Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. 17 Afnám lánskjaravísitölu Fyrir ári eða í desember 1987 lagði ég fram á Alþingi frumvarp til laga um lánskjör og ávöxtun sparifjár. Megininntak þess var af- nám lánskjaravísitölu. í staðinn skyldi tekin upp gengistrygging á langtímainnstæðum. Jafnframt skyldu vextir færðir niður í áfong- um þannig að þeir yrðu að ári liðnu svipaðir og í helstu viðskiptalönd- um okkar. Um frumvarpið urðu miklar umræður þegar það var til meðferðar á Alþingi í febrúarmán- uði á síðastliðnum vetri. Frum- varpið átti mikinn hljómgnmn úti í þjóðlífinu en takmarkaðan hjá 'ráðandi mönnum. í stað þess að samþykkja frumvarpið var því vís- að til ríkisstjórnarinnar. Frum- varpið hefur nú verið endurflutt á Alþingi og kemur til umræðu þegar þing kemur saman að nýju í febrú- armánuði. Vaxtamálin á síðastliðnu ári En hvernig hafa þessi mál þróast frá því frumvarpið var lagt fram fyrir liðlega ári? Segja má að unnið hafi verið eftir frumvarpinu að hluta þó að það hafi ekki verið sam- þykkt, þ.e. vextirnir hafa verið færðir niður í áföngum og gengis- tenging tekin upp. Beitt hefur verið handafli - bæði af fyrrv. stjórn og núverandi - með verðstöðvun, kaupstöðvun og vaxtalækkun. Far- iö hefur verið fram með valdboði eins og frumvarpið sagði fyrir um. Vegna þessara valdboðsaðgerða hefur lánskjaravísitalan lítið hækkað nú um skeið. Það sést best í dag að vaxtafrels- ið, sem var innleitt í tíð fyrri ríkis- stjórnar Steingríms Hermannsson- ar, var kolvitlaust. Þjóðfélag okkar er lítið og lögmál viðskiptalífs stór- Kjallarinn Eggert Haukdal alþingismaður þjóða eiga hér ekki við nema að vissu marki. Aö sjálfsögðu þurfa sparifjáreigendur að fá eðlilegt eft- irgjald fyrir peninga sína en það verötryggingakerfi, sem við notum, þekkist hvergi í nálægum löndum enda eru verðbólga og vextir þar hóflegir. Við notum kerfi eins og vanþróuð lönd í S-Ameríku þar sem verðbólga er mörg hundruð prósent á ári. Afnám vitlausra vísi- talna er grundvallaratriði til aö halda verðbólgunni í skefjum. Því á ekki að hafa það ráð, sem tekið var upp í fyrri ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar, að afnema kaupgjaldsvísitölu en láta láns- kjaravísitöluna mala. Báðar áttu og eiga að fara. Albert Guðmunds- son bar upp þá tillögu í þeirri ríkis- stjórn að lánskjaravísitalan yrði einnig afnumin. Það fékk litlar undirtektir, því miður. Staða okkar í dag væri önnur ef það hefði geng- ið fram. Fyrstur til að leggja fram frumvarp Frá því að lánskjaravísitalan var ákveðin með Ólafslögum 1979 er ég fyrsti þingmaðurinn sem leggur til með frumvarpi á Alþingi að þetta kerfi verði afnumið og fundnar nýjar leiðir í staðinn. í öllum flokk- um eru skoðanir skiptar um þetta mál og því miður hefur virst fram að þessu að of lítið fylgi væri fyrir því að breyta hér um. Þingmenn virðast um of hlíta leiðsögn Jó- hannesar Nordal og Jóns Sigurðs- sonar í þessu máli, þótt flestir sjái til hvers það leiðir fyrir heimili, fyrirtæki og þjóðina í heild. Á fyrri hluta síðasta árs fór þá- verandi utanríkisráðherra, Stein- grímur Hermannsson, að tala um afnám lánskjaravísitölu og sagði þá m.a. að frumvarp mitt væri eitt besta mál sem lagt hefði verið fram á síðasta þingi. Batnandi mönnum er best að lifa og ég fagna að sjálf- sögðu hveijum bandamanni og vonast til að eignast sem flesta í öllum flokkum. Að fóðra verðbólguna í desember var opinber verðbólga komin niður undir núll með hand- aflsaðgerðum svo sem fyrr er nefnt. Þá var lag. En þá tók ríkisstjórnin upp það ráð í miðri verðstöðvun að fara að fóðra verðbólguna á nýj- an leik svo um munaði með stór- felldum skattahækkunum og geng- islækkun sem stórhækkar vöru- verð í landinu þannig að nú stefnir skyndilega í 20% verðbólgu. Vegna þessara aðgerða einna hækkar nú allt í einu venjulegt húsnæðismála- lán um á annað hundrað þúsundir króna. Þegar frumvarpið var lagt fram upphaflega varaði ég við vaxta- og verðlagsskrúfunni er væri að keyra atvinnuvegina í strand og setja heimilin á vonarvöl. Nú er þetta orðin óhugnanleg staðreynd sem unnt hefði verið að-sneiða hjá ef frumvarpið hefði verið sam- þykkt. Ég vek enn athygli á því að verð- bólgan byrjaði ekki að lækka fyrr en vextir voru færðir niður með handafli og verðstöðvun síðan framkvæmd, einnig með handafli sem svo er kallað. Markaðslögmál- in hans Jóns Sigurðssonar, hæstv. viðskiptaráðherra, komu þar hvergi nærri. Þegar verðstöðvun lýkur Innan fárra vikna lýkur verð- stöðvun. Þá má vænta nýrrar verð- hækkunarskriðu sem svo verður að óbreyttu mögnuð upp með láns- kjaravísitölunni (ríkisstjórnin er nú þegar búin að setja af stað fyrstu verðskriöuna): Verðlag hækkar, greiðslubyrði fyrirtækja og heimila vex af völdum vísitölunnar og það knýr til verð- og kaupgjaldshækk- ana - og svo koll af kolli. Við búum þá áfram við verðbólgu og erlenda skuldasöfnun, uns næsta hrun kemur. Við erum á sömu leið og ríki S-Ameríku sem eitt af öðru glata efnahagslegu sjálfstæði sínu. Verkalýðshreyfing og lánskjaravísitala Víst er um það að verkalýðs- hreyfmgin mun varla sætta sig lengur við lánskjaravísitölu, nema kaupgjaldsvísitala verði tekin upp að nýju. Annaðhvort verða báðar að víkja eða báðar að standa - ann- að er mismunun og misrétti. Vissu- lega væri á sama hátt unnt aö skrúfa upp kaupgjald fyrir tilstUli ASÍ og verkalýðsfélaganna, uns stöðvun atvinnuveganna blasti við. Slíkt væri þvingun en ekki afleið- ing markaðsafla sem sumir nota til að réttlæta allt. Ríkisstjórnin mun ætla sér að taka kaupgjaldsliðinn upp í láns- kjaravísitöluna. Það er lymskuleg aðferð til að refsa launþegum fyrir hverja kauphækkun sem mun þá sjálfkrafa leiða til hækkunar á greiðslubyrði íbúðalána. Ekki er þó líklegt að slíkt muni takast. Þetta mun aðeins verða til þess að auka enn meira á glundroðann. Er ekki mál til komið fyrir stjórn- völd að viöurkenna að lánskjara- vísitalan er sprungin og breyta um stefnu? Eggert Haukdal „Ég vek enn athygli á því að verð- bólgan byrjaði ekki að lækka fyrr en vextir voru færðir niður með handafli og verðstöðvun síðan framkvæmd.“ Vinstri öldin Vinstri öflin urðu að innleiða verðbætur á fljótandi álkrónu, segir greinarhöfundur. Eftir 1971 hafa ríkisstjórnir íslands sífellt orðið veikari landsstjórnir en áratugina á undan. Annað ein- kenni tímabilsins er að Alþýðu- bandalagið situr nú í fjórða sinn í ríkisstjóm á 16 árum en fékk aöeins einu sinni inni í stjórn á rúmum 25 árum eftir stríðslok. Annað einkenni tímabilsins eftir 1971 er óðaverðbólga sem settist að eftir fyrstu vinstri stjórnina í lang- an tíma, þá sem sat 1971-1974 og skildi eftir sig 50% verðbólgu sem við erum enn að bíta úr náhnni með og virðist eftir öllum sólar- merkjum að dæma ætla að endast okkur til aldamóta. Glundroði Annað var offjárfestingar sem urðu miklar í sjávarútvegi og áttu verulegan þátt í því að við sitjum nú uppi með kvótakerfl á öflugustu sóknarmenn landsins og enn ann- að er að bankakerflð hrundi og vinstri öfhn urðu að innleiða verð- bætur á fljótandi álkrónu. Eitt ein- kenni ennþá er rétt að nefna sem eru kostnaðarhækkanir langt um- fram greiðslugetu atvinnuveganna og sífelldar gengisbreytingar og tíl- færslur af þeim sökum. Skattahækkanir Nú bætast við skattahækkanir með þeim afleiðingum að ríkisút- gjöld virðast aukast sem hlutfall af landsframleiðslu úr ca. 25% í tæp ca. 30%. Og ef miðað er við þjóðar- tekjur, úr ca. 30% í 39% árið 1989, og getur varla verið að öll kurl séu komin til grafar. KjaUariim Ásmundur Einarsson útgáfustjóri Veik staða Staða sósíalísku flokkanna er svo veik, og einkum formanna þeirra, að þeir hafa nú gert bandalag tU að styrkja sig gegn eigin flokks- bræðrum. Ólafur Ragnar Gríms- son hyggst beita vinum sínum í BSRB og kannski BHM til átaka við ASÍ tU að styrkja stöðu sína. Hægri kratar sitja hins vegar um hvert fótmál Jóns Baldvins í von um að hann misstígi sig á einhvern hátt. Sósíalismi er nú fjarlægara markmið en nokkru sinni áður en samt situr eftir fáránleg afstaða til einkaframtaks og fjölþjóðlegs fjár- magns, einkum í Alþýðubandalag- inu. Þátttaka sósíalista í gleðibanka hækkaðs kaups og styttri vinnu- tíma er raunverulega eina framlag þeirra tU vestrænna stjómmála á þessari öld, vaxandi kapítahsma og aukinnar frjálshyggju á öllum svið- um og vel heppnaðrar forystu Bandaríkjanna á efnahagssviðinu. Seinkun Vinstrimenn hafa almennt viður- kennt að þeir hafi verið of seinir að átta sig á breyttum aðstæðum eftir 1971 og að þeir hafi tafið fyrir nýmyndun iðnaðar, uppbyggingu fiskeldis, nýjum búgreinum og breyttum rekstrarháttum í land- búnaði. Gunnar Guðbjartsson var maður til að viðurkenna þetta, forystu- maður bænda til margra ára. En afsakaði sig með röngum spádóm- um hagfræðingsins Gunnars Myrdal um „grænu byltinguna" og birti langan hsta yfir lærdómsafrek Myrdals. - Hann hefur sennilega ekki vitað að Myrdal hefur oftar skjátlast en ekki og að hann fór í útlegð frá Svíþjóð eftir stuttan ráð- herradóm og ranga spádóma um framvinduna fyrir 40 árum. - Hann spáði hruni þegar aðrir sáu fram- farir. Vantrú Þessi landlæga vantrú vinstri afla á getu manna til að rétta hlut sinn, ef almennar reglur eru viðunandi, er ennþá of fost í vinstri mönnum til að þeir verði tekmr alvarlega sem stjórnendur efnahagsmála. Samt hafa þeir eftir 1971 meiri áhrif á íslandi en nokkru sinni fyrr, öndvert við það sem gerist í flestum löndum. Þess yegna er hagvöxtur minnkandi á íslandi þegar hann vex með öðrum þjóðum. Það er htið öryggi í því fólgið að búa til öryggisnet fyrir almenning ef efnið í netinu er annars flokks. Aðeins traust atvinnulíf skapar traust öryggisnet og getur staðið undir nauðsynlegum tryggingum og hehbrigðiskerfl ásamt viðun- andi menntun. Ásmundur Einarsson „Sósíalismi er nú fjarlægara markmið en nokkru sinni áður en samt situr eft- ir fáránleg afstaða til einkaframtaks og fjölþjóðlegs fíármagns, einkum í Alþýðubandalaginu. ‘ ‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.