Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Síða 27
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989.
27
fþróttir
Alfreð Gíslason stekkur hér hátt í loft upp og þrumar knettinum í mark Austur-Þjóðverja. Alfreð átti ágætan leik og skoraði fimm mörk. DV-mynd GS
Fyrri landsleikurinn 1 handknattleik gegn Austur-Þjóðverjum í Laugardalshöll á laugardag:
Mesti sigur gegn Austur-
Þjóðverjum frá upphafi
%
Landsleikur íslands og Austur-Þýskalands í handknattleik á laugardag
var sögulegur svo ekki sé meira sagt. íslenska liöið lék lengst af vel og
sigraði, 26-21, og aldrei hefur landshði okkar tekist að vinna stærri eða
meiri sigur gegn Austur-Þjóðverjum sem verið hafa stórveldi í alþjóðlegum hand-
knattleik mörg undanfarin ár. I raun hefur íslenska landsliðið í handknattleik
æviniega átt í hinu mesta bash gegn Austur-Þjóðverjum en mikið jafnræði hefur
þó verið með liðunum síðustu árin. Austur-Þjóðverjar hafa haft heppnina með
sér og margoft unnið eins marks sigur gegn okkar mönnum. Og svo voru það
Austur-Þjóðverjar sem unnu ótrúlegan heppnissigur gegn íslenska hðinu í Seoul
og þess vegna er íslenska liðið á förum th Frakklands til þess að taka þátt í b-
keppninni.
Það var ljóst þegar leikurinn h'ófst á
laugardag að Austur-Þjóðverjar eru
að byggia upp nýtt lið og margir
sterkir leikmenn eru hættir. Það
varð hka fljótlega ljóst að íslenska
liðið virðist á réttri leið og bjartsýni
er farin að birtast í brosum manna
á ný eftir taumlaust táraflóð í kjölfar
ófaranna í Seoul. Enn er þó alltof
snemmt að segja til um hver árangur
liðsins í Frakklandi verður en hlut-
irnir virðast vera á heillavænlegri
leið.
Stórleikur Héðins og Einars
Héðinn Gilsson skoraði fyrsta mark
leiksins á laugardag og átti eftir að
koma mikið við sögu. Leikurinn var
jafn í upphafi en siðan tók íslenska
liðið öll völd á vellinum og staðan í
leikhléi var 15-10 fyrir ísland. Bilið
breikkaöi enn í síðari hálfleik og
mestur varð munurinn þegar staðan
var orðin 19-10 og 20-11. Síðan var
gefið eftir í lokin en öruggur var sig-
urinn engu að síður.
í íslenska liöið vantaði Kristján
Arason og Sigurður Sveinsson tók
stöðu hans. Hann náöi sér ekki á
strik og var mjög óöruggur í sóknar-
leiknum. Siggi getur gert miklu bet-
ur. Það var hins vegar stórleikur
Einars Þorvarðarsonar í markinu og
afbragðsgóður leikur Héðins Gils-
sonar sem skóp þennan sæta sigur
öðru fremur. Einar varði 15 skot en
fékk síðan rautt spjald í lok leiksins.
Hrafn Margeirsson kom í markið og
varði meðal annars vítakast.
Héðinn Gilsson sýndi nú svipaða
takta og í leiknum gegn Dönum ytra
á dögunum. Héðinn er framtíðar-
maður og vonandi stendur hann
undir öllu því hrósi sem yfir hann
dynur þessa dagana. Hann á margt
eftir ólært en hæfileikarnir virðast
ómældir engu að síður. Þá má hér
einnig geta frammistöðu Bjarka Sig-
urðssonar sem lék nú mun betur en
í undanfórnum landsleikjum.
Mörk íslands: Héðinn Gilsson 6,
Alfreð Gíslason 5, Bjarki Sigurðsson
5, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Sigurð-
ur Sveinsson 3/2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Jakob Sigurðsson 1 og
Geir Sveinsson 1.
Markahæstir í liði Austur-Þjóð-
verja: Holger Winselmann 6, Rudiger
Borchardt 5/3, og Stefan Hauk 3.
Danskir dómarar dæmdu leikinn
og voru ósamkvæmir sjálfum sér. í
fjölmörgum tilfellum komust austur-
þýsku leikmennirnir í dauðafæri eft-
ir að brotið hafði verið á þeim. Þeir
fengu frítt skot en ef Einar varði,
fengu þeir aukakast eða vítakast. Það
var því ekki furða þótt Einar yrði
hálfvitlaus í lokin en engu að síður
fannst manni að Einar hefði ekki
ástæðu til að verða jafnskapvondur
og hann varð. íslenska hðið hafði
örugga forystu og Einar hafði varið
sem berserkur. En markvörðurinn
er skapmikill og vill að sjálfsögðu að
réttlætið ráði ferð.
-SK