Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Síða 13
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. 13 Uppáhaldsmatur á sunnudegi Tónlistarmaöurinn Valgeir Guðjónsson notfærir sér frelsi við matseldina og stingur upp á að stofnuð verði sam- tök áhugafólks um matreiðslu á nýrri ýsu. DV-mynd S Tilbrigði um ýsu - að hætti Valgeirs Guðjónssonar Valgeir Guðjónsson, hinn fjölhæfi listamaður, hefur í mörgu að snúast þessa dagana. Hann er að ganga frá samningum um verk sem hann er að taka að sér á næstunni og les- endur fá væntanlega að heyra meira um áður en langt um líður. Auk þess var hann einn þeirra sem valdir voru til að búa til lag fyrir söngvakeppni Sjón- varpsins. Valgeir er einnig matáhugamaður og gefur að þessu sinni lesendum DV uppáhaldsuppskift sína sem hann kallar Til- brigði við ýsuflak. Góð hugmynd hjá Valgeiri að velja ýsu núna þegar hægt er að fá hana glænýja í hverri búð. „Ýsa var það heillin, stendur einhvers staðar,“ sagði Valgeir er hann var beðinn um uppáhaldsupp- skrift. „Þegar ég stend við eldavélina matreiði ég ýs- una kannski svona: Hita ofninn í ca 175° og sker fiskinn í hæfileg stykki, pipra þau og salta jafnhæfilega. Legg fiskinn í eldfast ílát og set á hvert stykki slettu af sýrðum rjóma sem ég bragðbæti með karrí, gráðosti, oreg- on, Mexíkókryddi eða bara hverju því sem hugurinn girnist og bragðlaukunum hugnast. Varast skal að krydda um of svo fiskur- inn verði ekki undir í sam- keppninni og baka síðan í ofninum hæfilega lengi. Þessi ýsumatseld má þróa fram eftir aldri, prófa ný og óvænt brögð, efna til getraunaleikja um sýrða kryddrjómann meðan á máltíð stendur og jafnvel gangast fyrir stofnun land- sambands áhugafólks um málstaðinn. Meðlætið get- ur og verið af ýmsum toga: Grjón, jarðepli, salat eða brauð. Eins má neyta ýsunnar „on the rocks“ að hætti sumra Japana. Einn af stóru kostunúm við svona matseld er hið fullkomna frelsi við leitina að bragðinu góða. Þess vegna finnst mér gaman að elda tilbrigði við ýsu- flak“ -ELA irihRÉTTINQAR „£>r Við smiðum innréttingar í íbúðir eða skrifstofúr, t.d. handrið, stiga, loft, eld- hús- og baðinnréttingar, forstofuinnrétt- ingar o.fl. DRAfTiARÞJÓriUSTA: Við komum, mælum og gerum verðtilboð ykkur að kostnaðarlausu. Hringið í síma 65-25-93 eða 50393. „&rcjn k.|. Strandgötu 75 tréSYVlÍÖjcl Hafnarfirði - Símar 65-25-93 og 50393 Auglýsing Nýtt símanúmer Frá mánudeginum 23. janúar 1989 hefur Stjórnarráð íslands símanúmerið 60 90 00 Auglýsing um álestur ökumæla Samkvæmt lögum nr. 3/1987, um fjáröflun til vega- gerðar, skal eigandi eða umráðamaður dísilbifreiðar koma með bifreið sína til álesturs á síðustu 20 dögum hvers gjaldtímabils, þ.e. næst á tímabilinu 20. janúar til 10. febrúar nk. Álestur fer fram hjá Bifreiðaskoðun íslands hf. á eft- irtöldum stöðum: Reykjavík, Keflavík, Selfossi, Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Húsavík, Egilsstöðum, Reyðarfirði/Eski- firði og Hvolsvelli. Samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðuneytisins sinna lögreglustjórar og eftir atvikum hreppstjórar, svo sem verið hefur, álestrinum annars staðar á landinu. Fjármálaráðuneytið. ÚTSALA í öllum búðunum 30-60% AFSLÁTTUR Byrjjar mánudaginn 23. janúar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.