Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. Lífsstíll Verö á skíöum fyrir börn á aldrinum 6-10 ára er á bilinu frá 8-12.000 krónur. „Stundum spáir fólk meira í litinn á gallanum og hvernig allt passar saman heldur en gæðin á skíöun- um sem það er að kaupa," sagði afgreiðslustúlka í sportvöruversl- un í samtali við DV þegar neyt- endasíðan leit á verð á skíðum og skyldum búnaði. Skíði, skór, stafir, bindingar, skíðagallar, vettlingar, húfur og fleira, sem ómissandi þykir við skíðaiðkun, fæst í afar fjölbreyttu úrvali og svipaða íjölbreytni er finna í veröinu. Skiði, bindingar, klossar og stafir, sem duga hverjum meðalmanni í skíðabrekkunum, kostar samtals 17.300 krónur í Sportvali. Hægt er að fá skíði frá 6.000 og upp í 13.000, bind- ingar frá 3.000 og upp í 9.000, klossa alit upp í 17.000, 600-1.200 krónur þarf að borga fyrir skíðagleraugu. Skíðagalla er hægt að fá á ýmsu veröi, frá 12.000 og upp í tæp 20.000. Þaö er líka hægt að fá vatteraðar buxur og anorak fyrir 5.000 krónur. Miðað við að okkar maöur hafi ekki átt neinn búnaö fyrir þarf hann aö leggja út hið minnsta 23.000 krónur fyrir allan búnað og galla. Kjósi menn frekar að stíga á gönguskíði þá kosta skíði, skór, bindingar og stafir tæpar 9.000 krónur í Sportvali. Hægt er að taka dýrari skó og bindingar og fer þá pakkinn rétt yfir 10.000 krónur. Gallar fyrir göngugarpa kosta frá 4.700 krónum upp í tæpar 6.000. Sportval selur Atomic skíði en skó og bindingar frá Salomon. Skíðapakkar í Hummel búðinni í Hummel búðinni í Ármúla, sem selur Rossignol skíði og skó, er boðiö upp á skíðapakka. I pakkan- um eru innifalin skíði, skór, stafir, bindingar og ásetning. 15% afslátt- ur er á pökkunum miðaö við kaup á einstökum hlutum. Tveir pakkar fyrir fullorðna eru í boði og kostar annar 16.900 og hinn 18.900 krónur. Vandaðir skíðagallar kosta í Hummel búðinni frá 15.500 upp í 18.500 krónur í fullorðinsstærðum. Einnig er hægt að fá staka jakka fyrir 8-12.000 krónur og stakar bux- ur á 5-6.000 krónur. Skíðapakkar fyrir krakka eru boðnir á 8.600 krónur og 10.600 krónur og er það sama innifalið. Skíðagallar fyrir krakka kosta á bilinu frá 4.900 til 9.900 krónur. í Hummel er sértilboð á dúnúlpum sem eru þessa dagana seldar á 3.950-4.950 krónur. Fyrir gönguskíðamenn býður Hummel búðin skíðapakka á 8.200 krónur. Ekki eru seldir þar sér- stakir gönguskíöagallar en af- greiðslumaöur benti á æfingagalla sem til væru á 2.800-4.990 krónur. Fjallaskíði og fleira í Skátabúðinni Skíðabúnaður fyrir fulloröinn kostar í Skátabúðinni 20.650 kr. Þá er átt við búnað sem hentar vel byijendum og lengra komnum. Skíðagallar fyrir fullorðna kosta frá 10.380 og upp í 15.990 krónur í Skátabúðinni. Gönguskíðabúnaður fyrir al- menning kostar í Skátabúðinni 8.880 krónur. Hægt er að fá göngu- skíði fyrir allt að 9.500 krónur. Skíðabúnaöur fyrir börn kostar 12.300 í Skátabúðinni. Ef allur bún- aðurinn, þ.e. skíði, skór, bindingar og stafir, er staðgreiddur þá er boð- inn 10% afsláttur og ókeypis ásetn- ing bindinga sem annars kostar 300 krónur. Skátabúðin selur Kástle skíði og Dynafit skó. Hilmar, verslunar-' Neytendur stjóri í Skátabúöinni, vildi vekja sérstaka athygli á hagstæðu verði á keppnisskíðum frá Kástle sem eru föl á 14.980 kr. sem Hilmar full- yrti að væru mun lægra en á keppnisskíðum frá öðrum. Mjög vaxandi áhugi er á svoköll- uðum Ijallaskíðum en svo heita sérstök skíöi sem notuð eru bæði sem göngu- og svigskíði. Sérstakt skinn er límt neðan á skíðin þegar gengið er og það síðan tekiö undan og þá er hægt að renna sér. Bind- ingar skíðanna eru á hjörum og sömuleiðis eru skórnir sérstaklega útbúnir svo þeir geti gegnt báðum hlutverkum. Með þennan búnað ganga garpar á fjöll og renna sér síðan niður. Til marks um vaxandi áhuga nefndi Hilmar að .mest hefðu farið saman 70 manns í Tindfjöll á síðasta vetri. Ýmislegt í Útilífi Útilíf í Glæsibæ selur Blizzard skíði og Nordica skíðaskó. Pakki með skíðum, skóm, bindingum og stöfum kostar fyrir fullorðna frá Mjög fjölbreytt úrval stendur til boða þeim sem vilja skreppa á skíði. Lágmarksbúnaður fyrir full- orðna kostar á bilinu 15-20.000 krónur. 15.900-17.900 krónur. Hægt er að fá dýrari búnaö með því að taka dýr- ari skíði og skó en þetta taldi af- greiðslumaður að ætti að henta flestum. Svigskíðabúnaður fyrir börn kostar í Útilífi frá 9.000 krónum upp í 11.000. Þá er átt við skíði, skó, stafi og bindingar. Gönguskíöabúnaður fyrir fulloröna kostar 9.000 krónur í Útilífi. Skíðagallar fást á 10.000 til 20.000 en hægt er til dæmis að fá stakar buxur frá 3.800 krónum vilji menn komast ódýrar frá þeim lið. Ásetn- ing bindinga er frí ef allur búnaður er keyptur. Gömlu skíðin tekin upp í ný Sportmarkaðurinn í Skipholti tekur notaðan skíðabúnað í um- boðssölu og tekur einnig notuð skíði upp í ný. Sportmarkaðurinn selur Hakan skíði frá Austurríki. Ódýrasti búnaður fyrir fullorðinn, skíði, skór, stafir og bindinga, kost- ar 15.000 krónur. Sams konar pakki fyrir 10 ára krakka kostar minnst 8.670 krónur. Sem dæmi um verð á notuðum búnaði nefndi afgreiðslumaður ársgömul Atomic keppnisskíði með vönduðum bindingum sem föl væru á 7.000 krónur. Búnaður fyrir fullorðinn myndi kosta notaður 6.000-10.000 krónur. Sportmarkað- urinn tekur 20% prósent andvirðis- ins í umboöslaun. Að framanskráðu má ljóst vera að fyrir lágmarksbúnað að frátöld- um galla þarf að greiða að minnsta kosti 15.000 krónur. Vilji menn hinsvegar klæðast glæsilegum galla og kaupa mjög vandaðan bún- að getur verið farið allt upp í 50.000 krónur fyrir skíðabúnað og galla. Samanborið við svipaða könnun, sem DV gerði um sama leyti á síð- asta ári, virðist verð á lágmarks- búnaði hafa hækkað um 12-14%. -Pá 5 Z kannar 7 Verð á skíðavörum 20.000 19.000 18.000 17.000 16,000 15,000 Skátabúðin 20,650 Sportval ....*...J 17,300 Hummelbúöin : 16,900 DVJRJ Utilíf 15,900 Sportmarkaöurinn 15,000 V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.