Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Side 19
Getraunir-11 2 -2 1 2 -x 2 1 -1 2 1
Lottó - 21 - 10 - 14 - 12 - 29 - (24)
• Paul Tledemann er einn virtasti þjálfarinn i heiminum i dag. Tekur
hann við af Bogdan Kowalczyk?
Ráðning landsliðsþjálfara í handknattleik:
Tiedemann
JF ■ ■ ■
numer eitt
Carlsson
númer tvö
- sex íslenskir þjálfarar koma til greina
Handknattleikssamband íslands leitar nú
meö logandi ljósi að eftirmanni Bogdans Kow-
alczyk, landsliðsþjálfara íslands í handknatt-
leik. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ,
sagði í samtali við DV í gærkvöldi að Paul
Tiedemann frá Austur-Þýskalandi og Roger
Carlsson frá Svíþjóð væru í efstu sætunum
hjá HSÍ. Viðræður standa yfir þessa dagana
við nokkra þjálfara en nýr landsliðsþjálfari
verður ráðinn áður en b-keppnin í Frakklandi
hefst þann 15. febrúar. Auk þeirra Tiedemanns
og Carlssons eru sex íslenskir þjálfarar inni í
myndinni. í helgarblaði DV var viðtal við Ro-
ger Carlsson þar sem hann sagði landsliðs-
þjálfarastarfið áhugavert og spennandi.
Tiedemann lýsti því yfir eftir
óLympíuleikana 1 Seoul að
hann hefði áhuga á starfinu.
„Paul Tiedemann er efstur á
óskalistanum hjá okkur sem stend-
ur og Roger Carlsson er númer tvö.
Viö eigum eflir aö ræöa betur viö
Tiedemann en er viö ræddum viö
hann eftir ÓL í Seoul sagöist hann
hafa áhuga á starfinu. Roger Carls-
son hefur einnig lýst yfir áhuga.
Viö munum reyna að fá Carlsson
til landsins i þessari viku og ræöa
máiin. Einnig eru sex íslenskir
þjálfarar inni í myndinni en þaö
eru þeir Gunnar Einarsson, Viggó
Sigurðsson, Ámi Indriöason, Þor-
bjöm Jensson, Þorbergur Aöal-
steinsson og Jóhann Ingi Gunnars-
son. Ég veit þó ekki hvort íslensku
þjálfararnir munu ailir gefa kost á
sér. Samkvæmt heimildum DV
mun Þorbergur Aðalsteinsson ekki
gefa kost á sér.
Þorbjöm vill Carlsson
Þorbjörn Jensson þekkir Roger
Carlsson, fyrrverandi landsliðs-
þjálfara Svía, miög vel frá því er
hann dvaldi í Svíþjóð. Þorbjöm
sagði í gærkvöldi: „Ég tel rétt aö
breyta tii. Viö höfum haft austan-
tjaldsþjálfara í raörg ár og ég held
að menn séu orðnir þreyttir á þvi
Það er því rakið að breyta til og
ráða Roger Carlsson sem beitir ailt
öömvísi vinnubrögöum en til
dæmis Bogdan. Carlsson lætur fé-
lagsliöin að mestu um þrekþjálfun
leikmanna og hafði mikið samband
við þjálfara félagsUöanna. Hann
byggir mikið á góöum Uðsanda og
er fljótur að losa sig við fýlupoka.
Hann byggði leik Svia upp á góðri
markvörslu, einföldum vamarleik,
öguðum sóknarleik, hraðaupp-
hlaupum og gaf leikmönnum nokk-
uö ffjáisar hendur. Ég teldi það
breytingu til batnaðar aö ráða
Carlsson.“
Málin skýrast fljótlega
Samkvæmt heimildum DV verður
þess ekki langt aö bíða að ráðinn
verði landsliðsþjálfari. Telja verð-
ur líkumar raeiri á því aö Paul
Tiederaaxm taki við af Bogdan. Ti-
edemann náði frábæmm árangri
með Hð Austur-Þjóðveija og er lík-
lega virtasti þjálfari í handknatt-
leiksheiminum í dag. Roger Carls-
son náði einnig frábærum árangri
með Uð Svía. Gámngar telja rétt
að ráöa Carlsson. Þar með væri
endi bundinn á slakt gengi íslenska
UösinsgegnSvíum. -SK/GG
iSrTiQ/uoR
___
• Roger Carlsson náði frábærum árangri með sænska landsliðið.
Hann kemur væntanlega til íslands f vlkunni til viðræðna viö HSÍ.
Guðni mjög góður
Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
Guðni Bergsson átti mjög góðan
leik með Tottenham í gær er liðið
tapaði fyrir Nottingham Forest á
White Hart Lane, 1-2. Guðni var
mjög hreyfanlegur sem bakvörður
hægra megin. Guðni tók töluverðan
þátt í sóknarleik Tottenham. Átti eitt
markskot sem fór yfir. Þegar Guðni
kom inn á leikvanginn var hann vel
hylltur af áhorfendum.
„Mér líður mjög illa fyrir hönd
Thorstvedt markvarðar sem var
mjög óstyrkur í leiknum. Bakvarðar-
staðan er nokkuð ný fyrir mig en ég
er bjartsýnn á framhaldið. Ég er að
mestu búinn að ná mér af flensunni
sem ég fékk um síðustu helgi," sagði
Guðni Bergsson eftir leikinn í gær.
Sjá nánar á bls. 20.
• Siguróli Kristjánsson.
Siguróli til UMFG
- Grindvíkingar í skýjunum
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjunu
SiguróU Kristjánsson, knatt-
spyrnumaður í Þór frá Akureyri,
hefur ákveðið að leika með Grindvík-
ingum sem leika í 3. deild næsta
keppnistímabil. SiguróU hefur um
langt skeið verið einn sterkasti leik-
maður Þórsliðsins og mun styrkja Uð
Grindvíkinga mjög í sumar. Freyr
Sverrisson hefur enn ekki ákveðið
hvort hann leikur með Uðinu í sum-
ar.
„Viö eru í skýjunum yfir að Sigur-
ÓU skuh leika með okkur í sumar.
Hann mum styrkja Uöið óhemju mik-
ið,“ sagði Gunnar Vilbergsson, for-
maður knattspymudeildar Grind-
víkinga.