Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1989, Side 30
46
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989.
LífsstQI
Nýir áningarstaðir:
Stokkseyri,
Eyrarbakki og
Þorlákshöfn
Eftir aö Ölfusárbrúin á Óseyrar-
nesi var tekin í notkun hefur umferð
ferðamanna, einkanlega á sunnu-
dögum, aukist mjög mikið á Stokks-
eyri, Eyrarbakka og í Þorlákshöfn.
„Við urðum varir við að ferða-
mönnum fjölgaði mjög í Þorlákshöfn
strax eftir að brúin var vígð í byrjun
september í fyrra. Það hefur verið
rætt meðal sveitarstjórnarmanna í
Þorlákshöfn að reyna að auka þjón-
ustu við ferðamenn. Það hafa hins
vegar ekki verið teknar neinar
ákvarðanir þar aö lútandi," segir
"Guðmundur Hermannsson sveitar-
stjóri.
„Áöur en við heíjumst handa við
að byggja upp ferðamannþjónustu
viljum við reyna að átta okkur á því
hversu margir koma til með að heim-
sækja þorpið og hvers konar þjón-
usta það er sem fólk er að leita eftir.
Söfn og sund
Það sem ferðamenn hafa helst
áhuga á að skoða hér í þorpinu er
minjasafnið, kirkjan og svo eru
margir sem koma hingað og bregða
sér í sund. Það er einnig fjöldi manns
sem fer og skoöar Strandarkirkju og
svo Garðyrkjuskólann á Reykjum.
Grétar Zophaníasson, sveitarstjóri
á Stokkseyri, tók í sama streng og
Guðmundur og sagði að þar væru
menn lítið farnir að huga að bættri
þjónustu viö ferðamenn í kjölfar
aukins ferðamannastraums.
„Við erum ekki með nein áform
uppi þó svo við höfum rætt þessi mál
nokkuð upp á síðkastið. í framtíðar-
skipulagi fyrir Stokkseyri er gert ráð
fyrir tjaldstæðum og ég geri ráð fyrir
að það verði hafist handa við aö út-
búa þau einhvern tímann á næst-
unni.“
Þuríðarbúð
Flestir þeir sem eiga hér leið um
keyra austur fyrir þorpið og skoða
fjöruna en hún þykir mjög sérstæð
og falleg. Og eins skoða margir
minjasafnið Þuríðarbúð sem er sjó-
búð í gamla stílnum og kennd við
Þurðíði formann Einarsdóttur sem
Umferð fólks um Stokkseyri, Eyrarbakka og Þorlákshöfn hefur aukist til mikilla muna á síðustu mánuðum.
var upp á sitt besta á fyrri hluta síð-
ustu aldar,“ sagði Grétar.
Sjóminjasafn
og gömul hús
„Við höfum ekki tekið neina
ákvörðun um bætta þjónustu við
ferðamenn. En við erum að ræða
ýmsa möguleika. Það verður opnað
hér nýtt sjóminjsafn í næsta mánuði
og það verður áhugavert fyrir fólk
að skoða það. Svo höfum við rætt um
að koma hér upp veitingasölu ásamt
ýmsu öðru sem ekki er tímabært að
tíunda á þessari stundu, Það má
kannski segja að við höfum ekki ver-
ið nægjanlega á varðbergi varðandi
ferðamannaþjónustu hér á staðnum.
Það var eins og menn vildu ekki trúa
því að Ölfusárbrúin væri loksins
komin í gagnið og því höfum við ver-
ið dálítið seinir að taka við okkur.
Ferðamenn, sem eiga leið hér um,
keyra flestir um þorpið og skoða það.
Hér er töluvert af gömlum húsum
sem mönnum þykir gaman að hta á
og eins hefur veriö varðveitt hér heil-
leg götumynd síðan um aldamót,"
segir Magnús Karel Hannesson, odd-
viti á Eyrarbakka.
-J.Mar
Flugleiðir:
Ódýrara að fljúga frá Lúxemborg
til New York en frá íslandi
- nema á dýru fargjöldunum
Að undanfórnu hafa nokkrir ein-
staklingar haft samband við ferða-
'síðu DV og bent á að það væri miklu
ódýrara að fljúga frá Lúxemborg til
New York en frá íslandi.
Hjá söludeild Flugleiða í Lækjar-
götu fengust þær upplýsingar að
Apex-miði héðan til New York kost-
aði frá og með 1. júní 41.720 krónur.
Skilmálamir, sem fylgja miöanum,
eru þeir að panta verður hann með
minnst fjórtán daga fyrirvara og
greiða hann. Lágmarksdvöl vestra
er 7 dagar en hámarksdvöl er tveir
mánuöir. Ekki er hægt að kaupa
sambærilegan miða frá Lúxemborg
til New York en sá miði, sem er lík-
astur Apex-miðanum, er Super-Pex-
miði en hann kostar hins vegar ekki
nema 26.915 krónur. Skilmálarnir,
sem fylgja þeim miða, eru að panta
verður hann og greiða með þriggja
vikna fyrirvara. Lágmarksdvöl í
Bandaríkjunum er sjö dagar en há-
marksdvöl þrjár vikur.
íslendingar geta ekki notfært sér
ódýru miðana sem hægt er að kaupa
i Lúxemborg því samkvæmt reglum
Flugleiða verða þeir að hafa keypt
flugmiðana á íslandi.
Ef þeir vilja fljúga til Bandaríkj-
anna á þeim kjörum sem Flugleiðir
bjóða í Lúxemborg verða þeir að
fljúga fyrst til Lúxemborgar og þaðan
aftur til íslands og svo áfram yfir
hafið til Bandaríkjanna.
Haft var samband við Einar Sig-
urðsson, blaðafulltrúa Flugleiöa,
vegna þessa. Hann sagði að vissulega
gæti verið mismunur á verði á flug-
miðum á þessari leið. Tók hann sem
dæmi að miði á Saga Class héðan og
til New York kostaði um 70 þúsund
krónur en sams konar miði frá Lúx-
emborg kostaði um 90 þúsund krón-
ur.
Opinn ársmiði kostar héðan til
New York um 63 þúsund krónur en
frá Lúxemborg rúmar 71 þúsund
krónur.
Það er sem sagt miklu ódýrara að
fljúga frá íslandi ef keyptir eru dýr-
ari flugmiöarnir en ef ferðafólk ætlar
að notfæra sér ódýr flugfargjöld á
þessari leið snýst dæmiö hins vegar
við.
-J.Mar
Um þessar mundir er miklu ódýrara að fljúga frá Lúxemborg til New York ef keypt eru ódýrari fargjöldin. Dæmiö
snýst hins vegar við ef keyptur er ársmiði eða miði á Saga Class.
Veðrið í útlöndum
HITASTIG I GRÁÐUM
Otil -10 1 til 5 6 til 10 11 til 15 16 til 20 20 til 251 25 til 30 30 st|g
Byggt á veðurfréttum Veðúrstofu Islands kl. 12 á hádeoi. föstudao
Akureyri 9° Evróþa
Reykjavík 8'
Þórshöfn 9°
Bergen12° ) J
Q Helsinki13°
Sl
Glasgow12^ oslób^i
^ \ „Stb'Wthólmur 19
Káupmannahöfn 20°BJ
« 0 Hamborg 23°
Amsterdam24° /''Jk Berlín 25°
P3Hs2r(5
^ ®vín2r
. ____ Barcelona 20°- Feneyjar 20°
Algarv©2?
I W DAn
f I
Mallorca23‘
RómSl^ \ r'
r-4/
w
í i
r
Heiðskírt
Léttskýj
o
0
Hálfskýjeð
Skýjað
Alskýjað
NorðurV Ámeríka
tl
Morttreal,^8^oQ
Tn?* c
Chicagó19?J
0
é
New York 16°
Los Angeles 23°
■ ■ ' Vw
Q(lando21°
jT" 5
/S Rigning Skúrir '.' Snjókoma Þrumuveður _ Þoka