Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1989, Síða 43
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1989. 43 Fólk í fréttum Garðar Thor Cortes Garðar Thor Cortes hefur verið í fréttum DV en hann lék Nonna í kvikmyndinni Nonni og Manni. Garðar Thor er fæddur 2. maí 1974 í Rvík og er nemi í áttunda bekk Álftamýrarskóla. Hann hefur veriö í tónlistarnámi frá tíu ára aldri og lærir á cornet hjá Jóni Sigurðssyni í Tónlistarskólanum í Rvík. Garðar er auk þess áhugamaður um íþrótt- ir. Systkini Garðars eru Sigrún Björk, f. 21. desember 1963, ritari, gift Björgvini Þórhallssyni, Nanna Ma^ía, f. 3. janúar 1971, og Aron Axel, f. 25. september 1985. Foreldrar Garðars eru Garðar Cortes, óperusöngvari og skólastjóri Söngskólans í Rvík, og Krystyna Cortes, píanóleikari í Rvík. Kryst- yna er dóttir Wladyslaw Blasiak, myndhöggvara í Kings Langley í Englandi, sem var pólskur í fóður- ætt en ítalskur í móðurætt, sonur Adams og Zofiu Blasiak. Móðir Krystynu er Beryl Blasiak listmál- ari, dóttir Ethelar og Williams Chandlers, garðyrkjumanns í Kings Langley í Englandi. Garðar er sonur Axels Cortes, feldskera í Rvík, Emanuelssonar Cortes, yfirprentara í Rvík, Péturs- sonar Cortes, koparsmiðs í Stokk- hólmi. Móðir Axels var Björg Jó- hannesdóttir Zoega, trésmiðs í Rvík, Jóhannessonar Zoega, útgerðar- manns í Rvík, bróður Tómasar, afa Geirs Hallgrímssonar. Jóhannes var sonur Jóhannesar Zoega, gler- skera í Rvík, Jóhannessonar Zoega, fangavarðar í Rvík, frá Slesvík, af ættinni Zuecca, höfðingjaætt gyð- inga á eyjunni Giudecca í Feneyjum. Móðir Jóhannesar útgerðarmanns var Ingigerður Ingimundardóttir, systir Helgu, langömmu Haralds, föður Matthíasar Johannessens skálds. Helga var einnig langamma Franz, fóður Hans G. Andersen sendiherra. Móðir Bjargar var Guð- rún Jónsdóttir, b. í Starkaðarhúsum í Flóa, Ingimundarsonar, b. í Norð- urkoti í Grímsnesi, Jónssonar. Móð- ir Ingimundar var Guðrún Snorra- dóttir, b. í Kakkarhjáleigu í Stokks- eyrarhreppi, Knútssonar, og konu hans, Þóru Bergsdóttur, b. í Bratts- holti, Sturlaugssonar, ættfóður Bergsættarinnar. Móðir Guðrúnar var Sigríður Sigurðardóttir, skipa- smiðs á Hjallalandi á Álftanesi, Sig- urðssonar, og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur, silfursmiðs á Bíldsfelli, Sigurðssonar, ættfóður Bíldsfells- ættarinnar, fóður Þorvarðar, lang- afa Ingimunda'r, afa Jóhönnu Sig- urðardóttur ráðherra. Jón var einn- ig faöir Önnu, langömmu Þórarins á Eiðum, fóður Ragnhildar borgar- minjavarðar. Móðir Garðars var Kristjana Jónsdóttir, trésmiðs í Rvík, Magn- ússonar, b. á Lágum í Ölfusi, Jóns- sonar. Móðir Magnúsar var Guð- rún, systir Magnúsar, langafa Ell- erts Schram ritstjóra. Guðrún var dóttir Magnúsar, b. á Hrauni í Ölf- usi, Magnússonar, b. í Þorlákshöfn, Beinteinssonar, lögréttumanns á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimundar- sonar, b. í Hólum í Stokkseyrar- hreppi, Bergssonar, bróður Þóru í Kakkarhjáleigu. Móðir Guðrúnar var Guðrún Halldórsdóttir, b. á Lág- um í Ölfusi, Böðvarssonar, bróður Amheiðar, móður Böðvars Magn- ússonar á Laugarvatni, afa Eddu Guðmundsdóttur, konu Steingríms Hermannssonar. Móðir Halldórs var Guðrún Halldórsdóttir, b. á Reyðarvatni, Guðmundssonar, og konu hans, Ingibjargar Halldórs- dóttur, b. í Þorlákshöfn, Jónssonar. Móðir Ingibjargar var Guðbjörg Sig- urðardóttir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Systir Guðbjargar var Sal- vör, amma Tómasar Sæmundsson- ar, Fjölnismanns. Móðir Guðrúnar var Sigríður Eiríksdóttir, b. á Litla- landi í Ölfusi, Ólafssonar, ogkonu hans, Helgu Jónsdóttir, b. á Vindási á Landi, Bjarnasonar, b. á Víkings- læk, Halldórssonar, ættföður Vík- ingslækj arættarinnar. Móðir Kristjönu var Kristjana Friðjónsdóttir, b. á Laugum í Hvammssveit, Sæmundssonar. Móðir Friðjóns var Guðrún Guð- mundsdóttir, skipasmiðs á Hóli í Garðar Thor Cortes. Hvammssveit; Ormssonar, b. í Fremri-Langey, Sigurðssonar, ætt- fóður Ormsættarinnar, langafa Snæbjarnar í Hergilsey, afa Snæ- bjarnar Jónassonar vegamála- stjóra. Ormur var einnig langafi Þórhalls, afa Péturs Einarssonar flugmálastjóra. Móðir Guörúnar var Margrét, systir Finns, afa Ás- mundar Sveinssonar myndhöggv- ara. Margrét var dóttir Sveins, b. í Neðri-Hundadal í Miðdölum, Finns- sonar og konu hans, Guðrúnar Guð- mundsdóttur, systur Þórdísar, langömmu Ragnheiðar, móður Snorra Hjartarsonar skálds. Afmæli Haukur F. Filippusson Haukur Filippus Filippusson tann- læknir, til heimilis að Hagamel 35, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Haukur fæddist í Reykjavik. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1959 og embættisprófi í tannlækningum frá HÍ1969, en tannlækningaleyfi fékk hann sama ár. Haukur hefur verið skólatann- læknir frá 1969 og starfar nú sem slíkur við Hlíðaskóla í Reykjavík. Hann var aðstoðartannlæknir hjá Jónasi Thorarensen frá 1969-73 en hefur rekið eigin tannlæknastofu frá 1973. Haukur var formaður Félags tannlæknanema 1965-66, gjaldkeri í stjórn TFÍ1976-78 og hefur setið í ritstjórn Tannlæknablaðsins. Kona Hauks er Ragnheiöur Krist- ín Benediktsson Másdóttir, f. 27.12. 1939, uppeldisfræðingur og kennari við Melaskólann í Reykjavík, dóttir Stefáns Más Benediktssonar, versl- unarmanns í Reykjavík, og Sigríðar Benediktsson Oddsdóttur húsmóð- ur. Stefán Már var sonur Einars Benediktssonar skálds. Haukur og Ragnheiöur Kristín eiga tvö börn. Þau eru: Þórdís, f. 15.10.1964, sjúkranuddari; og Orri, f. 28.3.1971, menntaskólanemi í MR. Haukur átvö systkini. Þau eru: Hrefna, f. 30.1.1942, húsmóðir í Reykjavík og starfsmaður hjá Sveini Egilssyni, gift Árna Gunnarssyni alþingismanni, en þau eiga tvö börn; og Hörður, f. 15.10.1944, lífeðlis- fræðingur og dósent í læknisfræði við HÍ, kvæntur Margréti, en þau eigatvær dætur. Foreldrar Hauks: Filippus Gunn- laugsson, verslunarmaður í Reykja- vík, f. 17.5.1905, d. 12.4.1981, og Sig- ríður Gissurardóttir húsmóðir, f. 27.11.1909. Foreldrar Filippusar: Gunnlaugur Magnússon,.b. og hreppstjóri að Osi í Steingrímsflrði í Strandasýslu, og Marta Magnúsdóttir, húsmóðir þar. Foreldrar Sigríðar: Gissur Jóns- son, b. og hreppstjóri í Drangshlíð undir Austur-Eyjaflöllum, og Guð- flnna, ljósmóðir þar, dóttir ísleifs b. og hreppstjóra á Kanastöðum, Magnússonar, b. og hreppstjóra þar, Haukur F. Filippusson. Magnússonar. Móðir Guðfinnu var Sigríður, dóttir Árna, dbrm., b. og hreppstjóra að Stóra-Ármóti í Flóa, Magnússonar og Helgu Jónsdóttur, umboðsmanns og lögsagnara á Stóra-Ármóti. Móðir ísleifs var Guð- rún ísleifsdóttir frá Seljalandi undir Eyjaflöllum. Haukur er erlendis þessa dagana. Þuríður Matthíasdóttir Þuríður Matthíasdóttir, til heimil- is að Laugarnesvegi 81, Reykjavík, erfimmtugídag. Þuríður fæddist á Hólmavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún var ellefu ára er hún missti móður sína og fór flórtán ára í vist, fyrst í Mosfellssveit og síðar í Reykjavík. Hallgrímur Guðjónsson. Leiðrétting Myndvíxl urðu í afmælisgreinum Hallgríms Guðjónssonar og Haralds Georgssonar á fóstudaginn. Ætt Guðlaugs Jóelssonar á Sölvabakka, fóður Sigurlaugar, ömmu Hallgríms Guðjónssonar, heitir Guðlaugsætt. Hún starfaði síðan sem afgreiðslu- stúlka við veitingahús í Reykjavík. Þuríður flutti upp á Akranes 1963 og bjó þar til 1975 en þar vann hún verslunarstörf við Raftækjaverslun Þórðar Hjálmssonar. Þuríður flutti aftur til Reykjavíkur 1975 og hefur búið þar síðan. í Reykjavík hefur hún unnið viö verslunarstörf eða starfað við sjúkrahús. Þuríðúr hefur nú starfað við Sjúkrastöðina Vog sl. flögur og hálft ár en hún er þar trún- aðarmaður starfsfólks. Sonur Þuríðar er Vilhjálmur Matthíasson, f. 3.9.1961, verkamað- ur í Reykjavík, en hann á tvo syni, Matthías og Alexander. Faðir Vil- hjálms var Matthí as V ilhj álmur Gunnlaugsson, bílasali í Reykjavík, hann er látinn. Þuríður var gift Guðmundi Sig- urðssyni, f. 21.5.1924, járnsmið á ísafirði, syni Sigurðar Jónssonar og Kristínar Jóhannsdóttur úr Hnífs- dal. Sambýlismaður Þuríðar er Hauk- ur Þorkelsson, f. 7.6.1936, trésmiður frá Hellissandi, sonur Þorkels Sig- urgeirssonar og Sigurástar Frið- geirsdóttur. Þuríður á flögur alsystkini sem öll eru á lífi. Þau eru: Einar, f. 3.10. 1927, sjómaður á Breiðdalsvík; Vig- dís, f. 5.11.1930, húsmóðir á Akra- Þuriður Matthíasdóttir. nesi, gift Lýö Sigmundssyni, lengst af verkamanni á Akranesi, þau eiga flögur börn og Vigdís átti eina dóttur fyrir hjónaband; Knútur, f. 27.7. 1933, sjómaður í Reykjavík; og Sig- ríður, f. 22.3.1942, húsmóðir á Geit- dal í Skriðdalshreppi, gift Bjarna Snæbjörnssyni, b. þar, Sigríður á sjö börn. Foreldrar Þuríður voru Ingveldur Jónsdóttir, f. 15.5.1902, d. 1950, hús- móðir á Hólmavík, og Mathías Aöal- steinsson, f. 19.12.1888, d. í janúar 1973, verkamaður á Hólmavík. Föð- urforeldrar Þuríðar voru Aðal- steinn Halldórsson, b. á Heiðdalsá, og Þuríður Einarsdóttir frá Hlíð í Kollafirði. Foreldrar Aðalsteins voru Halldór Jónsson á Níp á Skarðsströnd og kona hans, Vigdís Björnsdóttir. Björn Jónsson Björn Jónsson, fv. sjómaður, til heimilis að Öldutúni 6, Hafnarfirði, er áttræður í dag. Björn fæddist að Hvoli í Ölfusi og ólst þar upp í foreldrahúsum til. sextán ár aldurs. Hann var síðan vinnumaður hjá Þorvaldi Ólafssyni í Arnarbæli í sex sumur en var jafn- framt á togurum á vetrum. Björn flutti til Hafnarfiarðar 1926 og hefur búið þar síðan. Þar vann hann á bryggjunni eina vertíð en var næstu vertíð á enskum togara og síöan háseti á togaranum Júpiter. Björn var togarasjómaður i þrjá- tíu ár og sigldi hann öll stríðsárin. vinna hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn og byggingafélaginu Þór en þar starfaði hann í flórtán og hálft ár. Þá var hann starfsmaður hjá Oíufé- laginu í tíu ár. Kona Björns er Margrét, f. 6.11. 1905, dóttir Jóns Diðrikssonar, út- vegsbónda á Álftanesi, og Guðrúnar Guðnadóttur. Björn átti tólf systkini og komust ellefu þeirra á legg. Hann á nú þrjár systur á lífi. Þær eru: Salvör, f. 1898, lengi ráðskona í Hafnarfirði; Þuríð- Bjöm Jónsson. ur, f. 1900, lengi verkakona í Hafnar- firði og síðar í Sandgerði, en dvelur nú á Hrafnistu í Hafnarfirði og Gróa, f. 1907, lengst af húsfreyja á Hvoli, en búsett í Hveragerði. Foreldrar Björns voru Jón Björns- son, f. 1869, d. 1951, b. að Hvoli í Ölfusi, og kona hans, Guðrún Gott- skálksdóttir húsfreyja, f. 1875, d. 1950, dóttir Gottskálks, b. í Sogni, Guðmundssonar. Til hamingju með daginn 80 ára 50 ára Viktoria S. Sigurgeirsdóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði. Steinn Þór Karlsson, Fjósatungu, Hálshreppi. Guðrún Þrúður Vagnsdóttir, 70 ára Skagfirðingabraut 49, Sauðárkróki Arnbjörg Einarsdóttir, Hamarsgötu 17, Búðahreppi. 40 ára Halldór G. Halldórsson, Ásgarði 1, Neskaupstað. Kjartan Kjartansson, Flúðaseli 72, Reykjavík. Arnar Sigurbjörnsson, Logafold 126, Reykjavík. Árni G. Sigurðsson, Álfhólsvegi 65, Kópavogi. Jóhannes Jóhannsson, Silfrastööum, Akrahreppi. 60 ára Jóhanna Tryggvadóttir, Þórunnarstræti 112, Akureyri. Jóhanna H. Sveinbjamardóttir, Borgarholtsbraut 20, Kópavogi. Rósalind Sigurpálsdóttir, Sunnubraut 6, Dalvík. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hveturafmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsing- ar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.