Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Page 11
LAUGARDAGUR 21; JANÚAR 1989.
or
11
Breiðsíðan
Sigrún Jensdóttir, formaður Lions-
klúbbsins EIKAR í Garðabæ, segir
frá starfi klúbbsins, fréttum og
pósti sem hafði borist.
Konur voru á öilum aldri og hattar að öllum gerðum og stærðum. Þessi unga kona hlustaði með athygli á
söng Höllu Margrétar Árnadóttur. DV-myndir ELA
Forseti Islands, frú Vigdis Finn-
bogadóttir, var heiðursgestur
hattakvöldsins og sló á létta
strengi í ræðu sinni við góðar und-
irtektir.
Konur í Lionsklúbbnum EIK í
Garðabæ létu alvöruna lönd og leið
í vikunni og efndu til gestaboðs á
fundi sínum sem haldinn var á
Garðaholti. Hver mátti bjóða með
sér konu sem henni er kærust og
sameiginlega buðu þær forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Það var því margt um manninn í
litla félagsheimilinu á Álftanesi eitt
kvöldið í vikunni. Alhr gestir urðu
að framfylgja því skilyrði að bera
hatt á höfði og mátti sjá mörg
skrautleg og skemmtileg höfuðföt í
salnum.
Strax upp úr klukkan sex fóru
konur að tínast að húsinu og var
greinilegt að ekki voru þær allar
vanar því að bera barðastóra hatta
á höfði. Boðið var upp á ljúffengan
kvöldverð og gestir kynntust lítil-
lega starfsemi klúbbsins. Vigdís
forseti hélt ræðu og sló á létta
strengi þannig að oft var hlegið í
salnum. Meðal annars sagðist hún
ævinlega hafa verið hrifin af hött-
um. „Eg skal ekki hætta fyrr en
allar konur eru komnar með hatt,“
sagði Vigdís og brosti. Hún sagði
að það hefði tekið sig og dóttur sína
langan tíma að velja hatt fyrir þetta
kvöld.
Vigdís forseti sannaði það sem
oftar að hún er frábær ræðumaður
og ekki síður stórskemmtilegur.
Vigdís sagðist vita til þess að Sop-
hia Spánardrottning væri beinlínis
á móti höfuðfötum og bæri sjálf
aldrei hatt. „Hún kemur hingað í
sumar og þá tökum við ofan höfuð-
fótin,“ sagði forsetinn við mikinn
fógnuð.
Að loknum kvöldverði á þessu
sérstaka hattakvöldi komu þau
Halla Margrét Árnadóttir, sem
flestir þekkja eftir að hún söng lag-
iö Hægt og hljótt, og Magnús Gísla-
son, en þau eru bæði nemendur í
Tónlistarskóla Garðabæjar, og
sungu nokkur vel valin klassísk lög
við undirleik David Knowles. Halla
Margrét sagðist vera að stúdera
Carmen og leyfði hattakonum að
heyra hvernig til hefur tekist. Ekki
var annað að sjá en að þarna væru
efnilegir óperusöngvarar á ferð.
Lionskonurnar, sem buðu til
veislunnar, hafa ákveðna siði á
fundum sínum og var engin undan-
tekning í þetta sinn. Þær konur,
sem höfðu eldað eða undirbúið
kvöldmatinn fyrir fjölskylduna áð-
ur en þær fóru á fundinn, urðu að
borga sekt. „Þetta er okkar frídag-
ur,“ sagði Kristíana Kristjánsdóttir
varaformaður og sektaði auk þess
þær konur sem höfðu komið á eigin
bílum því léttvín var veitt með
matnum.
Þetta sérstaka hattakvöld þeirra
Lionskvenna tókst vel og sjálfsagt
hafa margar húsmæður notið þess
að slappa af eitt kvöld frá þvotta-
vélum, matarstússi og uppvaski.
Vonandi hafa þær ekki margar
komið að óhreinu leirtaui í vaskin-
um um kvöldið.
-ELA
Gestaboð hjá Iionskonum:
Hattar
voru skilyrði
Ford fyrirsætxikeppmn:
læitað aö nýjum andlitum
- myndir eiga að berast fyrir 10. febrúar
Fyrirsætukeppni Ford er i full-
um gangi en frestur til að senda
myndir er til 10. febrúar. Þegar eru
farnar aö berast myndir en skilyrð-
in eru aöeins þau að stúlkan sé
hávaxin og grönn. Myndirnar
verða síðan sendar til Ford Models
í New York þar sem Eileen Ford
velur nokkrar stúlkur til að taka
þátt í úrslitum.
Úrslitin fara fram í apríl en þá
kemur fulltrúi frá Ford Models og
velur eina eða tvær stúlkur sem
sigurvegara. Sú stúlka sem hlýtur
titilinn Ford-stúikan 1989 mun taka
þátt í keppninni Face of the 80’s -
Supermodel of the World sem fram
fer næsta sumar.
Ford-stúlka síðasta árs var
Ágústa Ema Hilmarsdóttir, 16 ára
gömul Reykjavíkurstúlka. Hún fór
til Kalifomíu þar sem hún tók þátt
í keppninni. Eftir dvölina þar var
henni boðið fyrirsætustarf í Þýska-
landi þar sem hún dvaldi í þrjá
mánuði. Ágústa Ema er í námi
núna en hefur áhuga á aö halda
áfram á fyrirsætubrautinni næsta
sumar.
Allmargar íslenskar stúlkur hafa
starfað á vegum Ford Models víða
um heim í lengri eða skemmri tíma.
Ford Models fylgist vel með öllum
sínum stúlkum og hjálpar þeim ef
eitthvað bjátar á. Ef stúlkumar
kjósa að vinna í New York geta þær
búið heima hjá Eileen Ford.
Lágmarkshæð fyrir fyrirsætur er
jafnan talin 172 cm. Engar aðrar
kröfur eru gerðar nema hvað
þyngdin má ekki vera of mikil.
Sendið mynd til: Fordkeppnin,
helgarblað DV, Þverholti 11. Merk-
ið myndina með nafni, heimilis-
fangi og símanúmeri og geflö upp
hæð.
-ELA