Sheff. Wed.-Liverpool 2-2 Southampton-Middlesb. 1-3 Wimbledon-QPR 1-0 Tottenham-Nottingham 1-2 Úrslit í 2. deild: Brighton-Plymouth 2-2 Chelsea-C. Palace 1-0 Hull-Bournemouth 4-0 Leeds-Birmingham 1-0 Leicester-Portsmouth 2-1 Oldham-Man. City 0-1 Shrewsbury-Blackburn 1-1 Stoke-Bradförd 2-1 Sunderland-Oxford 1-0 Swindon-Barnsley 0-0 Walsall-Ipswich 2-4 Watford-West Bromwich 2-0 Úrslit í 3. deild: Brentford-Northampton 2-0 Bristol Rovers-Sheff. Wed. 1-1 Bury-Swansea 1-0 Cardiff-Bolton 1-0 Chester-Port Vale 1-2 Chesterfield-Bristol City 1-0 Gillingham-Aldershot 1-1 Mansfield-Wigan 0-1 Notts County-Blackpool 1-1 Preston-Huddersfield 1-0 Reading-Wolverhampton 0-2 Southend-Fulham 0-0 Úrslit í 4. deild: Burnley-Halifax 2-1 Cambridge Utd.-Hereford 2-1 Carlisle-York 0-0 Darlington-Hartlepool 0-0 Exeter-Doncaster 3-0 Leyton Orient-Stockport 1-2 Lincoln-Wrexham 4-3 Rotherham-Rochdale 3-1 Scarborough-Peterborough 2-1 Scunthorpe-Crewe 2-2 Torquay-Grimsby 2-2 Colchester-Tranmere 2-3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.