Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fjölskyldudeild FÉLAGSRÁÐGJAFAR Félagsráögjafa vantar til afleysinga við hverfaskrif- stofu fjölskyldudeildar í Breiöholti. Uppl. gefur yfirfélagsráögjafi, í síma 74544, og yfir- maöur fjölskyldudeildar, í síma 25500. Námsvist í Sovétríkjunum Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum Islendingi skólavist og styrk til háskólanáms í Sovét- ríkjunum háskólaárið 1989-90. Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 13. febrúar nk. og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meömælum. - Umsóknar- eyöublöö fást í ráðuneytinu. 12. janúar 1989 Menntamálaráðuneytið íþróttir dv • 3. flokkur KR árið 1933. Óli var þá markvörður og fékk aðeins á sig eitt mark allt timabilið og unnu strákarnir öll mót sumarsins. Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Eiríkur Bjarnason, Magnús Guðmundsson, Þórður Péturs- Verslið ódýrt Nýtt úrval - Inniskór og kuldaskór á alla fjölskyIduna Okklaskórnir komnir kr. 2900 Kvenkuldaskór m/rennilás, kr. 2900 Údýri skómarkaðurinn, Hverfisgötu 89 INNRITUN í ALMENNA FL0KKA Eftirtaldar greinar eru í boði á vorönn 1989 ef þátt- taka leyfir: TUNGUMÁL: íslensk málfræði og stafsetning. ís- lesnka fyrir útlendinga. Danska 1 .-4. flokkur. Norska 1.-4. flokkur. Sænska 1.-4. fl. Þýska 1.-4. fl. Enska 1 -5. fl. Ítalska 1 .-4. fl. ítalskar bókmenntir. Spænska 1.-4. fl. Latína. Franska 1.-4. fl. Portúgalska. Gríska. Hebreska. Tékkneska. Hollenska. VERSLUNARGREINAR: Vélritun. Bókfærsla. Tölvu- námskeið. Stærðfræði (grunnskólastig/framhalds- skólastig). VERKLEGAR GREINAR: Fatasaumur. Myndbanda- gerð (video). Skrautskrift. Postulínsmálun. Teikning. Leðursmíði. Bókband. NÝTT með vorinu: TEIKNING. Grunnnám, hlutateikning. JARÐFRÆÐI. Tekin verða fyrir helstu fyrirbæri í al- mennri jarðfræði með sérstöku tilliti til íslands. Einnig verður boðið upp á kennslu í DÖNSKU, SÆNSKU OG NORSKU fyrir börn 7-10 ára, til að viðhalda kunnáttu þeirra barna sem kunna eitthvað fyrir í málunum. Kennsla í þessum málum hefst 1. febrúar. í almennum flokkum er kennt einu sinni eða tvisvar í viku, ýmist 2, 3, eða 4 kennslustundir í senn í 11 vikur. Kennsla fer fram í MIÐBÆJARSKÓLA, LAUGALÆKJ- ARSKÓLA, GERÐUBERGI OG ÁRBÆJARSKÓLA. Námsgjald fer eftir kennslustundafjölda og GREIÐIST VIÐ INNRITUN. INNRITUN fer fram 18. og 19. janúar kl. 16-20 í Miðbæjarskóla. og 18. og 19. janúar kl. 18-20 í Gerðubergi og Ár- bæjarskóla. KENNSLA hefst 23. janúar. Námsflokkar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1 son, Hreiðar Ágústsson, Halldór Nikulásson, Pétur Gislason og Guðjón Guðmundsson. - Fremri röð frá vinstri: Guðbjörn Jónsson (bróðir Óla), Hafliði Guðmundsson, Óli B. Jónsson, Gunnar Guðmundsson og Haraldur Guðjóns- son. Óli B. Jónsson í KR varð sjötugur 15. nóvember sl. Hann á merkilegan feril að baki í íslenskri knattspyrnu. 1936 byrjaði hann að leika í mfl. KR og lék stanslaust til 1949. Þjálfaraferill Óla er einstakur því lið undir hans stjórn náðu alls 10 sinnum að sigra 1 íslandsmóti. Þetta er met sem erfitt verður að bæta, ef ekki útilokað. 1951 þjálfaði hann íslenska landsliðið og náði þeim frábæra árangri að leiða það til sigurs gegn Svíum, 4-3. Óli var og þjálfari Vals 1966, þegar Valur náði jafntefli gegn portú- galska stórliðinu Benfica í Evrópukeppni meistaraliða í leik sem fór fram á Laugar- dalsvelli að viðstöddum um 19000 áhorfendum og engum gleymist sem á horfði. Óli lék og í landsliði íslands gegn Danmörku 1949. Iþróttasamband íslands sæmdi Óla nýverið gullmerki samtakanna fyrir hans mikla framlags til íslenskrar knatt- spyrnu gegnum árin og er hann svo sannarlega vel að því kominn. Óli var mjög flink- ur leikmaður og annálaður fyrir sínar frábæru sendingar, sem sköpuðu oft mikla hættu við mark andstæðinganna. Hann spilaði fótbolta í þess orðs fyllstu merkingu. Meðal mótherja sinna naut hann ávallt mikillar virðingar, ekki bara sem góður leik- maður heldur einnig fyrir prúðmennsku utan vallar sem innan. DV hafði samband við afmælisbarnið af þessu hefur drifið í knattspyrnun - Óli, þú sem unglingur í vesturbæn- um með mikinn áhuga fyrir knatt- spyrnu, var ekki gefið mál að þú gengir í raðir KR-inga? Kom nokkuð annað til greina? Hverjir skipuðu forystusveit KR-inga á þessum árum? „Ég fæddist og ólst upp í húsi sem bar nafnið Stóra-Skipholt og var á hinu svokallaða Bráðræðisholíi, sem nú er Grandavegur. Þar búa nú þau hjónin Kjartan Ragnarsson leikhst- arskáld og leikari og Guðrún Ás- mundsdóttir sem er þekkt leikkona. Þar var gott um pláss og því mikið um grasflatir sem voru óspart riotað- ar. Þar spruttu upp heil ógrynni af knattspyrnufélögum og var mikið spilað og oft heitt í kolunum. Sumir þessara leikja enduöu nefnilega oft- ast með grjótkasti. Sérstaklega urðu oft hatrammar deilur eftir leiki gegn Grímsstaðarholtinu. Við önnuðumst sjáliir dómgæsluna og bar okkur ekki alltaf saman um niðurstöður. Alltannað en KR hefði verið landráð Auðvitað kom aldrei annað til greina en að ganga í KR. Allt annað hefði jaðrað við landráð. Ég gekk í KR árið 1927. Bræður mínir, þeir Hákon og Sigurjón, voru þá leik- menn í meistaraflokki. Einnig léku þá í liðinu þeir Hansi Krag, Þorsteinn Einarsson og Gísli Guðmundsson (Hansi, Steini og Gísli). Þetta er eitt frægasta framlínutríó sem KR hefur átt. í vörninni léku m.a. þeir Björg- vin Schram, Sigurður Halldórsson og Sigurjón bróðir. Þeir urðu nokkr- um sinnum íslandsmeistarar, enda þrumugott lið. Þjálfari þá var Guðmundur Ólafs- son skósmiður. Það var alltaf gífurlegur rígur milli Reykjavíkurfélaganna á þessum tíma. Vesturbærinn var yfirráða- svæði KR eins og flestir vita og er mér sérstaklega minnisstætt aö þeg- ar einn leikmanna fluttist í aust- urbæinn, varð mikið fjaðrafok og fjölmargir fundir haldnir um hvort ekki bæri hreinlega að vísa mannin- um úr félaginu. Sú tillaga féll sem tilefni og innti hann nánar d og var þaö auðfengið mál. betur fer, en með litlum mun. Hann er og frægur slagurinn milli austur- og vesturbæjar rétt fyrir 1930. Það ríkti algjört styijaldar- ástand á miðbæjarsvæðinu. Ég var þá svo lítill og var því ekki hlutgeng- ur. En ég man að bræður mínir, Sig- urjón og Hákon, fóru vel brynjaðir að heiman vopnaöir kústsköftum og stórum potthlemmum. Við heim- komuna var heldur lágt á þeim risið, fótin gauðrifin og andlit þeirra þakin skrámum. Mig minnir að orrustunni hafi lyktað með jafnteíli." Valsmenn „stálu“ bikarnum - Hvenær byrjaðir þú svo að leika með KR? „Ég byrjaði að keppa árið 1931 og þá á vinstra kanti með 3. flokki, en það var yngsti flokkurinn á þeim árum. 1933 lék ég í marki og gekk bara vel. Við unnum öll mót í 3. flokki og fékk ég bara eitt mark á mig yfir sumarið. Árið 1936 byrjaði ég að leika með meistaraflokki. og spilaði stans- laust til 1949.“ Erlendur þoldi ekki álagið - Eftirminnilegasti leikurinn með KR? „Það er örugglega úrslitaleikurinn í íslandsmótinu 1945 gegn Val. Bik- arnum hafði verið stillt upp á borð beint fyrir framan stúkuna á Mela- vellinum. Staðan var 4-2 fyrir okkur og 3-4 mín. til leiksloka. Ég man að við KR-ingarnir vorum alltaf að gjóa augum til bikarsins, því viö töldum sigurinn nokkuð vísan. En viti menn, Valsmenn náðu að jafna og dugði það þeim til sigurs í mótinu. Þetta voru gífurleg vonbrigði fyrir okkur, þar sem svo stutt var til leiksloka, og vorum við lengi að jafna okkur eftir þessar hrakfarir. Formaður KR þá var Erlendur Pét- ursson. Hann var mikið til hættur að fara á völlinn þegar KR var að spila, blátt áfram þoldi ekki álagið. Aftur á móti hlustaði hann alltaf á útvarpslýsingar, eins og í fyrrnefnd- um leik gegn Val. Sagt var aö í hvert skipti sem KR var í sókn hafi hann hækkað í útvarpinu upp úr öllu valdi um það sem á daga hans en aftur lækkað í því þegar andstæð- ingarnir sóttu, sem í þessu tilfelli voru Valsmenn. Þetta finnst mér dæmigert með Erlend og trúi þessu vel á hann. Hann birtist síðan úti á velli þegar svolítið var liðið á síðari hálfleik og staðan 4-1, fyrir okkur. Hefur sjálfsagt talið öllu óhætt. Þegar leikar stóðu 4-2 og um 3 min. eftir var hann lagður af stað út af svæðinu og hafði á orði að óhætt væri að fara því hér væri öruggur sigur KR í höfn. Þegar hann var kominn hálfa leið að vallarhliðinu, náðu Valsmenn að minnka muninn í 4-3. „Þetta breytir litlu, þeir ná aldrei að jafna á rúmri mínútu," sagði Erlendur og hélt áfram göngu sinni. En þegar hann kom að hliðinu varð honum htið til baka og í sama mund jöfnuðu Vals- menn leikinn og við náðum varla að taka miðjuna. Þetta var hroðalegt áfall fyrir okkur og af Erlendi er það að segja að hann stóð stjarfur við inngang vallarins, gjörsamlega orð- laus, en eitthvað hefur hann sjálfsagt verið að hugsa.“ Þetta hlýtur að vita á eitthvað - Manst þú Óli eftir einhverjum skondnum atvikum úr leikjum KR- inga frá fyrri tímum? „Jú. Það kemur náttúrlega margt spaugilegt upp í hugann þegar maður hugsar til baka. Eitt sinn vorum við t.d. að spila gegn Val í íslandsmótinu og töpuðum reyndar 6-0. Það var aö mig minnir 1946. Það gekk allt í haginn hjá Vals- mönnum og þeir nýbúnir að skora sitt 5. mark og langt liðið á leikinn. Birgir Guðjónsson (Bommi) sem lék ávallt aftasti maður í vörn KR, sótti boltann í markið og lahaði með hann áleiðis að miðju, hrópaði til okkar: „Hvert í þreifandi, strákar, þetta hlýtur aö vita á eitthvað stórkost- legt!“ Hörður Óskarsson, sem var aðalmarkaskorari KR á þessum tíma, var nærstaddur og spurði af þjósti: „Hvern þremihnn á þetta svo sem að geta boðað, rnaður?" Bommi svaraöi að bragði: „Það mætti nefni- lega segja mér að við töpuðum þess-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.