Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. Iþróttir Á.: • Ragnar Torfason skoraði 12 stig fyrir ÍR gegn ÍBK í gærkvöldi. Keflvíkingar unnu yfirburðasigur og áttu ÍR ingar aldrei möguleika á sigri DV-mynd Gí Úrvalsdeildin í körfu: - Keflavík sigraði, 93-109 ÍR-ingar höfðu ekki mikið í hend- urnar á Keflvíkingum að gera þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í Seljaskóla í gær- kvöldi. Keflavík sigraði með 16 stiga mun, 93-109, og eins og tölurnar gefa til kynna var sóknarleikurinn í fyr- irrúmi og lítið bar á varnarleiknum. Leikurinn var mjög jafn til að byrja með og jafnt á flestum upp í 25-25. Þá skildi leiðir. Minnstur varð mun- urinn 8 stig í síðari hálfleik en Kefl- víkingar meö leikinn í hendi sér all- an tímann. í hð ÍR vantaði Björn Steffnen, sem spókar sig þessa dag- ana í skíðabrekkum í Austurríki, og í lið ÍBK vantaði þá Magnús Guð- finnsson og Axel Nikulásson. Stig ÍBK: Sigurður 25, Falur 18, Albert 18, Einar 16, Guðjón 12, Jón Kr. 12, Nökkvi 8. Stig ÍR: Jón Örn 24, Jóhannes 22, Ragnar 12, Bragi 10, Gunnar Örn 4, Hjörtur4ogKarl3. -SK/GS Auðveldur Vals- sigur gegn Þór Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Valsmenn þurftu engin snihdartil- þrif til j)ess að vinna 112-102 sigur á Þór í Islandsmótinu í körfubolta í gærkvöldi er liðin léku á Akureyri. Er reyndar furðulegt miðað við leik Valsliðsins að liðið skuli vera svo gott sem búið að tryggja sér sæti í úrslitaképpni mótsins. Sennilega hafa því Valsmenn leikið undir getu í gærkvöldi og vanmetið Þórsara, a.m.k. var ekki hægt aö sjá í fyrri hálfleik hvort liðið það er sem berst fyrir tilveru sinni í deildinni. Valsmenn voru yfir í upphafi leiks- ins en síðan komust Þórsarar yfir, mest fyrir góðan sóknarleik Konráðs Óskarssonar sem skoraði grimmt, alls 18 stig í hálfleiknum og þar af 12 stig úr þriggja stiga skotum. Staö- an í leikhléi var 53-50 fyrir Þór. En í upphafi síðari hálfleiks datt allur botn úr Þórsliðinu og Valur lék betri varnarleik framan af. Konráð náði t.d. aldrei að koma nema einu þriggja stiga skoti á körfuna í hálf- leiknum, fékk enga aðstoð. Vals- menn gerðu út um leikinn, komust í 82-63 og úrslitin voru ráðin. Bárður Eyþórsson var besti maður Vals í þessum leik, lipur piltur, og Einar Ólafsson átti ágæta kafla. Hjá Þór var Konráð mjög góður í fyrri hálfleik, Eiríkur Sigurðsson barðist einnig vel en aðrir voru ekki góðir. Stig Vals: Bárður Eyþórsson 26, Björn Zoega 20, Einar Ólafsson 20, Ragnar Þ. Jónsson 12, Matthías Matt- híasson 10, Tómas Holton 10, Arnar Guðmundsson 8, Hreinn Þorkelsson 6. Stig Þórs: Konráð Óskarsson 29, Guðmundur Björnsson 17, Eiríkur Sigurðsson 17, Jóhann Sigurðsson 14, Björn Sveinsson 12, Kristján Rafns- son 7, Stefán Friðleifsson 6. Urvalsdeildin í körfu: Magur Haukasigur á Sauðárkróki - Haukar unnu Tindastól, 81-84 Bíkarkeppnin í körfuknattleik: 60 stig ÍBK í fyrri hálfleik - en UMFN sigraöi, 95-90 Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Þórhallur Ámumdsson, DV, Sauðárkr.: Haukur unnu góðan sigur á Tindastóli í úrvalsdeildinni í körfúknattleik á Sauðárkróki í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 81-84 eftir jafna viðureign. Leikurinn var í jafnvægi fram- an af en Haukar náöu mest sex stiga forskoti í fyrri hálfleik. í þeim síðari hélst leikurinn í jám- um og þegar staðan var 77-77 komust heimamenn yflr. Á þess- um tíma léku Tindastólsmenn mjög sterka vöm. En forysta Tindastóls var skammgóöur vermir því Haukar jöfnuöu og komust yfir þegar tvær mínútur vora til leiksloka og tryggðu sér sigur. Valur Ingimundarson var at- kvæðamestur í hði Tindastóls en Haraldur Leifsson, Eyjólfur Sverrisson og Sverrir Sverrisson léku einnig veL Pálmar Sigurðs- son var drýgstur Haukamanna og Henning Hennigsson var einn- ig sprækur. Stig Tindastóls: Valur Ingi- mundarson 23, Haraldur Leifsson 18, Sverrir Svernsson 18, Sverrir Sverrisson 16, Eyjólfúr Sverris- són 10, Kári Marísson 9, Bjöm Sigtryggsson 5. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 18, Henning Henningsson 16, Tryggvi Jónsson 16, ívar Ás- grímsson 16, Eyþór Árnason 6, Jón Arnar Ingvarsson 4, Ingimar Jónsson 4, Reynir Kristjánsson 4, Hörður Gunnarsson 4. „Við gerðum tvær breytingar í síðari hálfleik, að stöðva hraöaupp- hlaupin hjá þeim og lykilleikmenn sem hittu mjög vel í fyrri hálfleik. Þaö tókst okkur og ég er mjög ánægð- ur með strákana. Þeir lögðu sig allir vel fram í leiknum," sagði Kris Fad- ness, þjálfari Njarövíkinga, eftir sig- urinn á Keflvikingum í fyrri leik lið- anna í bikarkeppninni í körfuknatt- leik. Leiknum lauk með sigri Njarðvík- inga, 95-90, eftir að staöan hafði ver- ið 49-60 fyrir Keflvíkinga í hálfleik. Leikurinn var mjög hraður og spennandi allan tímann. Leikurinn var jafn framam af en síðan kom stórgóður kafli hjá Keflvíkingum. Þeir fóru á kostum, sérstaklega Jón Kr. Gíslason sem skoraöi fimm þriggja stiga körfur á átta mínútna kafla og benti allt til stórsigurs Kefl- víkinga. Njarðvíkingar komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og komust yfir þegar sjö mínútur voru til leiksloka og gott betur, náðu tíu stiga forskoti en Keflvíkingar náðu að minnka muninn undir lok leiks- ins. Stigahæstir UMFN: Teitur Örlygs- son 25, Helgi Rafnsson 18, Hreiöar Hreiðarsson 16. Stigahæstir ÍBK: Guðjón Skúlason 24, Jón Kr. Gíslason 24. Flugleiðadeild Staðan er þessi eftir leiki helg- arinnan Þór-Vaiur................102-112 ÍS-UMFN....................74-92 UMFT - Haukar............ 81-84 ÍR-ÍBK............. .....93-109 A-riðilI: Njarðvík....17 16 1 1520-1247 32 Grindavík....l7 10 7 1384-1273 20 Valur........17 10 7 1458-1324 20 Þór..........17 2 15 1312-1609 4 ÍS...........17 1 16 1088-1602 2 B-riðill: Keflavík.....17 14 3 1501-1245 28 KR...........17 12 5 1356-1263 24 Haukar.......17 9 8 1504-1421 18 ÍR...........17 8 9 1306-1311 16 Tindastóll....l7 3 14 1359-1505 6 Bikarkeppnin Valur - KR....... 63-50 UMFN-ÍBK...........95-90 UÍA - UMFN-b..... 56-84 • Næstu leikir í Flugleiðadeild- inni fara fram á sunnudag: Þór - ÍBK, UMFG-KR, Valur- UMFT, ÍS -Haukar og UMFN - ÍR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.