Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Qupperneq 38
38
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989.
Smáauglýsingar
EP-stigar ht. Framleiðum allar teg. tré-
stiga og handriða. teiknum og gerurn
föst verðtilboð. EP-stigar hf.. Sntiðju-
vegi 20D. Kóp., sínti 71640. Veljum
íslenskt.
V '
Dusar baðkarsveggir og sturtuhurðir á
kjaraverði. verð frá kr. 6.900. Póst-
sendum. A. Bergmann. Miðbæjar-
markaði. Aðaistræti 9. s. 91-27288.
Erum tlutt i Þingholtsstræti 1 og höfum
opnað tvær aðskildar deildir. Ný
tækjadeild, rnikið úrval af hjálpar-
tækjum fyrir dömur og herra ásamt
mörgu fleiru. Ný fatadeild. Meirihátt-
ar smart nærfatnaður á dömur í úr-
vali ásamt dressum úr plasti og
gúmmíefnum. Við minnum á dulnefnis
póstkröfurnar. Opið frá kl. 10-18
mánudaga til föstudaga og 10-16 laug-
ardaga. Sími 14448.
Útsala á tágakörfum, keramikvörum
og leikföngum. Verð frá kr. 50. Pósts-
endUm. A. Bergmann, Miðbæjarmark-
aðnum, Aðalstræti 9, sími 91-27288.
Marilyn Monroe sokkabuxur með
glansáferð. Heildsölubirgðir: S.A. Sig-
urjónsson hf., Þórsgötu 14, sími 24477.
Útsaumur! Setjum útsaum á rókókó-
stóla og borð. Ótrúlegt úrval af grind-
um, bæði fyrir útsaum og áklæði.
Einnig sófasett, borðstofusett, stakir
stólar, skápar o.m.fl. Verið velkomin.
Nýja bólsturgerðin, Garðshorni, s.
16541.
Fréttir
DV
■ Bátar
Þak fauk af fjósi á bæ 1 Gnúpveijahreppi:
Vökvadrifin spil tyrir
línu og net.
fíafdrifnar Elektra
færavindur, 12vog24v.
Tvær stærðir.
Einnig línurennur. Elektra hf.. Lyngási
11. Garðabæ. símar 91-53688 og 53396.
Mfl RIÍ -
ÍTOGH STRC WD «-
Si -ilCS '-'Vf.-—;
c . - . T.IC c/
1 j J -II
E
Erum m/i framl. 9,9 t. bát, kvóti fylgir.
Lengd 11.5 m. b. 3,8 m. d.1,3 m. Framl.
einnig 12 og 14 feta vatnabáta, 2 tonna
trillur. 6. 8. 9. 15, 20 og 30 t. trillur
og hraðfiskibáta, fiskeldiskör, klæðn-
ingar f/fiskverkunarstöðvar, stýrishús
á báta í öllum st., geymakassa, klæðn-
ingar í flutningabíla, heita potta
o.m.fl. Öll framl. er úr trefjaplasti.
Ath. Seljum allt á föstu verðlagi skv.
samningi. Góð framl., gott verð. Mark
hfi, s. 95-4805, Skagaströnd.
■ Bílar til sölu
Verst ef við þurf um að
fara slypp og snauð
- segir Finnbogi Jóhannsson bóndi á Minni-Mástungu
Stutt og snörp vindhviða olli gífur-
legu tjóni í Gnúpverjahreppi um
miðjan dag á föstudag. Þak fauk í
heilu lagi af fjósinu við bæinn
Minni-Mástungu og munaði litlu að
það lenti á íbúðarhúsinu. Á Minni-
Mástungu býr sex manna fjölskylda
og var hið mesta happ að enginn var
heimavið.
„Það er eins og það hafi komið hér
hvirfilbylur eitt andartak," sagði
Finnbogi Jóhannsson bóndi. Þrjátíu
og fjórar skepnur voru í ijósi og
sluppu þær allar. „Ég hef komið
skepnunum fyrir í tveimur flósum
hér í sveitinni og hef loforð fyrir að
þær fái að vera inni í vetur. Ég get
ekki sjálfur staðið undir að byggja
fjósið á nýjan leik og viðlagasjóðs-
tryggingin bætir ekki tjón af völdum
roks. Ég var aðeins með skyldutrygg-
inguna og mér finnst það brotalöm
að tjón sem þetta fáist ekki bætt. Ég
lít á þetta sem náttúruhamfarir sem
enginn ræður við,“ sagði Finnbogi.
„Ætli þetta sé ekki svipað og þegar
sjómaður missir bát sinn.“
Þegar fjölskyldan á Minni-Más-
tungu kom heim um fiögurleytið á
fóstudag var skaðinn skeður og segir
Finnbogi að erfitt sé að lýsa þeirri
tilfinningu að koma heim við slíkar
aðstæður. „Þakið fauk sjötíu metra
og lá hér um og hefði hæglega getaö
lent á íbúðarhúsinu. Það var sannar-
lega mildi að enginn var heima. Mér
þykir verst ef viö þurfum að flytja
héðan slypp og snauð því íbúðar-
húsið er verðlaust þegar fiósið vant-
ar.“
Finnbogi segist vera með lítinn
kvóta og lifi því ekki á bústörfum
sínum. Hann hefur kennt í hluta-
starfi við barnaskólann. „Þótt ég fái
húsnæði á næstu bæjum fyrir belj-
urnar núna, þá mjólka ég ekki á öðr-
um bæjum til frambúðar," sagði
hann. „Ég verð að hugsa málið á
næstunni, hvað ég geri en það er ljóst
að uppbyggin'gu fióssins ræð ég ekki
einn við, fiárhagslega.“
Nokkurt tjón varð einnig á öðrum
bæjum í sveitinni. Gróðurhús fauk
frá einum bænum og sleit rafmagns-
streng þannig að rafmagslaust varð
um tima. Þá fór hjólhýsi á loft á öðr-
um bæ og gjöreyðilagðist og þak fauk
af nýbyggðu húsi.
-ELA
Nýi rafstrengurinn til Vestmannaeyja ónothæfur:
Alvarlegt ástand í rafmagns-
málum Eyja í upphafi vertíðar
Ómar Garðarsson, DV, Vestmartnaeyjum:
Mjög alvarlegt ástand skapaðist
í rafmagnsmálum Vestmannaey-
inga þegar rafstrengurinn ofan af
landi bilaði rétt fyrir klukkan átta
álaugardagsmorgun ogljóst að við-
gerö getur tekið vikur eða jafnvel
mánuöi. Ekki er alveg ljóst hvar
skemmdin er á kaplinum en menn
álíta þó að hún sé þar sem hann
er tekinn í land á eiðinu við Vest-
mannaeyjar eða þar skammt und-
an.
Eiríkur Bogason, veitustjóri í
Vestmannaeyjum, sagði að þetta
væri mjög alvarlegt mál. Seinni
partinn á laugardag tókst að koma
i gagnið gamla strengnum sem er
til vara ef bilun verður. Hann er
ekki eins afkastamikill og ljóst að
þegar allt er komið í gagnið þarf
að keyra hér með olíu, bæði kyndi-
stöðina fyrir bæinn og eins að
keyra jafnvel dísilstöðvar. Sagði
Eiríkur að mikili kostnaður gæti
orðið af þessu.
Þá sagði hann að nú væri unnið
að því að fá kapalskip til landsins
hið bráðasta til þess að ná upp
strengnum og gera við hann. Ekki
er ljóst hvað gamli strengurinn
endist en hann er keyrður á miklu
meira álagi en nokkru sinni fyrr.
Eiríkur sagði aö nú væri unnið að
neyðaráætlun ef gamli strengurinn
gefur sig og meðal annars að fá
hingað túrbínur, sem Rafinagns-
veitur ríkisins eiga, ef allt klikkar.
Samkvæmt upplýsingum RARIK
mun kostnaður við viðgerðina
veröa 20-30 milljónir.
’85 Chevy Monte Carlo SS, m/öllu.
Datsun 200 SX (Silvia), m/öllu.
Ford Van, fullkl., 351 mótor, C6 sk.
79 Audi 100, 5 cyl., beinsk., óryðgað-
ur, fluttur inn ’86, ódýr.
’66 Bronco, 6 cyl. beinsk., skoðaður
88, í góðu lagi, ódýr.
1/4 mílu Dragster, allt nema mótor.
Volvo F-609, árg. 1979, með lyftu. Uppl.
í síma 985-23068 og 91-611169 á kvöld-
in.
Ál, Big Block Chevy head, 4 stk. Open
Camp. vog, Open Camp. Dport. með
öllu, millihedd, 2 stk., með 850 Holley
og 1100 Holley. Rúlluknastás og und-
irlyftur. Rúllurokkerarmar. Allt nýtt.
8" converter o.fl.
Blazer fram- og afturbr., sílsar. Nýtt.
Til sölu bilar - partar - 1/4 mila.
’86 Subaru, 1800 GL st„ ek. 44 þús., 5
g.. rafm. í rúðum, centrall., vel farinn.
4ra gíra trukkakassi, New Process, með
lágan 1. gír.
Uppl. i sima 673662.
Framhjóladrifinn Buick Century LTD
station 1985, sjálfskiptur, V-6 vél, 3
lítra, tvískiptframsæti, plussáklæði +
viðarmælaborð, rafmdrifnar rúður og
sæti, centrallæsingar o.fl. afl- og velti-
stýri. Toppbíll. Verð 980.000 kr. Upp-
lýsingar hjá Bílasölu Guðfinns
v/Miklatorg.
Chevrolet Suburban ’80 seria 20, 9
manna, 4ra gíra, beinskiptur, 350 vél,
ekinn 67 þús. mílur, veltistýri, afl-
bremsur, mikið yfirfarinn, m.a. nýjar
fjaðrir, demparar, bremsur o.m.fl. Sími
getur fylgt, verð 750-800 þús. Uppl. í
síma 91-641420 og e.kl. 19 44731.
4x4 plckup. Ford F-150 ’81 til sölu,
lengri gerð, ekinn 130 þús. km, 6 cyl.,
4ra gíra, beinsk., ný dekk, hagstætt
verð. P.S. bílasalan, Toyotasalurinn,
Skeifunni, sími 687120.
Mjög gott verö. Mazda sendibíll,
m/bensínvél 1982, m/gluggum aftur í.
í góðu lagi og útliti. Gott verð og góð.
kjör. Uppl. í síma 91-72212 e.kl. 16.
Rúta tll sölu. Mercedes Benz, árg. 1980,
6 cyl., 21 farþega, skipti koma ekki til
greina. Uppl. í síma 98-66056.
■ Ymislegt
jþróttasalir til leigu
við Gullinbrú. Við bjóðum tíma fyrir
knattspyrnu, handknattleik, blak,
badminton, körfubolta, skallatennis
o.fl. Gufubað og tækjasalur fylgja.
Einnig er hægt að fara í borðtennis
og billjarð (12 feta nýtt borð fyrir og
eftir æfingatíma eða tefla og spila.
Upplagður klúbbur fyrir starfsfélaga
eða kunningjahóp að hittast 1 2 í
viku. Uppl. á daginn í s. 641144 eða á
kvöldin og um helgar í s. 672270.
■ Þjónusta
Smókingaleiga. Höfum til leigu allar
stærðir smókinga við öll tækifæri,
skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna-
laugin, Nóatúni 17, sími 91-16199.
# ■ , ' ■& • :■+>+" >■ • .RHH ' ' ■ ‘M' 4. .n ■ Ti i \ »lí':
Gröfuþjónusta, simi 985-25007. Til leigu í öll verk Cat. 428 traktors- grafa. Höfum einnig vörubíl. Leitið tilboða. Kvöldsími 91-21602 og 641557.
Húsaeinangrun hf. Að blása steinull
ofan á loft/þakplötur og í holrúm er
auðveld aðferð til að einangra án þess
að rífa klæðningar. Steinullin er mjög
góð einangrun, vatnsvarin og eldþol-
in, auk góðrar hljóðeinangrunar.
Veitum þjónustu um land allt. Húsa-
einangrunin hf„ símar 91-22866/82643.