Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Qupperneq 5
5
MÁNUDAGUR 19. JÚNl 1989.
dv Fréttir
Nýi báturinn á siglingu á Fáskrúðstirði. DV-mynd Ægir
Fáskrúösflöröur:
Nýr bátur sjósettur
Raufarhöfn:
Sjö prestar við
afmælismessu
Prestarnir sjö sem voru við athöfnina. Frá vinstri: Guðmundur Örn Ragnars-
son farprestur, Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Raufarhöfn, Sigurvin Eliasson
Skinnastöðum, Kristján Valur Ingólfsson Grenjaðarstað, Ingimar Ingimars-
son Þórshöfn, örn Friðriksson Skútustöðum og Kristján Róbertsson Seyðis-
,lrðl- DV-mynd Hólmfríður
Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Nýlega var sjósettur nýr bátur hjá
skipasmíðastöð Guölaugs Einarsson-
ar á Fáskrúðsfirði. Báturinn er 9,9
tonn að stærð, smíðaður úr furu og
eik og er búinn öllum nýjustu og full-
komnustu siglingar- og fiskleitar-
tækjum. Vélin er GM, 220 hestafla.
Þetta er þrettándi báturinn sem
smíðaður er í skipasmíðastöðinni en
teikningar hefur Sigurður Einars-
son, bróðir Guðlaugs, gert. Báturinn
er enn óseldur en nokkrir hafa sýnt
46 eldri borgarar frá Isafirði, Flat-
eyri og Bolungarvík fóru í hálfs mán-
aðar ferðalag á dögunum, m.a. til
Færeyja með Norrænu. Stansað var
fimm sólarhringa þar og var fólkinu
boðið í rausnarlegar veislur. Einnig
var því boðið í margar veislur á
hringferð sinni um ísland.
Aö sögn þeirra heiðurshjóna, Guð-
rúnar Guðbjarnadóttur og Jóhanns
Guðbjartssonar, Flateyri, er þessi
ferð hin besta sem þau hafa farið.
Ferðafólkið hafði með sér 50 manna
rútu og tvær konur um fertugt voru
fararstjórar, þær Málfríður Hall-
dórsdóttir og Lilja Sölvadóttir.
Þekktu þær leiðir vel, bæði hér á
landi og í Færeyjum. Bílstjóri var
Ásgeir Sigurðsson, snjall í akstrin-
um.
Á bakaleiðinni var suðurleiðin ek-
in. Aðfaranótt laugardagsins 10. júní
var gist á Hellu og boðið í hádegis-
mat af Eiríki Ragnarssyni frá Flat-
eyri á sunnudag í náttúrulækninga-
hælinu í Hveragerði. Matarveisla var
hjá DAS í Hafnarfiröi á sunnudag,
síðan frídagar þar til á þriðjudag 13.
júní að ekið var heim.
Þessi ferð kostaði 55 þúsund krón-
ur á mann og aldursforsetinn var 86
ára. Fólkið var vel að því komið að
lyfta sér upp í ellinni og eyða smá-
gjaldeyri í skemmtiferðir því Vest-
Kýr enn á gjöf
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Sporthestaeigendur eru farnir að
sleppa hestum símun þrátt fyrir lít-
inn gróður í úthaga en þónokkrir
hafa hesta sína ennþá á nær fullri
gjöf. Hvergi sáum við hjónin beljur
hér úti við sunnudaginn 11. júní og
þó ókum við framhjá mörgum kúa-
búum hér í Árnessýslunni.
áhuga á að kaupa hann. Nú eru þrír
bátar í viðgerð í skipasmíðastöðinni,
þar á meðal er vélbáturinn Seifur frá
Bakkafirði en hann sökk þar í höfn-
inni 10. febrúar sl. Þann bát keypti
Guðlaugur þar sem hann lá á hafs-
botni, náði honum upp með góðra
manna hjálp og sigldi til Fáskrúðs-
fjarðar. Báturinn er töluvert
skemmdur og skipta þarf um alla
stjórnborðssíðu hans auk annarra
lagfæringa. Viðgerðin tekur 3 til 4
mánuði. Hjá skipasmíðastöðinni
vinna nú-sjö menn.
firðingar hafa verið duglegir við að
afla þjóðinni gjaldeyris.
Hólmfriður Friðjónsd., DV, Raufarhöfn:
Sextíu ára afmæhs Raufarhafnar-
kirkju var minnst með hátíðarmessu
sl. sunnudag. Þá voru liðin tíu ár frá
því að kirkjan var tekin í notkun eft-
ir miklar endurbætur. Kirkjan var
byggð 1928 og vígö l.janúar 1929.
Arkitekt var Guöjón Samúelsson.
Við messuna á sunnudag predikaði
séra Öm Friðriksson prófastur. Fyr-
ir altari þjónuðu séra Ragnheiður
Erla Bjamadóttir og séra Kristján
Valur Ingólfsson. Alls vom sjö prest-
ar við athöfnina og af þeim hafa fimm
þjónað Raufarhafnarprestakalli auk
Ragnheiðar Erlu, núverandi sóknar-
Raufarhafnarkirkja - arkitekt Guðjón
Samúelsson. DV-mynd Hólmfríður
prests. Þá má geta þess aö fimm
þeirra vora vígðir hér til prests.
Jón Ólafur Sigurðsson, organisti
frá Akranesi, var fenginn til að æfa
kirkjukórinn í fimm daga fyrir mess-
una og annaðist hann einnig undir-
leik við athöfnina. Þá söng Margrét
Bóasdóttir einsöng. Hún tók mikinn
þátt í tónlistarlífi hér á Raufarhöfn
og kenndi við tónlistarskólann þegar
eiginmaður hennar, séra Kristján
Valur Ingólfsson, þjónaði Raufar-
hafnarprestakalli.
Kirkjusókn var mjög góð og voru
kirkjugestir um 130. Að lokinni
messu var öllum kirkjugestum boðið
til kaffidryklyu á Hótel Norðurljós-
um. Kirkjunni barst afmæhsgjöf frá
Raufarhafnarhreppi, peningagjöf að
upphæð 50 þúsund krónur.
Verðió er fróbært, fró aðeins kr. 648.
ISUZU GEMINI#
er stolt feðra sinna - hannaður
með tilliti til formfegurðar og
margra ára endingar. í margendur-
teknum rannsóknum hefur
GEMINI reynst einn sterkbyggðasti
og öruggasti smábíll gagnvart
slysum og hvers kyns óhöppum.
ISUZU GEMINI#
býður uppá meira innanrými og
þægindi en nokkur annar
sambærilegur bíll. Þægileg
framsæti með margvíslegum
stillimöguleikum - aftursæti sem
má leggja niður til að auka
farangursrými og rúmgóðri
farangursgeymslu með víðri og
aðgengilegrí opnun.
ISUZU GEMINI# -
er sannkallaður kostagripur - ekki
of lítill og ekki óf stór, búinn þeim
fýlgihlutum sem fæstir sambæri-
legir bílar státa af, svo sem 5 gíra
eða sjálfskiptingu, aflstýri, útvarpi
m/segulbandi, góðri hljóð-
einangrun og traustum undirvagni.
mM BÍLVANGUR
Veldu þérGEMINI með framhjóladrifi,
3ja eða 4ra dyra, með 1.31 ítra eða 1.51 ítra vél
HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300
6 myndir 1
stað 4 mynda
áður
LI0SMYNDAST0FA REYKIAVIKUR
O'Y'ERr/SCÖTU 105- L
HÆO
$,MV62VI66
Glæsiferð Vestfirðinga
Regína Thorarensen, DV, Selfössi: