Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. Viðskipti Sextán erlendar bjórtegundir berjast um þrjú sæti í Ríkinu Sextán erlendir framleiðendur á bjór berjast núna um þrjú bjórsæti í vínbúðum ÁTVR þegar sala á bjór hefst á íslandi 1. mars næstkomandi. Fimm bjórtegundir verða seldar í Ríkinu. Allar bjórtegundirnar eru þekktar hér á landi og valdi ÁTVR þær til að taka þátt í lokuðu tilboði. Það er því ekki aðeins barist um bragð heldur líka verð. Tilboðin verða opnuð í næstu viku, 19. jan- úar. Allar þekktustu bjórtegundirnar á íslandi eru í þessu lokaða tilboði. Má þar nefna Carlsberg, Tuborg, Heineken, Budweiser og svo mætti telja áfram. Baráttan er erfið og hörð. Aðeins verður leyft að selja fimm tegundir í vínbúðum Ríkisins.Tvær innlendar og þrjár erlendar. típp eru reyndar komnar hugmyndir hjá bjórfram- leiðendum innanlands að innlendum tegundum verði fjölgað um tvær eða í fjórar alls. Þar með yrðu sjö tegund- ir seldar í vínbúðum Ríkisins. lítra dósum og minnst verður hægt geta keypt bjór í dósum, flöskum og Bjórinn verður seldur í 33ja senti- að kaupa 6 dósir í einu. Veitingahús tunnum. Það eru 44 dagar til 1. mars. Úttektin á Landsbankanum Davíð Scheving; Úrslit um næstu helgi Davíð Scheving Thorsteinsson segist enn ekki hafa ákveðið hvaða bjór verði átappaður í verksmiðju Smjörlíkis-Sólar. „Við byrjuðum að smakka 22 teg- undir og nú er búið að velja 4 tegundir. Þaö verður svo endan- lega valið úr þessum fjórum teg- undum um næstu helgi,“ segir Davíð. -JGH Erlendu ráðgjafarfyrirtækin flög- ur, sem Landsbankinn hefur óskað eftir að geri tilboð í úttekt á bankan- um, eru öll alþjóðleg og með sér- þekkingu á bankamálum. Fyrirtæk- in fjögur eru Cooper & Lybrand, McKinsey, Marketing Improvements og Spicer Oppenheim. Ætlun Landsbankans er að þessi fyrirtæki sendi inn tilboð á næstunni þannig að það liggi klárt fyrir í lok febrúar eða í mars hvert þessara fjögurra fyrirtækja verður ráðið til verksins. Bankinn hyggst búa til starfshópa innanhúss sem komi með tillögur að bættri þjónustu bankans og minni kostnaöi við rekstur hans. Með öðr- um orðum: aö gera hann hagkvæm- ari. Sú stefna virðist vera að ryðja sér til rúms erlendis hjá bönkum, sem hafa verið endurskipulagðir af ráð- gjafarfyrirtækjum, að þeim sé skipt upp meira eftir viðskiptavinunum en verið hefur til þessa. Þetta þýðir að ein deild annast ein- staklinga, önnur meðalstór fyrir- tæki, sú þriðja stór fyrirtæki og svo kollafkolli. Úttekin á Landsbankanum verður allsherjarskoðun. Það verður engu sleppt í rekstri bankans. Varðandi útibúin þá gætu sum verið lögö nið- ur, önnur sameinuð og loks að ný útibú yrðu stofnuð á nýjum stöðum sem þykja arðvænlegri en þeir sem fyrir eru. -JGH Benedikt Jóhannesson, stærðfræóingur og einn af eigendum Talnakönnun- ar, og Finnur Geirsson, hagfræðingur og ritstjóri Vísbendingar. Þeir höfðu umsjón með utgáfu ritsins íslenskt atvinnulíf 1987. DV-mynd S íslenskt atvinnulif 1987: Handbók fyrir matador á hlutabréf amarkaðnum Athyglisvert rit um afkomu og stöðu íslenskra fyrirtækja er komið út. Það heitir íslenskt atvinnulíf 1987 og eru aðstandendur þess fyrirtækið Talnakönnun og vikurit Kaupþings um efnahagsmál, Vísbending. Segja má að þetta rit sé handbók fyrir matador á íslenska hlutabréfamark- aðnum. „Þetta rit er hugsað sem lykill að upplýsingum um stærstu fyrirtæki landsins og er sérlega hentugt fyrir þá sem hyggjast fiárfesta í hlutabréf- um eða eru í viðskiptum við mörg helstu fyrirtæki landsins," segir Benedikt Jóhannesson, stærðfræð- ingur og einn af eigendum Talna- könnunar. Að sögn Benedikts hefur hann orð- ið var við nokkra þörf á meðal manna i viðskiptalífinu fyrir eitt- hvert einstakt rit til að fá almennar upplýsingar um fyrirtæki sem og helstu kennitölur úr ársreikningum þeirra. „Það er oft meiri háttar mál að komast yfir sjálfsagðar upplýsingar um fyrirtæki, eins og hvað eiga fyrir- tæki í hlutabréfum, í öðrum fyrir- tækjum, fasteignum, í hvers konar rekstri er fyrirtækið, hver er veltan, markaðshlutdeildin, raunaukning eigin fiár og fleira mætti telja. Þess- um upplýsingum gerum við skil í bókinni," segir Benedikt. -JGH Iðnrekendur ráðast á Aðalheiði Iðnrekendur í sælgætis- og gos- drykkjaiðnaði skjóta fóstum skotum á Aðalheiði Bjamfreðsdóttur í sér- stöku dreifibréfi sem kom út á dög- unum og er helgað álagningu vöru- gjaldsins. Mynd er af Aöalheiði ein- um þingmanna og við blasir fyrir- sögnin Aðalheiður tryggði framgang vörugjaldsins á Alþingi. í dreifibréfinu eru myndir af öllum þeim þingmönnum sem voru með og á móti vörugjaldinu þannig að starfs- menn verksmiðja í sælgætis:, kex- og gosdrykkjaiðnaði geti áttað sig á hvernig þingmenn greiddu atkvæði. Frá ársbyrjun var 14 prósent vöru- gjald á öh, gosi, sælgæti og kexi. í skattahækkunartillögum ríkis- stjórnarinnar sem lagðar voru fram um jólin var gert ráð fyrir almennu vörugjaldi 9 prósent en því til við- bótar yrði lagt á sérstakt 16 prósent vörugjald sem þýðir samtals 25 pró- sent vörugjald ofan á verksmiðju- verð þessara vöruflokka. -JGH Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. Verðið á bjómum er mismunandi. íslenski bjórinn, sá sem er bruggaður á íslandi, verður seldur á 115 krónur dósin. Bjór, átappaður hérlendis, verður seldur á um 130 krónur og loks verður innfluttur bjór í dósum seldur á um 145 krónur dósin. Sú spenna sem ríkir á meðal um- boðsmanna útlends bjórs á íslandi varðandi opnun tilboða 19. janúar er skiljanleg. Val ÁTVR byggist nefni- lega á verði og hversu þekktur bjór- inn er hérlendis. Þær bjórtegundir sem ekki komast inn í vínbúðir Rík- isins verða seldar í sérstakri bjórbúð í^íkisins í birgðastöð þess við Stuðla- háls í Árbænum. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 2-4 Lb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 2-4,5 Lb 6mán. uppsögn 2-4,5 Sb 12mán.uppsögn 3,5-5 Lb 18mán. uppsögn 8 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Vb Sértékkareikningar 0,5-4,0 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb Innlán meðsérkjörum 3,5-7 Lb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7,5-8,5 Úb.Bb,- Vb.lb Sterlingspund 11-12,25 Úb Vestur-þýsk mörk 3,75-5 Ab Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Sb,- Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 11-12 Lb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 12-12,5 Vb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 14,5-17 Lb Utlan verðtryggð Skuldabréf 8-8,75 Vb Útlán til framleiðslu isl. krónur 12-12,5 Lb,Sb,- Bb.Úb SDR 9,5 Allir Bandaríkjadalir 11-11,5 Úb Sterlingspund 14,50- allir 14,75 nema Úb Vestur-þýskmörk 7.25-7.5 allir nema Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 27,6 2,3 á mán. MEÐALVEXTIR Óverötr. jan. 88 12,2 Verötr. jan. 88 8.1 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajan. 2279 stig Byggingavísitala jan. 399,5 stig Byggingavísitala jan. 125,4 stig Húsaleiguvísitala Engin hækkun Verð- stöðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 3,436 Einingabréf 2 1,933 Einingabréf 3 2,231 Fjölþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,586 Kjarabréf 3,432 lífeyrisbréf 1 727 Skammtimabréf 1.195 Markbréf 1,822 Skyndibréf 1,049 Sjóósbréf 1 1,644 Sjóðsbréf 2 1,381 Sjóðsbréf 3 1,168 Tekjubréf 1,551 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 380 kr. Flugleiðir 288 kr. Hampiðjan 155 kr. Hlutabréfasjóður 151 kr. Iðnaðarbankinn 177 kr. Skagstrendingur hf. 200 kr. Útvegsbankinn hf. 134 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 126 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskíptavixla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.