Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Síða 23
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989.
23
Iþróttir
Bandaríski kylfingurinn Curtis
Strange varð sigurvegari á stórmóti
atvinnumanna í Ástralíu um helgina
og fékk að launum um fjórar milljón-
ir króna auk sérstaks jakka (sjá
mynd). Strange lék af miklu öryggi
og kom inn á 280 höggum. Það sem
vakti einna mesta athygli á mótinu
var gott gengi hjá hinum 47 ára
gamla Raymond Floyd en hann varð
annar á 282 höggum.
Terry Price frá Bandaríkjunum
var lengi vel öruggur með annaö
sætið en á síðustu holunni dró til tíð-
inda. Kúla Curtis Strange hafnaði í
vatnsgryfiu og lék hann holuna á
tveimur höggum yfir parinu. Ray-
mond Floyd, fyrirliði bandaríska
liðsins sem keppir um Ryder-bikar-
inn, lék síðustu holuna á höggi undir
pari og þar með skaut hann Price
aftur fyrir sig. Fyrir annað sætið
fékk Floyd um 2 milijónir króna en
Price fékk um 1,5 milljónir fyrir
þriðja sætið. Það að Floyd lék síðustu
holuna á höggi undir pari tryggði
honum því 500 þúsund króna hærri
verðlaun og Price varð að sama skapi
sömu upphæð fátækari.
-SK
• Greg Norman klæðir hér Curtis Strange i jakkann (ræga sem sigurvegarinn á „The Palm Meadows Cup“ fær
hverju sinni. Norman sigraði á mótinu í fyrra. Strange lék á 280 höggum en Raymond Floyd, sem varð annar, kom
inn á 282 höggum. Símamynd/Reuter
Golf 1 Ástralíu:
Frétta-
stúfar
Ástralski tennis-
leikarinn, Pat Cash,
gæti misst af opna
ástralska meistara-
mótinu í ár vegna meiðsla á oln-
boga. Cash lék til úrslita á mót-
inu í fyrra en tapaði þá fyrir
Svianum Mats Wilander. Cash
hefur nýverið breytt stíl sínum
i uppgjöfum og slær nú boltann
á uppleið en ekki á niðurleið
eins og áður. Læknar haía sagt
að breyting þessi í uppgjöfinni
hjá Cas'h sé hugsanlegur or-
sakavaldur að meiðslunum.
ítalskir blaðamenn ekki
göðir í knattspyrnu
ítalskir blaðamenn, sem hafa
það aö atvinnu sinni að skrifa
um íþróttir, geta ekki talist til
bestu knattspymumanna á ítal-
íunni. Á dögunum lék nokkurs
konar landsliö Palestínu gegn
hði ítalskra íþróttafrétta-
manna, og sigruðu Palestínu-
mennimir með þremur mörk-
um gegn engu. Landslið Palest-
ínu samanstendur af áhuga-
mönnum sem leika með liðum
í Kuwait, írak, Egyptalandi og
S-Arabíu. Og auðvitað hafa
ísraelsmenn mótmælt heim-
sókn Palestímunannanna til ít-
alíu og ininnt á að það voru
vopnaðir Palestínumenn sem
drápu 11 ísraelsmenn á ólymp-
íuleikunum. árið 1972 í
Munchen.
Berthold að braggast
Vestur-þýski knattspymumað-
urinn Thomas Bérthold er á
batavegi eftír að hafa sýkst í
kjölfar neyslu á mjólkurvöru.
Berthold; sem leikm með Ver-
ona á Italíu, hefur verið á
sjúkrahúsi frá 1. janúar og þrátt
fyrir að hann sé á batavegi á
hann enn nokkuð í land. Búist
er við því að Berthold fari af
sjúkrahúsinu í þessari viku en
þá tekur við meðferð í heima-
landi hans, Vestur Þýskalandi.
Strange fékk jakkann
Víðavangshlaup
Kópavogs fór fram
um helgina og var
hart barist. Sigur-
vegari í karlaflokki varð FH-
ingurinn Jóhann Ingibergsson
en í kvennaflokki sigraði Marta
Emstdóttir, ÍR.
Bubka var langt
frá heimsmeti sínu
Sovéski stangarstökkvarinn,
Sergei Bubka, keppti á innan-
hússmóti í ftjálsura íþróttum
um helgina en mótið fór fram í
Barcelona á Spáni. Bubka sigr-
aði og stökk 5,70 metra en það
er nokkuð langt frá hans besta
árangri. Heimsmet Bubka inn-
anhúss er 5,97 raetrar. Bubka
stökk fyrst yfir 5,50 metra og
loks 5,70 metra. Síðan reyndi
hann við 5,80 metra en felldi
þrívegis. Scott Davis frá Banda-
ríkjunum og Frakkinn Philippe
Collet höfhuðu í öðm og þriðja
sæti í stangarstökkinu og
stukku báðir 5,50 metra.
Karatemenn flytja sig
Karatefélag Reykjavikur, KFR,
hefur flutt í nýtt glæsilegt 200
fermetra húsnæði í kjaliara
svmdiaugarinnar í Laugardal.
KFR var áður með starfsemi
sína í 60 fermetra húsnæði sem
ekki var ætlaö til íþróttaiðkana.
Við þessa stökkbreytingu á að-
stöðu karatemanna sjá þeir
fram á mun bjartari tíma en
félagar í KFR í dag eru um 100.
• Ungir karatemenn fá nú
glæsilega aðstöðu i Laugardal
Finnar töpuöu fyrir
Egyptum í vináttuleik
Finnska landsliöið í
knattspymu var
ekki upp á marga
fiska um helgina er
það lék gegn landsliði Egypta-
lands í Kairó. Egyptar fengu
óskabyrjun í leiknum er Hís-
ham Abdel-rasul skoraði á 7.
mínútu. Rantanen jafnaði fyrir
Finna á 42. mínútu en heima-
menn, Egyptar, skoruðu síðan
sigurmarkið í leiknum á 80.
mínútu við mikinn fögnuð 10
þúsund áhorfenda.
Innrás sovéskra i
ensku knattspyrnuna?
Sovéskir knattspyrnumenn eru
farnir að nema land í Englandi.
Fyrsti sovéski knattspyrnu-
maðurinn hefur nú hafið iðkun
íþróttarinnar með ensku liði.
Hér er um að ræða Sergei
Baltacha sem gengið hefur til
liðs við 2. deildar lið Ipswich
Town. Forráðamenn Ipswich
áttu í mestu erfiðleikum með
að komast í samband við réttu
aðilana í Sovétríkjunum vegna
málsins og tók það í heild lang-
an tíma. En þegar samkomulag
var í augsýn eftir mörg símtöl
og skeytasendingar flugu for-
ráðamenn Ipswich til Moskvu
og gengu frá málunum. Og
Baltacha hefur nú hafið æfing-
ar með Ipswich.
Wailace til Colchester
Hinn þekkti skoski fram-
kvæmdasfióri, Jock Wallace,
sem meðal annars hefur veriö
við sfiórnvölinn hjá Glasgow
Rangers, Hearts, Leicester og
Seville, hefur tekið viö sfiórn-
inni hjá botniiði 4. deildar í
enska boltanum, Colchester.
HJA OKKI R ER I .\(,l.\.\ IíOmAM K
VEGM 9LELL\GAK EÐA ÍSCT\L\(iAli Á RAFGETMIIM
35 ára reynsla er þín tryggíng
PÖl&RHE
EINHOLTI 6 - NÝTT SÍMANÚMER 618401