Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. 9 Utlönd Þúsundir mótmælenda reyna aö komast inn á Wenceslas-torg í Prag í Tékkóslóvakíu til að minnast stúdentsins Jans Palach sem brenndi sig til bana fyrir tuttugu árum. Lögreglan réðst að mannfjöldanum. Símamynd Reuter Lögreglan í Prag ræðst að mótmælendum Lögreglan í Prag í Tékkóslóvakíu réöst í gær að þúsundum mótmæl- enda til þess aö stööva minningarat- höfn um stúdentinn Jan Palach. Hann brenndi sig til bana fyrir tutt- ugu árum í mótmælaskyni við innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu. Víst þykir aö þessar ofbeldisað- gerðir lögreglunnar verði gagnrýnd- ar á fundi þrjátíu og fimm utanríkis- ráðherra í vikunni í Vín þar sem undirritað verður samkomulag milli austurs og vesturs um mannrétt- indamál og afvopnunarviðræður. Lögreglan lagði til atlögu á Wen- ceslas-torgi til að reyna að dreifa um þúsund manns sem ætluðu að taka þátt í minningarathöfninni. Þúsund- um öðrum var meinaður aðgangur að torginu og gekk þá mannfjöldinn í nokkrum hópum um borgina syngj- andi „Lengi lifi lýðræðið" og „Frelsi, frelsi“. Opinbera fréttastofan CTK í Tékkóslóvakíu greindi svo frá at- burðunum að lögreglan hefði skorist í leikinn hjá niðurrifsseggjum. Sagt var að níutíu og einn hefði verið handtekinn. Leiðtogar mannréttindahreyfing- arinnar Charta 77 lögðu blómsveig í minningu Palachs fyrir framan þing- ið en lögreglan flýtti sér að fjarlægja blómin. Yfirvöld í Tékkóslóvakíu höfðu í síðustu viku bannað mönnum að koma saman til að minnast Palachs. Hátalarar voru notaðir í gær þegar fólk var hvatt til að hafa sig á brott en síðan var vatnsþrýstibyssum beint að því. Nokkrir voru barðir af bæði einkennisklæddum og óein- kennisklæddum lögreglumönnum, þar á meðal voru vestur-þýskir sjón- varpsmenn. Reuter Björgunin lygasaga Sovéska fréttastofan Tass bar í gær formlega til baka fréttina um giftu- samlega björgun sex manna úr rústunum í Leninakan í Armeníu. Tass sagði að enginn fótur væri fyrir fréttinni um að fimmtugur rafvirki hefði verið dreginn úr rústunum 35 dögum eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Myndir voru birtar af rafvirkj- anum en ekkert spurðist til félaga hans fimm. Izvestia, málgagn stjórnarinnar, sagði á laugardaginn að systir raf- virkjans hefði búið til söguna um björgunina til þess að hann fengi rúm á sjúkrahúsi en hann þjáist af öndun- arerfiðleikum. Reuter SNÓKEREINVÍGI STORVIÐBURDUR AISUNU! FWGLEIDASNÓKERllU Missið ekki af þessu einstaka snókereinvígi sem fram ferá Hótel íslandi á morgun, 17. janúar ki. 21.00. (Húsinu lokað kl.21.00). jbbMSSSBBSS avis Miðasala fer fram á helstu billiardstofum landsins og Fimmfaldur heimsmeistari / Billiardbúðinni Ármúla 15 Reykjavík. I snóker Billiardbúðin. Nr. 3 á heimslistanum I snóker.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.