Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. DV Molðor Spádómur sem rættist Skömmu fyrir jólin árið 1973 ciatt bandarískum efnafræðingi að nafhi Sherry Rowland í hug að reikna út hvaða áhrif efna- sambönd í úðabrúsum hefðu á ósonlagið í himinhvolfinu. Niður- staðan varð sú að áður en langt um liði gætu myndast göt í óson- lagið. Utreikningar Rowlands vöktu nokkra athygli á sínum tíma og lagt var til að hætt yrði að nota úðabrúsa. Á þær kröfúr hlustuðu þó fáir enda þóttu útreikningar Rowlands minna um of á vísinda- skáldskap. Það var ekki fyrr en fyrir tveim- ur árum þegar sönnur voru færö- ar á gat í ósonlaginu yfir Suður- skautslandinu aö jarðarbúa rönkuöu við sér og nú er viður- kennt að nær hefði verið að hlusta fyrr á efnafræðinginn. Kondórar verða að fá sérkennslu til að bjarga sér. Skóli fyrir kondóra Bandaríkjamenn hafa miklar áhyggjur afþví að amerískikond- órinn deyi út. í Kaliforníu hefur verið komið upp útungunar- stöðvum þar sem ungum kondór- um er ungað út ogþeir aldir upp. Það hefur reynst vandræöa- laust aö halda lífi í ungunum en vandamáliö er að enginn er til að kenna þeim að lifa eftir að umönnuninni í útungunarstöð- inni sleppir. Reynslan hefúr sýnt að kondóramir læra að fljúga án kennslu en þeir eru algerir ratar í að afla sér fæðu. Nú eru sérfræðingar í lífshátt- um kondóra að kynna sér hvem- ig fullorðnir kondórar kenna af- kvæmum sínum að leita matar. Ætlunin er að nota þekkinguna til að kenna ungunum listina því þeir virðast ekki hafa fæðst með hæfileika til að bjarga sér. Geimstöðln á að líkjast þeim sem byggðar verða fjarri jörðu. Jarðbundin geimstöð Bandaríska geimferðastofnun- in hefur Iátið smíöa eftirlíkingu af geimstöð á jörðu niðri. Tilgang- urinn er aö gefa ungu fólki kost áað kynnast ímynduðu geiralífi. Svefnklefum og vinnuaðstöðu er komíð fyrir i sex hólkum sem era á lengd við fótboltavöll. Öll aðstaða er sem likust því sem tal- ið er að verði í geimnum eftir fá ár. Hugmyndin að þessari jarð- bundnu geimstöð er komin frá sjálfum Werner von Braun sem um árabil var hélsti sérfræðingur Bandaríkjamanna í smíði eld- flauga eftir að hafa lært undir- stöðuatriðin í Þýskalandi á valda- tíma Hitlers. Hann stakk upp á þessu skömmu eftir árið 1970. 23 Vísindi Plast í stað smjörs Á sama tíma og læknar ráða mönn- um frá að borða of mikla fitu vinna nú nokkur fyrirtækið að því að búa fil fitu sem ekki er fitandi. Þrátt fyr- ir allan áróðurinn gegn fitunni freist- ast menn til að neyta hennar í ríkara mæH en nokkur hefur gott af. í Bandaríkjunum er nýjungagjarnt matvælafyrirtæki sem kallast Proc- ter&Gamble. Á vegum þess er nú verið að búa til fitu sem Htur út eins og smjör eða smjörHki, bragðast eins en hefur engar hitaeiningar. Þetta fyrirbæri kallast olesta og er að grunni til úr plasti. Plastið í olesta meltist ekki og gengur í gegnum meltingarveg manna án þess að gefa nokkra næringu. Bragðið á hins veg- ar að vera ósvikið. Framleiðandi olesta bíður nú eftir að matvælaeftirlitið vestra samþykki framleiðsluna og gefi út yfirlýsingu um að eiginleikar efnisins séu þeir sem af er látið. Fáist þetta samþykki verður nýja fitan sett á markað. Hana má nota í alla mata og í staðinn fyrir smjör. Olesta þolir hita og ætti því að duga til steikingar og í bakstur. Enn hafa engar vísbendingar komið fram um að efnið sé hættulegt mönnum. Annað matvælafyrirtæki hefur einnig boðað almenna sölu á nýju fitulíki þegar í vor. Það er Nutra- Sweet sem þekktast er fyrir gerv- isykur. Þetta efni er unnið í eggja- hvítu og bragðast eins og smjör en er kólesterólfrítt og hitaeininga- snautt. Þetta er gert með sérstakri hita- meðferð sem hefur þann ókost að ef hita á efnið aftur eyðileggst það. Efn- ið, sem kallast Simplesse, kemur því ekki að fullum notum við elda- mennsku. Það hefur þó þann kost að vera búið til úr alþekktu næringar- efni og því er ekkert því til fyrirstöðu að það verði sett á markað. Olesta á að bragðast eins og smjör en er úr plasti og meltist því ekki. Eigendur sextán bandarískra raf- eindafyrirtækja íhuga nú að taka höndum saman um framleiðslu á svokölluðum hágæðasjónvörpum. Undirbúningur fyrir samstarfið er þegar hafinn þótt endanleg ákvörðun hafi ekki verið tekin. Ástæðan fyrir áhuga á samstarfi er að bandarísku fyrirtækin óttast að standast ekki japönsku rafeinda- risunum snúning í gerð hágæðasjón- varpa. í Japan er gerð slíkra sjón- varpa þegar vel á veg komin og talið er að tilraunaútsendingar hefjist þar eftir eitt til tvö ár. í Evrópu er vinna við hliðstætt sjónvarpskerfi þegar vel á veg komin. Á undanförum áram hafa banda- rísk fyrirtæki tapað svo gott sem öll- um markaði fyrir sjónvörp yfir til framleiðenda í Japan og Evrópu. Þetta hefur mönnum sviðið sárt í sjálfu föðurlandi sjónvarpsins. Nú er því spáð að í byrjun næsta áratugar verði bylting í sjónvarps- sendingum þegar hágæðasjónvörpin koma á markaðinn. Þau eru japönsk uppfinning sem leiðir til þess að skýrleiki mynda á sjónvarpsskján- um batnar um allan helming. Því er líklegt að margir sjónvarpsnotendur endurnýi tæki sín um leið og útsend- ingum sjónvarpsstöðva verður breytt fyrir hina nýju tækni. Bandaríkjamenn sjá fram á að verða utanveltu í þessari nýju sjón- varpsbyltingu. Enginn einn fram- leiðandi sjónvarpa þar í landi getur keppt við japönsku risana. Því hafa fyrirtæki eins og IBM, Hewlett- Minnum hvert annað á - Spennum beltin! Packard, Apple og Zenith hug á að standa saman í baráttunni. Þetta eru fyrirtæki sem nú eru helstu framleiðendur heimsins á tölvum. Þau sjá fram á að nýju sjón- varpsskjáirnir muni einnig breyta hefðbundnum tölvuskjáum og því geti yfirburðir Japana í sjónvarps- tækninni leitt til þess að þeir styrki stöðu sína á tölvumarkaðnum. Ástæðan til þess að sameinast gegn Japönum er því tvöföld. -tfH'BfiO Vöðvanuddbelti Tækið gefur gott og öflugt nudd á einstaka parta lik- amans, s.s. mjaðmir, mitti, rass, læri, háls o.fl. Til að losna við aukakiló og pokamyndun á kviði og lærum þá getið þið treyst ánægjulegu og árangursriku nuddi vöðvanuddbeltisins. Til að ná góðum árangri ofarlega á lærum látið þið nuddbeltið vera lengi að. Tækið vinnur gegn „appelsinuhúð", til að jafna og herða kviðvöðva notið nuddbeltið 10-15 min. dag- lega. Til að ná hraðari árangri notið sömu aðferð nokkur skipti á dag. Nuddbeltið er lika upplagt til að mýkja stirða axlar- vöðva. Leggstu á sófa með nuddbeltið undir iljum. Blóðrás örvast á örfáum minútum, þungi og þreyta liður hjá. Tækið er hannað úr sérstökum plastefnum sem ekki valda ofnæmi. Það gengur fyrir 2 stk. 1,5 V rafhlöðum sem gerir notkun þægilega og örugga. Tækið er hann- að með stillanlegu belti sem gerir það að verkum að tækið fellur þétt að hvaða likamshluta sem er. Mitti Mjaðmir Bak Háls Læri Póstverslunin Príma Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00. ® VISA S EUROCAfí'D Fótóhúsið - Príma - ljósmynda- og gjafavöruverslun, Bankastræti, sími 21556. r=-, LJ6J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.